Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 3
Fréttir 3Vikublað 16.–18. júní 2015
H E I L S U R Ú M
SUMAR
TILBOÐ
ROYAL BASE
Stök dýna 21.595 kr. - NÚ 12.957 kr.
Með botni 66.235 kr. - NÚ 39.741 kr.
(90x200 cm)
ROYAL CORINNA
Stök dýna 64.900 kr. - NÚ 51.920 kr.
(153x200 cm) Einnig til í öðrum stærðum
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR
„Þetta er alveg ótrúlegur fjöldi“
n Níu þúsund Íslendingar skrafla á netinu n Tómstundaverkefni Vilhjálms Þorsteinssonar n Verður alltaf ókeypis
„Ég held að þetta sé 30 prósent heppni
og 70 prósent útsjónarsemi,“ segir Gísli
Ásgeirsson, Íslandsmeistari í skrafli,
um galdurinn að baki skraflinu. Gísli er
jafnframt efstur – stigahæstur – af níu
þúsund leikmönnum.
Hann viðurkennir að honum leiðist það
ekki að vera efstur. Aðspurður hvort hann
sé mikill keppnismaður segir Gísli að hann
hafi verið kappsfullur og metnaðargjarn
sem barn. Hann sé þó ósammála því mati
systkina hans að hann hafi verið tapsár.
„Ég var heppinn“
Leikmenn hittast á miðvikudögum á
Café Haiti og skrafla en þangað eru allir
velkomnir. Gísli segir að þótt gaman sé að
vinna fái hann mest út úr samskiptunum
við fólkið. „Mér liggur það í léttu rúmi
hvort ég vinn eða tapa. Helst vil ég vinna
en ég fer ekkert að grenja þótt ég tapi.“
Gísli varð Íslandsmeistari í skrafli í
nóvember í fyrra, þar sem hann sigraði
alla andstæðinga sína. „Ég var heppinn
í bland,“ segir hann af hógværð. Hann
segir ánægjulegt að sjá, með tilkomu
Netskrafls, hversu margir afburða
skraflarar leynast á landinu.
Gísli er ef til vill sá leikmaður Netskrafls
sem hefur leikið flesta leiki. Þeir telja,
þegar þetta er skrifað, 972. Hann hefur
unnið 73 prósent viðureigna sinna og
fengið að jafnaði 477 stig í hverjum leik.
Hæst hefur hann fengið 176 stig fyrir eitt
orð; kisubein. Þetta er á meðal upplýs-
inga sem finna má um hvern leikmann
Netskrafls.
Ýmist er hægt að spila á tíma eða
án tímatakmarka. Gísli spilar núorðið
einungis á tíma; þar sem hvor leikmaður
hefur tíu mínútur. Hann hafi náð góðum
tökum á þeim tímaramma. Gísli er sem
stendur með 1.624 stig, 23 stigum á undan
næsta manni. Hann segist hafa hlaupið
á sig á dögunum – með 140 stiga forystu
á næsta mann – þegar hann skoraði á
alla stigahæstu keppendurna. Hann hafi
tapað fyrir mörgum þeirra og hríðfallið
niður listann. Hann segir um ástundunina
að hann haft lítið að gera í febrúar og að
þá hafi hann spilað frekar stíft. Annars
spili hann í hádegishléum og kaffitímum –
en á kvöldin skrafli hann oft frekar en að
sitja við sjónvarpið.
Gæti nýst til kennslu
Spurður um erfiðustu andstæðingana
segir Gísli, eftir svolitla umhugsun, að
Reynir Hjálmarsson sé viðsjárverðasti
andstæðingurinn á vettvangi Skraflfé-
lagsins. Á Netskraflinu séu Steinþór Sig-
urðsson (ELO: 1335), Rúna Guðfinnsdóttir
(ELO: 1387) og Una Björg Jóhannesdóttir
(ELO: 1330) skeinuhættir spilarar sem
hann lendi oft í basli með.
Gísli er afar ánægður með Netskraflið
og kann Vilhjálmi miklar þakkir fyrir. Hann
er á því að kennarar gætu nýtt Netskrafl
til kennslu. „Ég hvet móðurmálskennara
að beina nemendum sínum á skraflið.
Þetta er frábært kennslutæki ef vel er á
haldið – tíðir sagna, beygingar nafnorða
og margt fleira. Þetta er málfræðihand-
bók okkar tíma.“
„Fer ekkert að grenja þótt ég tapi“
Gísli Ásgeirsson er Íslandsmeistari í skrafli og efsti maður Netskrafls
Falsaðir evruseðlar
Fólk beðið um að skoða vel peningaseðla í viðskiptum
L
ögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu greinir frá því að nokkuð
sé um falsaða 100 evru seðla í
umferð hér. Er þeim tilmælum
beint til fólks að skoða vel reiðufé
sem notað er í viðskiptum. Jafnframt
er vísað á leiðbeiningar um hvern-
ig skoða megi evruseðla og ganga úr
skugga um að þeir séu ófalsaðir.
„Borið hefur á tilkynningum um
falsaða 100 evru seðla og því beinum
við því til fólks að skoða vel reiðufé
sem notað er í viðskiptum. Þeir sem
fara mikið með erlenda seðla ættu
því að kynna sér vel hvers konar ör-
yggisatriði er að finna í slíkum seðl-
um til að minnka líkurnar á að taka
við slíkum seðlum fyrir misgáning.
Þetta er t.d. hægt að gera með sérs-
tökum pennum og útfjólubláu ljósi,
sem ætti e.t.v. að vera til í verslun-
um,“ segir lögreglan og segir best að
hafa samband við 112 verði fólk vart
við falsaða seðla.
Á vef evrópska seðlabankans
koma fram upplýsingar um hvern-
ig megi skoða evruseðla til að meta
hvort þeir séu falsaðir. n agustb@dv.is
Þrjár konur gengu í skrokk á konu
Rifu í hár konunnar, lömdu og spörkuðu
H
æstiréttur hefur dæmt þrjár
ungar konu fyrir að hafa í
sameiningu, aðfaranótt 28.
mars 2013, rifið í hár konu
á kvennaklósetti á skemmtistað í
Reykjavík. Tvær af konunum rifu
síðan í hár brotaþolans og slógu og
spörkuðu í líkama hennar og höfuð
fyrir utan skemmtistaðinn.
Refsing kvennanna tveggja sem
einnig réðust á brotaþola utan við
skemmtistaðinn var ákveðin fang-
elsi í þrjá mánuði. Fullnustu henn-
ar var frestað skilorðsbundið í tvö
ár. Var þeim gert að greiða, sameig-
inlega, hálfa milljón króna í skaða-
bætur til brotaþola.
Hins vegar þótti rétt að fresta
ákvörðun refsingar þriðju konunn-
ar, skilorðsbundið, í tvö ár þar sem
ekki var annað ráðið en að atlaga
hennar á kvennaklósettinu hafi
verið unnin í átökum við brota-
þola. Var hún sýknuð af bótakröfu á
hendur sér. n
birna@dv.is
Hæstiréttur Íslands
Þrjár konur veittust að konu á
skemmtistað í Reykjavík.