Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 8
8 Fréttir M isjafnt er hvað verð- ur um þá ósóttu vinn- inga sem safnast upp á hverju ári í hinum ýmsu happdrættum hérlend- is. Flestir vinningshafar innheimta sinn vinning um leið og kostur er en sumir sækja aldrei vinninginn sinn og er þá misjafnt hvað verð- ur um upphæðina. Erfitt getur ver- ið að hafa uppi á þeim sem detta í lukkupottinn. Hans Júlíus Þórðarson, rekstr- arstjóri í flokkahappdrætti Há- skóla Íslands, segir að þrátt fyrir að miðaeigendurnir séu allir skráð- ir og hægt sé að hafa uppi á þeim í gegnum Þjóðskrá sé eitthvað um að það náist hreinlega ekki í fólk. „Við sendum öllum bréf sem fá vinninga og einhverjir fá þar að auki sent SMS eða tölvupóst um vinningsnúmerin sín. Við hringj- um í alla sem fá milljón eða meira,“ segir Hans. Leita vinningshafa frá 2004 Samkvæmt lögum ber þeim að geyma vinninga í eitt ár eftir út- drátt en Happdrætti Háskólans gerir gott betur en það. Elsti vinn- ingurinn sem enn á eftir að koma þaðan út er frá árinu 2004. „Þetta er fólk sem er erlendis og við erum ekki með neinar upplýsingar um. Þetta er fjögur þúsund kall.“ Erfitt að ná í Íslendinga í Noregi Eftir að bankahrunið varð og margir fluttu til Noregs varð erf- iðara að ná í íslenska vinningshafa þar í landi. „Þetta er voðalega mik- ið þannig að fólk flytur og við erum ekki með símanúmer eða net- fang. Það er langalgengasta ástæð- an.“ Facebook hefur einnig verið notað til að reyna að hafa uppi á vinningshöfum. Um 90 prósent af ógreiddum vinningum eru 5.000 kr. vinningar. „Lögin gera ráð fyrir einu ári en við höfum verið að þráast við að elta fólk uppi. Okkur er illa við að eyða þessu,“ bætir Hans við og býst við því að upphæðirnar sem eft- ir standa séu tekjufærðar. Þær séu aftur á móti ekki háar. Einn og hálfur milljarður í tekjur Um 100 þúsund miðar, eða miða- gildi, eru endurnýjaðir í hverjum mánuði í happdrættinu. Hæsti vinningurinn á þessu ári var í milljóna veltu þegar 30 milljónir króna gengu út í mars. Tekjur af Happdrætti Háskól- ans eru um einn og hálfur milljarð- ur króna á ári. Alls fara 70 prósent af tekjunum aftur í vinninga og í fyrra var það rétt um einn milljarð- ur króna. Búist er við svipaðri upp- hæð í ár. Gamlar Happaþrennur í skúffunni Hlutfall ósóttra vinninga af Happa- þrennunni, Launamiðanum og fleiri skafmiðum úr þeim upplög- um sem hætt er að selja nemur 5,6 prósentum. Líklega verða þessar upphæðir tekjufærðar en það hef- ur ekki enn verið gert. Um nokkrar milljónir er að ræða. Að sögn Steinunnar Björns- dóttur, rekstrarstjóra Happa- þrennunnar, er ekki lokað á það þótt fólk komi með 10 til 15 ára gamla Happaþrennumiða til að ná í vinninginn sinn. „Við erum stundum að greiða út gamla miða fyrir fólk sem er kannski að flytja og er að finna þá í skúffunni hjá sér,“ segir hún. Níu hafa unnið Launamiðann á 15 árum Síðan Launamiðinn fór fyrst í sölu hjá Happdrætti Háskóla Íslands árið 2000 hafa vinningshafarnir verið níu talsins. Hæsti vinningur- inn er 100 þúsund krónur á mánuði í 15 ár en miðinn kostar 300 krón- ur. Fyrst þegar Launamiðinn kom á markað var þessi vinningur 100 þúsund krónur á mánuði í 10 ár og kostaði miðinn þá 200 krónur. Fimmta upplag miðans er núna í umferð en 500 þúsund miðar eru í hverju þeirra. Þegar núverandi upplag klárast hafa því samanlagt selst 2,5 milljónir Launamiða. Líkurnar á hæsta vinningnum eru einn á móti 250 þúsund og var Launamiðinn síðast greidd- ur út í mars. Steinunn segir að viðtökurnar við honum hafi ver- ið mjög góðar. „Fólki finnst þetta mjög spennandi vinningur. Fyrst þegar þetta kom á markaðinn þá rauk þetta út.“ 720 þúsund skafmiðar seldust Á síðasta ári seldust rétt und- ir 100 þúsund Launamiðar. Rúm- lega 300 þúsund miðar seldust af Happaþrennunni, sem kostar 100 krónur, og alls seldust 270 þúsund skafmiðar sem kosta 200 krónur á síðasta ári. Jólamiðinn um síðustu jól seldist jafnframt í 40 þúsund eintökum. Samanlagt seldi Happ- drætti Háskólans um 720 þúsund skafmiða í fyrra. Bóndi nennti ekki að ná í þrjár milljónir Hjá Happdrætti DAS er auðvelt nú til dags að hafa uppi á vinningshöf- um. Bæði eru heimilisföng, net- föng og símanúmer til taks. Ef fólk kemur ekki innan tveggja mánaða fær það bréf sent heim til sín. Sigurður Ágúst Sigurðsson, for- stjóri Happdrætti DAS, man eftir einu atviki fyrir um tveimur ára- tugum þegar sækja Vikublað 16.–18. júní 2015 Alhliða veisluþjónusta Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is Eingöngu fyrsta flokks hráefni Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir Gerðu daginn eftirminnilegan Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming Hvað verður um ósóttu vinningana? n Misjafnt er hvað verður um vinninga sem ekki er vitjað í hinum ýmsu happdrættum „Það var einn fyrir austan sem fékk stóran vinning sem sótti hann ekki fyrr en eftir ár. Þá var ég búinn að hringja tvisvar í umboðsaðilann. Þetta var bóndi sem átti bara ekkert erindi í bæinn en hann skilaði sér fyrir rest. Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Happdrætti DAS Steinunn Björnsdóttir og Hans Júlíus Þórðar- son Tekjur af Happdrætti Háskóla Íslands eru um einn og hálfur milljarður króna á ári. Yfir 700 þúsund skafmiðar seldust í fyrra. MyND SiGtryGGur Ari Freyr Bjarnason freyr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.