Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 27
Lífsstíll 27Vikublað 16.–18. júní 2015 E inhverra hluta vegna er mun meira um gleðskap yfir sum- artímann, heldur en aðra tíma ársins. Enda mun skemmti- legra að klæða sig upp þá og njóta í hlýju veðri. Á sumrin safnast fólk saman í partí og annan gleðskap og í framhaldinu af því þyrpist það ofan í bæ til að dansa og fá sér ör- lítið í tána. Það er mikilvægt að njóta í hófi líka. Yfirleitt er áfengi við hönd og eitthvað gotterí á boðstólum. Þar sem ég er yfirleitt í hollustunni, er ég orðin ansi sjóuð í ýmiss konar bætt- um útgáfum af gotteríi og kýs oft- ar en ekki að vera edrú. Það er svo þægilegt að geta keyrt heim og verið hraustur daginn eftir. Ég fór í afmæli til vinkonu minnar um síðustu helgi og fannst tilvalið að deila með ykkur betri kostum í partíið. Amino daiquiri Þessi snilld gerir það að verkum að ég get tekið þátt í kokteilstemningunni í partíum og fæ í leiðinni aukna orku til þess að dansa frá mér allt vit niðri í bæ. Ég elska að dansa og er yfirleitt mun duglegri í dansinum en fólkið sem er í glasi. n Það sem þú þarft: 2–3 skeiðar af Am- ino Energy Fruit Fusion-dufti Lúka af jarðarberjum Vatn og klaki (því meiri klaka, því þykkari er blandan) n Aðferð: Best er að byrja á að setja vatnið og klakana ofan í glasið, því næst jarðarberin. Að lokum setur þú duftið út í eftir smekk, mér finnst gott að setja þrjár skeiðar, hrista og svo beint í blandarann. Svo er meiri stemning ef að blandan er sett í kok- teilglas eða fallega krús þegar hún er tilbúin. Hollustuvædd eðla Nú hefur þessi tiltekni réttur slegið í gegn síðustu mánuði. Ég hef gert þessa ídýfu síðan ég man eftir mér, enda mikið fyrir allt sem er með mexíkósku ívafi. Það fór alveg fram- hjá mér hvernig og af hverju dýf- an fékk allt í einu nafnið eðla, en ég leyfi ídýfunni að bera það heiti hér í greininni. Upprunalega hráefnið er frekar fituríkt í miklu magni og ef ég tala fyrir sjálfa mig er erfitt að hætta þegar maður byrjar að dippa bless- aða snakkinu ofan í. Þess vegna kýs ég að nota örlítið hollari útgáfu af henni. n Það sem þú þarft: Sýrður rjómi 5% Kotasæla (getur líka sleppt henni og notað einungis sýrða rjómann) Salsasósa að eigin vali 17% ostur (sá fituminnsti á markaðnum í dag) n Aðferð: Þú byrjar á því að hræra saman kotasæluna og sýrða rjómann, ef þú kýst að nota bæði hráefnin. Blöndunni dreifir þú vel í alla kanta á eldföstu móti og dreif- ir svo salsasósunni yfir það. Að lok- um er osturinn settur yfir eftir smekk og inn í ofninn á ca 180 gráður. Ég tek aldrei neinn tíma, heldur fylgist með og leyfi ostinum að bráðna létti- lega, ekki of mikið þá verður hann of harður. Þegar þú telur eðluna vera tilbúna er næsta skref að bera hana á borð með tortillavefjusnakkinu að sjálfsögðu. Tortillavefjusnakk Mér finnst tortillavefjur einstak- lega góðar, sérstaklega þegar þær eru í Burrito. Ingibjörg, sem ég vinn með, fór í matarboð til vinkonu sinn- ar þegar hún dvaldi hjá henni í Sví- þjóð um daginn og hætti ekki að tala um snakk sem hún smakkaði þar og benti mér á að prófa. Þessi uppskrift er algjör snilld og hentar bæði sem snakk á borðum, eða jafnvel sem meðlæti með mat. Svo er það fljót- legt og virkilega bragðgott. n Það sem þú þarft: Heilhveiti- tortillavefjur, allt í lagi að nota venju- legar líka. Fituminna eldunarsprey Krydd, ég er mjög einföld og nota salt og pipar á allt. Það má hins vegar leika sér aðeins með bragðlaukana og setja til dæmis chili eða annað slíkt. Algjörlega eftir smekk. n Aðferð: Sniðugast er að láta vefjurnar liggja allar saman og skera þær niður til þess að auðvelda vinnuna. Ég skar mínar niður í litla þríhyrninga og vildi hafa flögurn- ar frekar stórar svo það kæmist nóg af eðlu á stykkið. Þeim raðar þú á bökunarskúffu með bökunarpappír, þú skalt raða þeim þannig að engin liggur ofan á annarri. Betra er að nota fleiri en eina skúffu frekar en að troða. Eftir það úðar þú eldunar- spreyinu og kryddar vefjurnar eft- ir eigin smekk. Þá er lokaskrefið að setja þær í ofninn með blæstri á ca 180 gráður. Ég bakaði mínar þangað til þær voru orðnar svolítið brúnar á endun- um, en mjúkar fyrir miðju. Það er svolítið smekksatriði hvernig má baka þær, því lengur því stökkari eru þær. Að lokum er að njóta með eðlunni. n Gangið hægt um gleðinnar dyr! Þangað til næst, Ale ræktardurgur Betri kostir í partíið Alexandra Sif Nikulásdóttir ale_sif@hotmail.com Vinkonur Ég og Lilja vinkona mín í afmælinu hennar um daginn. Ég er með Amino daiquiri í krúttlegri krús. Krúsir Ég er svo skotin í þessum krúsum. Búin að leita að þeim svo lengi og fann þær í Tiger á 300 krónur. Hollari eðla Það er einfalt að útbúa hina vinsælu eðlu á aðeins hollari hátt en venjulega. Amino Daiquiri Einfaldur og óá- fengur kokteill. n Hollustuvædd eðla n Tortillasnakkflögur n Amino daiquiri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.