Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Qupperneq 60
Helgarblað 10.–13. apríl 201556 Fólk
Margar af stærstu og
frægustu stjörnum
Hollywood eiga sér fortíð
sem þær vildu eflaust
gleyma. Hér er listi yfir
stjörnur sem hafa brotið
af sér og þurft að sitja í
fangelsi.
Stewart
sveik Sjónvarps-
stjarnan og heimilisgyðjan
Martha Stewart var dæmd í
fimm ára fangelsi árið 2004
fyrir fjár- og innherja-
svik. Hún fékk
frelsi á ný
árið 2005.
Sveik undan skatti Söngkonan og fyrrverandi meðlim-
ur Fugees Lauryn Hill var dæmd í þriggja mánaða fangelsi árið 2013. Söngkonan var
sakfelld fyrir skattalagabrot.
Barði Pamelu Tónlist-
armaðurinn Tommy Lee eyddi sex mánuð-
um á bak við lás og slá árið 1998. Trymbillinn
var fundinn sekur um að hafa lagt hendur
á þáverandi eiginkonu sína, leikkonuna og
fyrirsætuna Pamelu Anderson.
Nýsloppinn Snipes Leikarinn Wesley Snipes var dæmdur í
þriggja ára fangelsi árið 2008 fyrir skattalagabrot. Hann fór í fangelsi árið 2010 og losnaði 2013.
Mótmælti stríði
Leikkonunni Jane Fonda var stungið í
fangelsi í Cleveland í Bandaríkjunum árið
1970. Leikkonan var handtekin eftir að hafa
haldið ræðu á mótmælasamkomu gegn
stríðinu í Víetnam. Sögusagnir um að Fonda
hafi verið tekin með eiturlyf voru fljótt
hraktar og leikkonan gisti aðeins eina nótt á
bak við lás og slá.
Smyglaði kókaíni
Árið 1978 var leikarinn Tim Allen, sem þá
var 25 ára, handtekinn fyrir smygl á kókaíni.
Allen gaf lögreglunni upp nöfn annarra sem
málinu tengdust og fékk því aðeins fimm ára
dóm í stað lífstíðarfangelsis. Síðar sagði leik-
arinn frá því að hann hefði íhugað sjálfsvíg
en í stað þess fundið gleðina á ný í gríninu.
Stjörnur sem hafa setið
á bak við lás og slá
Heppinn Bítill Paul McCartney var handtekinn með gras á flugvelli í
Japan árið 1980 á hljómleikaferðalangi með hljómsveitinni Wings. Tónlistarmaðurinn hefði
getað fengið sjö ára dóm en sat aðeins af sér níu daga. Hann hefur síðar lýst yfir hneykslun sinni
á eigin athæfi.
Handtekinn
tvisvar Milljarðamæringurinn
og einn ríkasti maður veraldar, Bill Gates,
hefur tvisvar sinnum verið handtekinn en í
bæði skiptin fyrir umferðarlagabrot.
Eyðilagði ferilinn
Fyrrverandi Baywatch-leikkonan, Yasmine
Bleeth, var handtekin fyrir akstur
undir áhrifum árið 2001. Bleeth
átti í erfiðleikum með fíkn sína
um árabil sem eyðilagði leiklist-
arferil hennar.
Dansandi
allsnakinn
Matthew McConaughey
gisti eina nótt á bak
við lás og slá á áttunda
áratug síðustu aldar
þegar lögreglan þurfti að
hafa afskipti af honum eftir
kvartanir nágranna vegna há- vaða.
Þegar lögreglan mætti á heimili stjörnunnar
fann hún McConaughey allsberan, dansandi
og spilandi á bongótrommur. Leikarinn var
handtekinn fyrir að hafa fíkniefni í fórum sín-
um og fyrir viðnám við handtöku. Síðar sagði
leikarinn frá því að hann hefði skemmt sér
vel í fangaklefanum þar sem hann fékk aðra
fanga til að syngja með sér alla nóttina.