Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Page 15
Fréttir 15Vikublað 16.–18. júní 2015
Yngsti Íslendingur-
inn tveggja mánaða
Þjóðhátíðarstemning í Toronto
Þ
að var sannkölluð þjóða-
hátíðarstemning í Amos
Waites Park í Toronto þar
sem 17. júní var haldinn
hátíðlegur. Fánum var veif-
að, matur borinn á borð og grenj-
andi rigning eins og á að vera.
Kanadísk-íslenska félagið í Toronto
hefur haldið 17. júní hátíðlegan
síðan það var stofnað árið 1959.
Á meðan Íslendingar í Winnipeg
halda daginn sjálfan hátíðlegan er
hér fagnað sunnudaginn á undan.
Þótt Íslendingabyggðirnar í
Manitoba séu hlutfallslega stærri
eru um 300 fjölskyldur meðlim-
ir í Íslendingafélaginu í þessari
stærstu borg Kanada. Meðal með-
lima eru bæði fólk sem á íslenskar
langömmur eða langafa eða aðra
forfeður, sem og Íslendingar sem
eru nýfluttir til Kanada. Nýjasti
meðlimurinn, Eyvindur, er rétt
rúmlega tveggja mánaða gamall,
og er mamma hans vestur-íslensk
en pabbinn er aðfluttur Íslending-
ur.
Ræðismaður Íslands í Toronto,
Gail Einarsson McCleery, hefur
staðið í ströngu undanfarið. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson kom í heim-
sókn í lok síðustu viku, en þetta er
í fyrsta sinn í yfir 30 ár sem sitjandi
Íslandsforseti heimsækir borgina.
Hann hélt ræðu í Háskólanum um
málefni Norðurslóða og sat hádeg-
isfund hjá Íslendingafélaginu.
Gail kemur upprunalega frá
Gimli en hefur búið í Toronto í rúma
hálfa öld. Langömmur og langafar
hennar fluttu til Manitoba í kring-
um 1880 og voru meðal þeirra sem
stofnuðu Nýja-Ísland, en forfeður
hennar eru allir íslenskir. Hún er
búin að vera konsúll síðan 2003 og
var sæmd Fálkaorðunni fyrir störf
sín í þágu félagsins, en hún varð 76
ára í upphafi árs. n
Nýjasta viðbótin Nýjasti Íslendingurinn í Toronto, Eyvindur, er hér með foreldrum sínum, þeim Karen og Einari Johannesson.
Annríki Ræðismaður Íslands í Toronto, Gail Einarsson McCleery, hér við hlið Vals Gunnarssonar, hefur staðið í ströngu undanfarið.
Rigning Íslendingarnir létu örlitla rigningu
ekki stöðva sig við hátíðarhöldin.
Íslendingafélagið Í Íslendingafélaginu
er bæði fólk sem á íslenskar langömmur
eða langafa eða aðra forfeður, sem og
Íslendingar sem eru nýfluttir til Kanada.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
O-GRILLÍ ferðalagiðÁ svalirnar
Í garðinn
á pallinn
Allt árið
O-Grill 3500 kr. 32.950
O-Grill 1000 kr. 27.950
Borðstandur kr. 9.595
Taska kr. 2.995
VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS