Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 18
Vikublað 16.–18. júní 201518 Fréttir Erlent U m Haleema var aðeins sext- án ára gömul þegar her- menn Boko Haram rændu henni með ofbeldi. Hún hafði reynt að flýja þegar Boko Haram-liðar mættu inn í þorp- ið hennar í Nígeríu og kveiktu í því. Hún og þrjár vinkonur hennar voru teknar höndum. Fyrstu mánuðina í varðhaldi þeirra var hún neydd í hjónaband og beitt miklu ofbeldi af hendi Boko Haram-liða. Aðstæð- ur hennar voru verri en nokkurn gæti grunað. Hún var neydd til þess að hlýða og þóknast nýjum „eig- inmanni“ sínum. Eftir sex mánuði tókst henni að flýja. En þegar heim var komið, aftur til fjölskyldu sinn- ar og vina, var hún barnshafandi. Hún hélt að sér yrði tekið fagnandi, en sú var ekki raunin. Endurkoman í samfélagið hefur verið mjög erfið og Haleema hefur í raun verið útskúfað og hún fordæmd. Neydd í þrældóm Börn sem hafa verið numin á brott af Boko Haram-hryðjuverkasam- tökunum hafa verið hneppt í þræl- dóm, þau eru notuð sem hermenn og látin vera á varðbergi eftir óvin- um. Þau eru látin elda og þjóna meðlimum og ungar stúlkur eru neyddar í hjónaband, til vinnu og í kynlífsþrælkun þar sem þeim er miskunnarlaust nauðgað. Um er að ræða hryðjuverkasamtök herskárra múslima sem vilja stofna íslamskt Nígeríuríki. Það hafa meðlimir sam- takanna gert með því að skipuleggja aftökur, sprengjuárásir og nú mann- rán. Þúsundir hafa látist í aðgerðum þessara hryðjuverkasamtaka. Ætl- un samtakanna er að steypa núver- andi stjórnvöldum í Nígeríu af stóli og koma á íslömskum bókstafslög- um og reglum. Reyndi að flýja Um sagði CNN sögu sína á dögun- um. Hún segir að í fangavistinni hafi hún séð og orðið fyrir miklu ofbeldi. Hún sá Boko Haram-liða myrða mis- kunnarlaust konur, menn og börn af minnsta tilefni. Hún hlýddi þeim og þjónaði eiginmanni sínum. Hún seg- ist hafa fylgst með og beðið, beðið eftir tækifærinu til þess að flýja. Eft- ir nokkra mánuði tókst það. „Ég hafði skipulagt þetta frá upphafi. Það komu þarna tvær vikur þar sem mað- urinn minn var í burtu. Ég reyndi að flýja en verðirnir náðu mér og lömdu mig,“ segir hún. En með tímanum breyttist kerfið og verðirnir urðu kærulausari. Um gat flúið. Hún seg- ist hafa gengið í langan tíma áður en hún komst heim. Hún hafði þá verið í varðhaldi þeirra í tæpt ár. Ótrúlegt að lifa af „Þeir sem lenda í Boko Haram deyja yfirleitt,“ segir móðir Um sem segist hafa óttast það versta. „Þeir rændu stjúpdóttur minni og dóttur,“ seg- ir hún. Þegar heim var komið fékk Um þær upplýsingar að faðir hennar hefði fallið fyrir hendi Boko Haram. Hún áttaði sig fljótlega á því að hún væri barnshafandi. En þrátt fyrir heimkomuna finnur hún ekki fyrir öryggi. Hún segist hrædd við menn- ina í þorpinu. „Fólkið í þorpinu hafnar mér vegna barnsins. Sumir segja að þeir væru hamingjusamari ef ég væri dáin. Margir segja að ég ætti að fara í fóstureyðingu,“ segir hún, en segir það ekki vera í stöðunni. Hún er nú komin sjö mánuði á leið. Mennirnir í þorpinu segja að þeir geti ekki leyft Boko Haram-liðum að búa í þorp- inu. Þeir segja barnið vera hluta af hryðjuverkasamtökunum og hafa hótað að myrða hana – og barnið. Móðir Um stendur með henni og styður hana með ráðum og dáð. „Við höfum heyrt af ungum konum sem dóu eftir fóstureyðingu. Þá dóu bæði móðir og barn,“ segir hún og bætir því við að barnið og Um séu í Guðs höndum. Hún treysti honum til að tryggja öryggi þeirra. Ekki ein Um Halleema er ekki ein í sömu stöðu. Alls 214 barnshafandi konur búa í flóttamannabúðum í Nígeríu og hafa í engin hús að venda. Þær eru þó líklega mun fleiri, bæði konur og stúlkur, sem hafa verið frelsaðar úr hrammi Boko Haram, en einnig þær sem enn eru í haldi þeirra. Frétta- maður CNN greinir frá því að rætt hafi verið við mennina sem sagðir eru hafa hótað Um. Þeir neituðu, en þegar slökkt hafði verið á upptöku- tækjum sögðust þeir ekki trúa því að hún hefði verið neydd í hjónaband. Þeir teldu að hún og barnið henn- ar yrðu alltaf litin hornauga. Leið- togi mannanna neitaði þó að segja hvort eða hvernig þeir myndu bregð- ast við. Sjálf segir Um að frelsissviptingin og flóttinn hafi breytt henni. Hún ætlar að tryggja velferð barnsins fyrst og fremst. Hún hafi styrkinn til þess að gera allt sem í hennar valdi stend- ur til að framfylgja því. n Gæði og góð þjónusta í 80 ár! glæsilegt úrval „Fólkið í þorpinu hafnar mér vegna barnsins“ n Flúði Boko Haram en er fordæmd heima fyrir n Ófrísk eftir að hafa verið neydd í hjónaband„Sumir segja að þeir væru hamingju- samari ef ég væri dáin Á flótta „Þeir sem lenda í Boko Haram deyja yfirleitt,“ segir móðir Um, sem segist hafa óttast það versta. Um vildi ekki koma fram undir sínu rétta nafni Á myndinni sjást flóttakonur sem eru að flytja með allar sínar eigur milli staða af ótta við Boko Haram. MyNdiN ER úR safNi REUtERs Ásta sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.