Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 53
Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Vefuppboð
á uppboð.is
opið virka daga 10 - 18,
laugard. 11 - 16,
sunnud. 14 - 16
Rauðarárstígur 12 - 14
sími 551-0400
www.myndlist.is
á listaverkum í allt að 36 mánuði
Vaxtalaus kaupleiga
Jóhannes S. Kjarval
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–14, sunnud. lokað
Við leitum að
listaverkum
erum að taka á móti verkum á næsta
listmunauppboð sem fer fram í mars
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist.
Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur,
Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og
Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna,
Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband
í síma 551-0400
vefuppboð
nr. 105
myndlist
lýkur 11. mars
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist.
Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval,
Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B.
Þorláksson, Svav r Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs
Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal
og Gunnlaugs Scheving.
Silfurmunir til 14. apríl
Grafík, prent og ljósmyndir til 15. apríl
Skartgripir til 21. apríl - Bækur til 3. maí
Áhugasamir geta haft samband
í síma 551-0400
Erum að t ka á móti verkum
á næsta listmunauppboð
Menning 49
Pípulagnir líkamans og innviðir netsins
n Sequences VII er tíu daga myndlistarhátíð í Reykjavík n Alfredo Cramerotti, listrænn stjórnandi, ræðir pípulagnir og heiðurslistakonuna Carolee Schneemann
Meðal fjölmargra listamanna
sem kljást við þemað á hátíðinni eru
Ragnar Helgi Ólafsson, en verk hans
er nokkuð bókstaflega staðsett inn
an um pípulagnir á almenningssal
erninu í Bankastræti núll; Raul Kell
er, sem vinnur með útvarpsbylgjur,
óræðar og ósýnilegar tengingar út í
alheiminn; og Dagrún Aðalsteins
dóttir sem vinnur með líkamann og
mismunandi birtingarmyndir hans,
afmyndar hann og framlengir.
En telur hann að listin geti tek
ist á við þessar pælingar á einhvern
hátt sem aðrar athafnir og önnur svið
samfélagsins geta ekki? „Já, ég held
að ef ég myndi reyna að lýsa vinnu
listamanns í þremur orðum væri það
„að hliðra sjónarhorninu“. Að hliðra
sjónarhorni okkar á hlutina í kring
um okkur, á hluti sem við tökum
sem gefnum um líf okkar, vinnu, fjöl
skyldu og svo framvegis. Staða lista
mannsins í samfélaginu er mikilvæg
þar sem hún gefur manni færi á að
spyrja spurninga og að færa sig frá
hinum viðtekna sjónarhól. Stund
um er þetta nýja sjónarhorn mjög
praktískt en stundum er það mjög
huglægt og tilgátukennt. Niðurstað
an getur verið eitthvað sem er hægt
að hagnýta en alls ekki alltaf, hún
getur líka kveikt meðvitund í áhorf
andanum um að hægt sé að skoða
heiminn á annan hátt. Þá breyt
ir listin í raun engu í efnisheimin
um en hefur áhrif á hugsun áhorf
andans,“ segir Alfredo. „Án slíkra
hugarfarsbreytinga, nýrra spurn
inga og nálgunar á
heiminn hefðum
við aldrei þróast
frá því þegar við
bjuggum í hellum
og þar til núna.
Vísindi og tækni
þróun gegna svip
uðu hlutverki, þar
er stöðugt verið
að ýta út mörkum
hins mögulega
og hins viðtekna.
En tækniþróun
in er línulegra
ferli á meðan
listin fer í hringi.
Gildi hennar felst
í því að efast og
spyrja gagn
rýnna spurninga
um sjálfan sig í
hvert skipti, hún
fer stöðugt aftur í
ræturnar og byrj
ar upp á nýtt.“
Listamaður listamannanna
Heiðurslistamaður hátíðarinnar í
ár er bandaríska myndlistarkonan
Carolee Schnemann, sem er frum
kvöðull í gjörningalist. Alfredo segir
það mikið gleðiefni að fá að skoða
verk hennar, en hann telur hana
passa vel við þema hátíðarinnar, en
þá sérstaklega notkun hennar á lík
amanum í verk sín. „Hún hefur ver
ið gríðarlega mikilvæg í lista og
menningarheiminum allt frá sjö
unda áratugnum. Hún er ein af þeim
sem umbyltu hugmyndum fólks um
gjörningalist og möguleika lista
mannsins til að nota líkama sinn
sem hráan efnivið í listaverk. Hún
var aldrei hrædd við að nota eig
in kynferði og kyn og velti mikið fyr
ir sér einkennum eigin kyns og kyn
gervis. Þetta þótti óvenjulegt á tíma
þegar hugmyndin um listamann
inn sem hvítan karlmann var ennþá
allsráðandi. Þrátt fyrir að vera mjög
margar voru konur nánast ósýnilegar
í listaheiminum. Hún skapaði sér
hins vegar einstaka stöðu og með því
að nota hinn virka líkama í verk sín
braut hún niður ótal hugmyndir sem
þá voru viðteknar um hvernig lista
menn ættu að vera,“ segir Alfredo.
Fjögur gömul verk eftir Schnee
mann verða til sýnis á hátíðinni og
segir Alfredo að hér sé nánast um
ræða litla yfirlitssýningu. Þá verður
viðtal Hans Ulrich Obrist við lista
konuna frumsýnt, heimildarmynd í
fullri lengd sýnd og þá mun hún flytja
erindi og ræða við Ragnar Kjartans
son í gegnum Skype. En Ragnar hef
ur einmitt lýst yfir aðdáun sinni á
Schneemann. „Þótt hún sé kannski
ekki þekkt meðal almennings er hún
einn af þeim listamönnum sem aðrir
listamenn líta mikið til – hún er lista
maður listamannanna. Á undan
förnum tíu árum hefur áhuginn á
verkum hennar svo vaxið á ný. Mað
ur tekur eftir að margir listamenn
af yngri kynslóðinni eru að sækja í
sama brunn og hún, til dæmis eru
margir að nota ítarlegar upplýsingar
um eigin líkama og tölur um virkni
hans sem efnivið fyrir listaverk,“ seg
ir Alfredo og bendir einnig á hvernig
áhrifa Schneemann hafi einnig gætt
í meginstraumsmenningu samtím
ans. Til dæmis má nefna að Maude
Lebowski, persóna sem Julianne
Moore leikur í Hollywoodmyndinni
The Big Lebowski, er að hluta inn
blásin af Schneemann og kjötkjóll
sem Franc Fernandez hannaði fyrir
poppstjörnuna Lady Gaga árið 2010
og vakti mikla athygli er sagður inn
blásinn af þekktasta verki Schneem
ann, Meat Joy. n
Notar líkamann í verk sín Á Sequences verða sýndar myndir sem Erró tók af listaverka
röðinni Auga líkami (e. Eye body) þar sem líkami listamannsins, Carolee Schneemann, leikur
stórt hlutverk í klippimyndinni.
„Mér fannst
áhugavert að
skoða þessa strúktúra,
náttúrulega jafnt sem
manngerða, sem gera
okkur kleift að færa efni,
hluti, þekkingu og lík-
ama milli staða.
Listrænn
stjórnandi
Alfredo
Cramerotti er
fyrsti erlendi
sýningarstjór
inn til að sjá um
listræna stjórn
myndlistar
tvíæringsins
Sequences.
MyNd Sigtryggur Ari
ranghalar Vídeóinn
setningin Fleiri rangir
hlutir (e. More wrong
things) eftir heiðurs
listamanninn Carolee
Schneemenn verður
sett upp í Kling og Bang.