Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Síða 55
Helgarblað 10.–13. apríl 2015 Menning 51
F
lækingurinn er ný skáldsaga
eftir Kristínu Ómarsdóttur.
Aðalpersóna bókarinnar er
mállaus piltur, Hrafn, sem lif-
ir á jaðri samfélagsins í veröld
sem er mörkuð ofbeldi og vímu, en
þar dafnar einnig einlæg vinátta.
Þegar Kristín er spurð hvaðan
hugmyndin um mállausa söguhetju
sé sprottin svarar hún: „Ég skil það
eiginlega ekki sjálf. Margir sem hafa
mál upplifa sig stundum sem mál-
lausa, það þekki ég sjálf. Ef maður
ýkir þessa tilfinningu þá er um leið
hægt að skapa persónu sem er mál-
laus, held ég.“
Um söguheiminn, veröld utan-
garðsfólks, segir hún: „Ég leitaði
mér heimilda og að einhverju leyti
hef ég haft smá gægjugat í þenn-
an heim. Í gegnum árin hef ég fylgst
með fólki sem lifir – á óhefðbundinn
hátt – eins og stundum er sagt, notar
eitur lyf og hagar lífinu á annan hátt
en meirihlutinn, að því er virðist. En
eins og segir: Ekki er allt sem sýnist.“
Hún segir að sér hafi gengið vel
að skrifa söguna: „Ég skrifa flest mín
verk af fingrum fram og bæði sagan
og bygging hennar lá snemma fyrir í
huga mér. Ég var heppin með þessa
bók að því leyti. Ég vann síðan mikið
í henni og eftir að hafa skrifað fyrsta
handritið breytti
ég persónum og
tók út persónur.
Þetta efni hefur
verið ofarlega í
huga mér lengi og
ég hef áður skrifað
sögu, sem er óbirt,
um götustrák. Sá
strákur er allt önn-
ur týpa en Hrafn og
sagan gerist á öðr-
um stað og ólíkum
tíma en saga hans.
Flækingurinn er
fyrst og fremst saga
þessa stráks, Hrafns.
Þótt sú persóna sé
ekki raunveruleg þá fannst mér hún
treysta mér fyrir sér. Ég er þakklát
þessari persónu sem líklega er byggð
á alls konar fólki.“
Kristín hefur á ferlinum skrifað
skáldsögur, smásögur, leikrit og ljóð.
„Í seinni tíð hef ég einbeitt mér að
skáldsagnaskrifum,“ segir hún. „Mér
finnst gott að ljúka við skáldsögu og
byrja strax á þeirri næstu
því þannig nýti ég það
sem ég hef lært í ferlinu
við skrif næstu bókar.
Ég hef ekki skrifað leik-
rit síðan 2011 en ljóð-
in eru stundum að taka
mig á löpp og ef ég fer
ekki að sinna þeim er
hætta á því að þau segi
mér upp.“
Skáldsagan Flæk-
ingurinn er tileinkuð
Vigdísi Grímsdóttur rit-
höfundi. „Ég hef þekkt
hana lengi. Hún skrifaði
bók um útigangskonu,
Stúlkan í skóginum,
og önnur frábær verk sem ég þakka
henni fyrir,“ segir Kristín. „Vigdís hef-
ur verið skriftarsystir mín og mjög
góður vinur síðan við vorum ungar.
Mér finnst hún eiga það inni hjá mér
að ég tileinki henni bók. Núna vil ég
reyndar alltaf tileinka öðrum bækur
mínar því mér finnst eitthvað sérlega
fallegt við það.“ n
Kristín Ómarsdóttir sendir frá sér nýja skáldsögu sem hefur titilinn Flækingurinn
Persóna byggð
á alls konar fólki
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„ Í gegnum árin hef
ég fylgst með fólki
sem lifir – á óhefðbundinn
hátt – eins og stundum
er sagt, notar eiturlyf og
hagar lífinu á annan hátt
en meirihlutinn, að því er
virðist. En eins og segir:
Ekki er allt sem sýnist.
