Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 6
6 Fréttir Vikublað 16.–18. júní 2015 S í m i: 567 4 8 4 0 • Fu n a h ö fð i 1 • 110 R v k . b i l o@b i l o. i s • w w w. b i l o. i s Skoðaðu heimasíðuna okkar ww w. bi lo .is Ef þú er t í b ílahugleiðingum? ... með okkur! FRÁ KR. 48.900 Bjóða peningagreiðslur í stað fasteignaskatta Þýska orkufyrirtækið EAB New Energy vill reisa vindorkuver í nokkrum sveitarfélögum hér á landi F ulltrúar þýska orkufyrirtæk- isins EAB New Energy, sem vill reisa fjóra til sex vindorku- garða hér á landi á næstu tíu árum, hafa boðið nokkrum sveitarfélögum peningagreiðslur og stuðning eins og uppbyggingu leik- skólastarfs í ljósi þess að þau fá engar beinar tekjur af vindmyllunum þar sem mannvirkin eru ekki metin fast- eignamati hér á landi. Fyrirtækið þyrfti því ekki að greiða neina fast- eignaskatta af mannvirkjunum en hefur boðið sveitarfélögunum að undirrita viljayfirlýsingar sem inni- halda meðal annars hugmyndir að því hvernig þau geti hagnast á vind- myllunum. „Þarna eru dæmi sem við tökum fram um hvernig þetta er gert annars staðar enda er ekki rukkaður fast- eignaskattur af þessum mannvirkj- um í öðrum löndum þar sem EAB er með starfsemi. [...] Það er ekki víst að allt þetta sé löglegt, og við vitum það ekki ennþá, heldur erum við einung- is að velta upp hugmyndum um hvað hefur verið gert annars staðar og hvað hægt er að gera. Okkur sýnist það vera lögleg leið að bjóða sveitar- félögunum leigutekjur af lóðum eða að eignast hluti í orkugörðunum,“ segir Maurice Zschirp, forstjóri EAB Nýrrar Orku ehf., íslensks dótturfé- lags EAB. Eingöngu óbeinar tekjur Sveitarfélögunum Grindavík, Norðurþingi, Rangárþingi ytra og Reykjanesbæ hefur öllum borist beiðni fulltrúa EAB um viðræð- ur og undirritun viljayfirlýsinga um samstarf á sviði vindorkunýtingar. Rangárþing ytra hefur undirritað viljayfirlýsingu við EAB og einnig fyrirtækið Fallorka á Akureyri vegna áforma um vindorkugarð í Eyja- firði. Maurice segir fyrirtækið hafa sent sömu viljayfirlýsingu á öll fjög- ur sveitarfélögin fyrr á þessu ári en að búið sé að bæta við klausu þar sem þeim sé heimilt að koma með sínar eigin hugmyndir að því hvernig þau geti hagnast á mannvirkjunum. Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir viljayfirlýsinguna sem sveitarfélaginu barst ekki hafa innihaldið upplýsingar um hversu miklir fjármunir gætu runnið til sveitarfélagsins frá EAB fari svo að framkvæmdir hefjist. „Við höfum fjallað um umsókn fyrirtækisins um viðræður við okkur í skipulagsnefnd og bæjarráði en það eru skiptar skoðanir á þessu. Þau hafa kynnt okkur áform um vindorkugarð en við gerðum strax athugasemdir og gerðum þeim grein fyrir því að það væri best að biðja um að vindmyll- ur yrðu metnar fasteignamati hér á landi og skili þannig sveitarfélög- um fasteignasköttum,“ segir Róbert. Hann bætir við að fulltrúum EAB hafi verið boðið að halda íbúafund um verkefnið. „Þau þáðu það boð og hyggjast halda slíkan fund en það verður ör- ugglega ekki fyrr en eftir sumarleyfi,“ segir Róbert og svarar aðspurður að svæði vestur af Reykjanesi, í kringum Sílingarfell, komi helst til greina. „Þá myndi fyrirtækið kaupa eða leigja landið af ríkinu. En að óbreyttu fengi sveitarfélagið ekki neinar bein- ar tekjur heldur eingöngu mögu- lega óbeinar tekjur af þeirri atvinnu sem vindorkuverkin gætu mögulega skapað.