Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Page 50
46 Menning Helgarblað 10.–13. apríl 2015
GÓLFMOTTUR
Við leigjum út gólfmottur í anddyri.
Haltu fyrirtækinu hreinu og minnkaðu
ræstingakostnað.
Við sækjum og sendum.
Fáðu verðtilboð!
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is H
önnunarhornið fagnar því
að DV skuli aftur komið með
rauðar rendur á kjöl forsíð
unnar. Rendurnar voru því
miður aflagðar fyrir fáeinum árum,
en hafa nú endurheimt sess sinn
að nýju. Forsíður helstu fjölmiðla
heims skipta lesendur miklu máli og
minnstu breytingar vekja umtal og
deilur. Rendurnar á DV eru því hluti
af íslenskri hönnunarsögu og mik
ið fagnaðarefni að hugað sé að því
að endurvekja það sem er gamalt og
gott með þessum hætti. n
Haldið í sögulegar hefðir
Fjársjóðurinn
liggur í gömlum
íslenskum hefðum
Aldís Rún er hæfileikaríkur fatahönnunarnemi á öðru ári í Listaháskólanum
A
nnars árs nemar fata
hönnunardeildar Lista
háskóla Íslands áttu
sviðið í Hörpu í vikunni
á tískusýningu þar sem
hver nemandi sýndi þrenns kon
ar heildarútlit og var þetta útkoma
6 vikna námskeiðs sem kennt er í
LHÍ.
Samtals sýndu tíu nemendur
verk sín, þar af þrír skiptinemar.
Þar sem þessi tískusýning er sú allra
fyrsta sem flestir nemendur taka
þátt í er sýningin yfirleitt talin bjóða
upp á meira krassandi „catwalk“
og nemendur þora að taka meiri
áhættu. Tískusýningin er iðulega
talin vera undirbúningur fyrir út
skriftarsýninguna sem koma skal.
Svefnlausar nætur
Aldís Rún Ingólfsdóttir er 25
ára og afar hæfileikaríkur fata
hönnunarnemi sem hugsar út fyrir
kassann. Hún er einn þeirra nem
enda sem sýndu verk sitt í Hörpu.
Hönnunarhornið ræddi við Aldísi,
sem hefur sótt sér innblástur víða
að. Hún býr í vesturbænum, hef
ur ferðast víða um heiminn, lært
japönsku, unnið í París, og notar
sykur til að vinna efnið í flíkunum
sem hún býr til. Hún segir vinnuna
sem liggur að baki flíkunum oft
strembna og stundum valda svefn
lausum nóttum. En að lokum, þegar
flíkin er tilbúin, þá kemur ofsa
gleðin!
Af hverju ákvaðst þú að læra fata-
hönnun?
„Ég hef alltaf haft djúpstæðan
áhuga á fatnaði og efnum, alveg frá
því að ég fékk í raun að klæða mig
sjálf. Mér finnst þetta svo mikil
vægur partur af mannlífinu, fatn
aður segir svo margt um mann
eskjuna og hvað hún vill gefa frá
sér, eiginlega snýst fatavalið mikið
um það að tjá persónuleika. Annars
finnst mér listir skipa svo stóran
sess í samfélaginu, en fólk gleym
ir oft að fatahönnun er listform og
fatahönnuðir skapa list með fatn
aði sínum. Að baki hverri flík liggur
mikil tækni, samsetning, speki og
fagurfræði þar sem samspilið er oft
flókið og vandasamt. Fatahönnuð
ir spýta ekki út stuttermabolum og
stuttbuxum heldur skapa þeir list.
Föt eru ekki bara föt og í stuttu máli
langaði mig að skapa list sem hefur
tilgang.”
Formin einkenna línuna
Hvað einkennir línuna þína?
„Það sem einkennir mína línu
eru formin á flíkunum ásamt
sérstöku „manipulation“ á
efninu. Ég notaði alls kyns
tækni til að ná fram
áhrifum á efninu
eins og ég vildi.
Það heppnaðist
ekki alltaf í fyrstu
eða annarri til
raun en að lok
um varð ég
ánægð. Þetta
er í raun
endalaus
prufuvinna.
Ég notaði
til dæmis
sykur til
þess að stífa
efnið til að
geta plíserað
það á þann
hátt sem ég
vildi og not
aði margs kon
ar aðferðir við
að lita efnið.
Ég endaði með
að mála part
af efninu með
akrýlmáln
ingu.“
Íslenskir úpp-
áhaldsfata-
hönnuðir?
„Ég á
engan uppá
haldshönnuð,
en það eru
margir hönnuð
ir sem ég dáist að og
finnst hafa náð fram mögn
uðum hlutum. Ég var mjög
hrifin af nýju línunni hjá
MAGNEA og finnst
þær hafa undan
farið gert frábæra
hluti. Einnig finnst mér
samnemendur mínir í fata
hönnun í LHÍ vera að gera
marga alveg magnaða hluti
– líklega verða einhverj
ir af þeim uppáhaldshönnuðirnir
mínir.“
Uppáhalds erlendir fatahönnuðir?
„Ég á engan uppáhalds, en marga
sem ég dáist að og veita mér inn
blástur. Þeir sem ég hrífst mikið
af þessa stundina er Faustine
Steinmetz, franskur
hönnuður sem hand
gerir hverja flík alveg
frá grunni, hún vefar,
handlitar og málar
verk sín. Einnig
finnst mér Junya
Watanabe alveg
mögnuð. Vinnu
aðferðir sem hún
notar eru sprottin
af djúpstæðri
þekkingu á sníða
gerð hjá japönsk
um hönnuðum.“
Enn lítil fjöl-
breytni á Íslandi
Hver verða helstu
„trendin“ á Íslandi í
sumar?
„Ég veit ekki hvað á eft
ir að vera „trendið“ á Ís
landi, líklega það sem
verður trendið í Dan
mörku eða Svíþjóð, sem
mér þykir leiðinlegt. Það
verður svo lítil fjölbreytni í
tísku og allir verða eins, en
vonandi fer það að breyt
ast og fjölbreytileiki mun
sjást í trendum á Íslandi.“
Hver er munurinn á ís-
lenskri og erlendri fata-
hönnun?
„Íslenskir fatahönnuðir búa
því miður ekki yfir fjölda þeirra
möguleika sem standa til boða er
lendis í sama geira bæði í efna
úrvali og tæknigerð. Vonandi mun
það breytast og bætast
með tímanum. Svo
finnst mér við búa
yfir ótrúlegum fjár
sjóði í hannyrðum eða „handcraft“
og ég held að við ættum að kíkja
meira til gamalla hefða og gera þær
ferskar og kúl.“ n
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kolfinna@artikolo.is
Hæfileikarík
Aldís Rún er ein
þeirra sem sýndu
verk sín í Hörpu í
vikunni.
Mynd SigtRygguR ARi
„Ég hef alltaf
haft djúpstæðan
áhuga á fatnaði og efn-
um, alveg frá því að ég
fékk í raun að klæða mig
sjálf.
góður hópur Tískusýning var haldin í Hörpu í vikunni þar sem annars árs nemar í fata-
hönnun við Listaháskólann sýndu verk sín. Mynd SigtRygguR ARi
Fallegar flíkur
Stífaði efni með
sykri og málaði
með akrýlmáln-
ingu. Mynd SigtRygguR ARi