Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Qupperneq 14
14 Fréttir Vikublað 16.–18. júní 2015
Bílaleigurnar velta um
30 milljörðum í sumar
n Í flotanum eru rúmlega 17 þúsund farartæki n 300 milljónir daglega í kassann
S
amkvæmt grófum útreikn-
ingum DV veltir bílaleigu-
iðnaðurinn á Íslandi á bil-
inu 230 til 327 milljónum á
dag yfir sumartímann. Skráð-
ir bílaleigubílar eru í júní 2015 alls
17.260 talsins en þar af eru 16.358 í
umferð. Mikill vöxtur er í útleigu hús-
bíla og fjölmargar leigur sem sérhæfa
sig á þeim markaði hafa sprottið upp.
Fjölgun um 16,3% milli ára
Alls eru 17.260 bifreiðar skráðar sem
bílaleigubifreiðar í júní 2015. Þar af
eru 16.358 í umferð, eða á númer-
um, en 902 bifreiðar eru með innlögð
númer. Þetta kemur fram í skriflegu
svari frá Samgöngustofu við fyrir-
spurn DV. Samkvæmt nýlegri skýrslu
Íslandsbanka um íslenska ferðaþjón-
ustu voru leyfi til bílaleigureksturs
alls 151 talsins árið 2014. Þar af voru
um 80 til 90 slík leyfi sannarlega virk
á markaðinum. Fjöldi skráðra bíla-
leigubíla árið 2014 var 12.179 sam-
kvæmt sömu skýrslu en þá hafði verið
ráðist í að lækka opinbera skráningu
nokkuð en hún tilgreindi 14.841 bíl.
Sé miðað við þá tölu þá hefur bíla-
leigubílum hérlendis fjölgað um 16,3
prósent milli ára. Stærstu bílaleigurn-
ar árið 2014 voru Bílaleiga Akureyr-
ar með 3.333 bíla, Avis/Budget með
1.781 bíl og Hertz með 1.455 bíla.
Húsbílar afar vinsælir
Mikill vöxtur hefur átt sér stað í
útleigu á húsbílum, sem er kannski
ekki óeðlilegt sé horft til verðs á gisti-
rýmum hringinn í kringum landið.
Fjölmargar leigur sem sérhæfa sig í
slíkum bílum hafa skotið upp koll-
inum hérlendis, dæmi um slíkt fyrir-
tæki er McRent sem titlar sig á heima-
síðu sinni sem stærstu húsbílaleigu
Evrópu. Af innlendu bílaleigunum
er Camper Iceland stærstir. Þar má
leigja tveggja manna bíl í vikutíma
í júlí fyrir tæplega 1.000 evrur, eða
150.000. Dagurinn er því rúmlega 21
þúsund krónur. Dýrasti bíllinn, sem
hentar fyrir 4–5 manna fjölskyldu,
kostar 2.880 evrur, eða 427.500 krón-
ur. Dagurinn kostar samkvæmt því 61
þúsund krónur.
Meðalverð áætlað um
20 þúsund krónur á dag
Nýleg könnun vefsíðunnar túristi.is
vakti nýverið athygli en í henni var
borið saman verðið á bílaleigubílum
við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og öðr-
um evrópskum flughöfnum. Niður-
staðan varð sú að langdýrast var að
leigja bíl á Keflavíkurflugvelli af öll-
um flugvöllum álfunnar. Til dæm-
is kostaði fjórfalt meira að leigja bíl
í Keflavík samanborið við verðið á
sambærilegum bíl á Kastrup-flug-
velli. Dagsverðið á dag í júlí og ágúst
var 9.299 krónur hér á landi fyrir
ódýrustu tegundina af fólksbíl. Verðið
fer svo hratt upp miðað við stærð bíl-
anna. Út frá því er ekki fjarri lagi að
áætla að meðalverð á bíl, sé miðað
við allar gerðir af bílum, um 20 þús-
und á dag.
Velta 230–327 milljónir
króna á dag
Erfitt er að áætla hvert nýtingarhlutfall-
ið er á leigunum. Yfir háannatímann,
frá maí og fram í september, er nýt-
ingarhlutfallið gott. Miðað við 100 pró-
sent hlutfall er mánaðarvelta bílaleigu-
markaðarins 327 milljónir á dag, eða
tæplega 10 milljarðar á mánuði. Hóf-
legra hlutfall, eða um 70 prósent, þýð-
ir að þessar tölur lækka í 230 milljónir
á dag og tæplega 7 milljarða á mánuði.
Sannleikurinn liggur einhvers staðar
þarna á milli. Miðað við neðri mörk-
in þá er bílaleigubransinn að velta 28
milljörðum yfir þessa fjóra lykilmánuði.
Margar bílaleigur
loka á veturna
Yfir vetrarmánuðina draga fjölmargar
bílaleigur saman seglin eða loka jafnvel
alveg. Ástæðurnar eru aðallega færri
ferðamenn og sú staðreynd að verðið
sem er í boði getur verið allt að helm-
ingi lægra en gengur og gerist yfir sum-
armánuðina. Einnig aukast líkurnar á
því að bifreiðarnar verða fyrir tjóni tals-
vert yfir hörðustu vetrarmánuðina sem
gerir reksturinn ekki eins aðlaðandi.
Miðað við þetta er illmögulegt að skjóta
á hver velta iðnaðarins er yfir vetrar-
mánuðina.
Hluti teknanna
kemur aldrei til landsins
Stór hluti bókanna fer fram í gegnum
ferðaheildsala erlendis og þar til gerð-
ar vefsíður. Samkvæmt heimildum DV
má búast við því að þóknunin sem bíla-
leigurnar þurfa að greiða sé á bilinu 10
til 20 prósent og þá eru neðri mörkin al-
gengari. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Ótrúleg fjölgun Um 150 bílaleigur hafa
starfsleyfi á Íslandi. Mynd úr saFni
Fæst hjá Jóni & Óskari.
Laugavegi 61 // Kringlunni // Smáralind.
Tel.+354 552 4910 // www.jonogoskar.is.
Norðurljós
Nýjasta hönnun úr Icecold silfurlínunni
er innblásin af hinum töfrandi Norðurljósum.
Tilvalin gjöf til vina og vandamanna erlendis.
Northern lights
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
43
98
9
Men frá 16.900 kr.
Lokkar 15.900 kr.