“ Gætu framleitt 100 MW EAB New Energy er þýskt einkahluta- félag sem hefur byggt samtals 231 vindorkuverk í Þýskalandi, Króatíu, Tékklandi og Póllandi. Fyrirtækja- samstæðan hefur einnig komið að framleiðslu rafmagns með vindorku í Kanada, Brasilíu, Úrúgvæ og Argent- ínu. Dótturfélagið EAB Ný Orka mun hafa umsjón með uppbyggingu vind- orkugarða og starfsemi fyrirtækisins hér á landi. Áformað er að reisa garða sem framleiði frá 20 og upp 100 MW en algeng framleiðslugeta hverrar myllu er 2,3 til 3 MW. Verkefnið hef- ur verið í undirbúningi síðastliðin tvö ár. Ef af áformum fyrirtækisins verð- ur þarf fyrst að reisa mælingamöstur, sem yrðu 60 til 80 metra há, þar sem veðuraðstæður yrðu mældar í allt að eitt ár. n „það eru skiptar skoðanir á þessu Grindavík Fulltrúum EAB hefur verið boðið að halda íbúafund í Grindavík vegna áforma um vindorkugarð. Þeir héldu íbúafund á Húsavík í síðustu viku þar sem verkefnið var kynnt og spurningum bæjarbúa svarað. Bæjarstjóri Grindavíkur Fulltrúar EAB boðuðu til íbúafundar í síðustu viku þar sem áform þeirra um vindorkugarð í Norðurþingi voru kynnt og spurningum svarað. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Funduðu án atbeina Illuga Hafði ekki milligöngu um fundi forseta Íslands og Orku Energy I llugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, átti ekki milligöngu um að einhver þeirra tíu funda sem Ólafur Ragn- ar Grímsson, forseti Íslands, hefur átt með forsvarsmönnum Orku Energy, nú Arctic Green Energy Corporation (AGEC), yrði haldinn. Menntamála- ráðherra var ekki viðstaddur fund- ina. Þetta kemur fram í svari forseta- embættisins við fyrirspurn DV. Kom- ið hefur fram að forseti Íslands hef- ur hitt stjórnendur fyrirtækisins tíu sinnum á síðustu þremur árum. Samkvæmt vefsíðu embættisins átti Ólafur síðast fund með fyrirtækinu í byrjun janúar á þessu ári þegar hann hitti Hauk Harðarson, stjórnarfor- mann og einn eigenda fyrirtækisins. Ræddu þeir þá uppbyggingu hita- veitna í Kína og fleiri löndum Asíu. AGEC sérhæfir sig í uppbyggingu og rekstri á hitaveitum og jarðhita- virkjunum í Asíu. Samskipti Illuga og fyrirtækisins komust í hámæli í apríl síðastliðnum eftir að fjölmiðl- ar greindu frá þátttöku nokkurra full- trúa fyrirtækisins í opinberri heim- sókn menntamálaráðherrans til Kína. Síðar kom í ljós að Illugi seldi Hauki íbúð sína og leigir hana nú af stjórnarformanni orkufyrirtækisins. Eins og kom fram í síðasta helgar- blaði DV þá urðu nýverið breytingar á eignarhaldi fyrirtækisins og var nöfnum íslenskra dótturfélaga þess í kjölfarið breytt. Samkvæmt svari fyr- irtækisins við fyrirspurn DV var fjöl- miðlaumfjöllunin um tengsl þess við Illuga ekki ástæða þess að farið var í nafnabreytingarnar. n haraldur@dv.is Tíu fundir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur hitt fulltrúa Orku Energy tíu sinnum. Illugi Gunnarsson menntamálaráð- herra var ekki viðstaddur fundina. Eldur í Skeifunni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á mánudag vegna elds í Skeifunni. Eldurinn logaði í húsnæði Bílaleigu Akureyrar í Skeifunni á efri hæð. Húsnæðið sem um ræðir er Skeifan 9 en iðnaðarmenn voru við vinnu á þakinu þegar eldur- inn kom upp og er hann sagður tengjast þeirri vinnu. Engan sak- aði og gekk slökkvistarf greiðlega. Þrjú bakarí voru sektuð Neytendastofa hefur í kjölfar eftirlits með verðmerkingum í bakaríum á höfuðborgarsvæð- inu sektað þrjú fyrirtæki vegna ástands verðmerkinga. Verðmerkingar voru skoð- aðar í fjölda bakaría í febrúar og svo aftur í apríl á þessu ári. Í seinni eftirlitsferðinni höfðu verðmerkingarnar batnað um- talsvert, að því er sagði á vef Neytendastofu. Nokkur bakarí höfðu þó ekki sinnt tilmælum Neyt- endastofu með fullnægjandi hætti og ákvað Neytendastofa að leggja stjórnvaldssektir á þau. Fyrirtækin eru Sveins- bakarí, Fjarðarbakarí og Bak- arameistarinn vegna verslana í Glæsibæ, Húsgagnahöllinni og Suðurveri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.