Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 19
Skrýtið 19Vikublað 16.–18. júní 2015 Minnistöflur www.birkiaska.is Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel eldri borgurum, lesblindum og nemendum í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Bodyflex Strong Bodyflex Strong mýkir liðamót og dregur úr verkjum í þeim og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.  Birkilaufstöflur Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á vökva- jafnvægi bæði líkama og húðar og örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum, losar vatn úr líkamanum og dregur úr bólgum. Evonia færir hárrótinni næringu og styrk til þess að efla hárvöxt. Evonia er hlaðin bætiefnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Bætiefni ársins í Finnlandi 2012. Evonia Flóðhestar á flótta n Dýrin sem stungu af úr dýragörðunum n Páfugl spókar sig í New York  Flóðhestur á flótta Þessi flóðhestur tölti niður götuna í Tbilisi í Georgíu um helgina. Mikil flóð hafa verið í Tbilisi og fimm hafa látist og margir eru týndir og jafnvel taldir af eftir þau. Þá sluppu dýr úr dýragarðinum og sáust á vappi um borgina, þar á meðal tígrisdýr, ljón, bjarndýr og úlfar. Talið er að aurinn hafi skemmt búrin. Búið er að fanga hluta dýranna, en önnur drápust í flóðinu. Þá hefur þurft að aflífa sum þeirra.  Á rúntinum Þessi fílsungi stakk af úr dýragarði á Írlandi fyrir nokkrum árum. Hann fannst á bílastæði versl- unarmiðstöðvar. Hann reyndist hafa flúið eftir að hafa neitað að fara í bað í dýragarðinum.  Spókaði sig í New York Þessi fallegi páfugl bjó í dýragarði New York-borgar þegar hann lagði á flótta. Hann fannst á fimmtu breiðgötu borgarinnar á gluggasyllu. Dýragarð- urinn sagðist telja að hann myndi snúa aftur, en ef það gerðist ekki fljótlega yrði starfsfólk sent eftir honum.  Þyrstur Flóðhesturinn Nikica fær sér vatnssopa úr sundlaug við Plavnica-hótelið í Svartfjallalandi. Hann flúði frá dýragarði eftir mikil flóð í Svartfjallalandi. Hann var hinn rólegasti og taldi yfirmaður dýragarðsins að hann væri ekki hættulegur öðrum. Hann er þó þriðja stærsta spendýrið á landi í heiminum og flóðhestar geta verið bæðið árásargjarnir og hættulegir.  Deyfður tígri Þetta tígrisdýr lét deyfilyfsskot ekki stöðva sig á ferðalagi sínu um lysti- garðinn í Guwahati á Indlandi. Hann hafði í slagtogi með öðrum stungið af úr dýragarði þar í borginni árið 2010. Fyrir vikið varð heljarinnar uppnám í dýragarðinum en tíu þúsund gestir voru þar saman komnir. Síðar höfðu dýragarðsverðir náð þeim báðum, en þó eftir nokkurn eltingaleik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.