Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Side 11
Fréttir 11Vikublað 16.–18. júní 2015
LAKKVÖRN
+GLJÁI
Sterk og
endingargóð
gljávörn!
Made in GerMany
Since 1950
Hefur hlotið
frábæra dóma!
Berbrjósta byltingar-
sinnar brostu til sólar
n Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli um síðustu helgi
n Skipuleggjendur hæstánægðir n Segja meira vera í vændum
M
argt var um manninn á
samstöðufundi kvenna
um síðustu helgi sem
bar yfirskriftina „Frels-
um geirvörtuna – ber-
brystingar sameinumst“. „Þetta var
nú bara draumi líkast og fór fram
úr okkar björtustu vonum,“ segir
Karen Björk Eyþórsdóttir, einn að-
standenda viðburðarins.
Dagskráin hófst á Austurvelli þar
sem ræður voru haldnar og tónlist
spiluð en hljómsveitirnar Reykja-
víkurdætur, Úlfur Úlfur, Konur
rokka og Lommi Lomm stigu með-
al annarra á svið við mikinn fögnuð
viðstaddra. Að því loknu fjölmenntu
margir í Laugardalslaug þar sem
konur og karlar syntu og sóluðu sig
ber að ofan. Dagskránni lauk síðan
á skemmtistaðnum Húrra þar sem
dansað var fram á rauða nótt.
Viðburðurinn draumi líkastur
Karen segist ekki vita hve margir
hafi mætt á samstöðufundinn en
hápunkturinn hafi verið um tvö
leytið þegar Austurvöllur hafi ver-
ið alveg pakkaður: „Bæði strákar og
stelpur, fullt af brjóstum.“
Aðspurð um hvernig sund-
laugarferðin hafi heppnast segir
hún: „Það var slatti af fólki. Ég kom
reyndar svolítið seint en fór ofan í
berbjósta og það var bara kúl.“
Hún segir fólk ekki hafa starað á
berbrjósta konurnar í sundi. „Ég sat
í pottinum heillengi og fannst það
fínt. Annars er auðvitað eðlilegt að
fólk stari fyrst enda erum við að
biðja fólk um að breyta algjörlega
um hugarfar og fáir eru vanir ber-
um kvenmannsbrjóstum í sundi.“
Karen segir fólk almennt hafa
borið mikla virðingu fyrir málefn-
inu og þær hvorki orðið varar við
leiðinlegar athugasemdir né nei-
kvæðni. „Það var nú reyndar eitt-
hvað um steggjanir og gæsanir
þegar við vorum á Austurvelli. En
engin leiðindi, bara smá fyllerí á
fólki.“
Berbrjósta konur verði normið
Guðbjörg Ríkey Thoroddsen
Hauksdóttir, annar skipuleggjenda,
tekur í sama streng:„,Nei, fólk var
bara almennt jákvætt í okkar garð
og engin leiðindi.“ Hún segist jafn-
framt vera mjög ánægð með við-
burðinn og hve margir mættu.
Aðspurð um framhaldið segir
Guðbjörg: „Það er spurning hvort
við höldum aðra tónleika eða eitt-
hvað svoleiðis. Annars er markmið-
ið auðvitað bara að konur beri sig
að ofan á góðviðrisdögum í sum-
ar ef þær vilja það.“ Það sé það sem
skipti máli. „Það er klárlega meira á
leiðinni,“ segir Karen. Hún segist þó
ekki geta upplýst neitt frekar hvað
það sé þessa stundina. „Annars
vonar maður auðvitað bara að ber-
brjósta konur verði normið.“ n
Birna Guðmundsdóttir
birna@dv.is
Brjóstin beruð
Ungar konur
beruðu brjóstin á
Austurvelli.
Mynd SiGtryGGur Ari
Skipuleggjendur viðburðarins Berbrystingar sameinuðust á Austurvelli.Mynd SiGtryGGur Ari
Kjarnakvendi
Byltingar-
sinnar búa til
kandífloss.
Mynd SiGtryGGur Ari
uppi á sviði Ræðuhöld á Austurvelli. Mynd SiGtryGGur Ari
Sólbað Konur beruðu brjóstin og sóluðu sig. Mynd SiGtryGGur Ari