Kristín Ómarsdóttir
„Flækingurinn er fyrst og
fremst saga þessa stráks,
Hrafns. Þótt sú persóna sé
ekki raunveruleg þá fannst
mér hún treysta mér fyrir
sér.“ Mynd Sigtryggur Ari
H
inn suðurafríski Blomkamp
varð ein helsta vonarstjarna
vísindaskáldsagna þegar
mynd hans District 9 kom
út árið 2009. Næsta mynd, Elysi-
um, var gerð fyrir talsvert meiri pen-
ing en þungur pólitískur boðskap-
ur í bland við vanhugsað plott varð
henni fjötur um fót. Spurningin var
hvort þriðja myndin næði að koma
honum aftur á beinu brautina. Mér
þykir leitt að segja að svo er ekki.
Frá upphafi virðist Chappie eiga
í mestu erfiðleikum með að ákveða
hvað hún sé að reyna að vera. Lög-
gæsluvélmennin eru eins og klippt
út úr Robocop, en síðan breyt-
ist myndin í barnamynd á borð við
Short Circuit þegar eitt þeirra fær
barnslegar tilfinningar. Þetta stend-
ur þó ekki lengi, því í neyðarleg-
asta kafla myndarinnar reynir hún
að verða einhvers konar gangsta-
grínmynd þegar Chappie setur á sig
gullkeðjur og gerist glæpon. Undir
lokin verður hún svo skrímslamynd
þegar vélmennin takast á, ann-
að þeirra alveg eins og Ed-209 úr
Robo cop og undir stjórn Hugh Jack-
man sem síðast varð sér til skamm-
ar í vélmennamynd með Real Steel.
Það er þó áhugavert að framtíðar-
sýn Robo cop, þar sem fjarstýrð vél-
menni eru notuð í hernaði, er að
einhverju leyti orðinn raunveruleiki
nú 30 árum síðar. Inn á milli fáum
við síðan heimspekilegar vanga-
veltur um vitundina, sem virðist
hægt að „dánlóda“ með því að
ýta á takka, en Blomkamp virðist
annars hafa lítinn skilning á bæði
vitund og interneti. Eins og í öllum
Hollywood-myndum lærir Chappie
síðan að eina leiðin til að komast af í
hörðum heimi sé að beita þá ofbeldi
sem eiga það skilið.
Maður hlýtur að spyrja sig að
því hvar markaðsfræðingarnir séu
þegar maður þarf á þeim að halda,
því enginn leið er að átta sig á fyr-
ir hverja myndin er hugsuð. Það
skásta sem hægt er að segja um
Chappie er að stefnuleysið gerir það
að verkum að hún er vond á undar-
legan, fremur en fyrirsjáanlegan,
hátt. En þetta boðar ekki gott fyrir
næstu mynd Blomkamp, sem hef-
ur það erfiða verkefni að lífga Alien-
seríuna við. n
Robocop fátæka mannsins
Chappie eftir nell Blomkamp
Valur gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Dómur
Chappie
iMdb 7,3
Leikstjórn og handrit: Neill Blomkamp
Leikarar: Sharlto Copley, Dev Patel, Yo-Landi
Visser, Hugh Jackman, Sigourney Weaver
120 mínútur
Áherslur Listahátíðar í Reykjavík 2015 voru kynntar í vikunni
Metsölulisti
Eymundsson
1.–7. apríl 2015
Íslenskar kiljur
1 Gleymdu stúlkurnarSara Blædel
2 KrabbaveislanHlynur Níels Grímsson
3 SyndlausViveca Sten
4 Eiturbyrlarinn ljúfiArto Passilinna
5 HaugbúiJohan Theorin
6 Britt-Marie var hérFredrik Backman
7 AfturganganJo Nesbø
8 Dansað við björninnRoslund & Thunberg
9 FlekklausSólveig Pálsdóttir
10 Mamma, pabbi, barnCarin Gerhardsen
Allar bækur
1 Viðrini veit ég mig vera
Óttar Guðmundsson
2 Gleymdu stúlkurnarSara Blædel
3 KrabbaveislanHlynur Níels Grímsson
4 SyndlausViveca Sten
5 Vertu úlfurHéðinn Unnsteinsson
6 Eiturbyrlarinn ljúfiArto Passilinna
7 HaugbúiJohan Theorin
8 Britt-Marie var hérFredrik Backman
9 Iceland In a BagÝmsir höfundar
10 AfturganganJo Nesbø