Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Blaðsíða 21
Umræða 21
Á
vefnum Gamlar ljósmyndir
birtist þessi mynd af ísbirni
í Sædýrasafninu sem eitt
sinn var í Hafnarfirði – lang-
leiðina út undir álver. Þarna
voru ýmis dýr í lengri eða skemmri
tíma, en ísbirnirnir voru aðalað-
dráttaraflið.
En margir minnast þessa stað-
ar með hryllingi. Aðbúnaðurinn
var afar vondur, eins og reyndar má
greina á myndinni. Ísbjörninn er
ofan í þröngri steyptri gryfju.
Sumir sem gera athugasemd við
myndina á Facebook segja að starf-
semin hafi verið til skammar. Um
einn ísbjörninn segir:
„Einn þeirra var orðinn geðveik-
ur; gekk stanslaust sama hringinn
með sömu hljóðunum.“
Og önnur ummæli eru svona:
„Sóðaskapurinn meiri en orð fá
lýst og greinilegt að dýrunum leið
illa, enda var þessu á endanum lok-
að. Þá glöddust margir.“ n
Vikublað 16.–18. júní 2015
Það var bara
frábært
Mér datt ekki í hug
að gera það fyrr
Skordýr eru
bragðgóð
Katrín Jakobsdóttir var fyrsti ráðherra til að verða ólétt í embætti. – DV Sigríður Dúna gekk ekki í brjóstahaldara fyrr en hún byrjaði með barn á brjósti. – DV Búi Bjarmar hefur þróað orkustöng úr krybbum. – DV
Myndin Við skyldustörf Eldur kviknaði í tjörupappa á nýju þaki í húsi Bílaleigu Akureyrar í Skeifunni síðdegis á mánudag. Slökkvilið réði niðurlögum eldsins
á skömmum tíma. mynD Sigtryggur ari
Mest lesið
á DV.is
1 Fjölmenn brjóstabylting á Austurvelli Töluverður
mannfjöldi var á samstöðufundi kvenna
á laugardaginn undir yfirskriftinni
„Frelsum geirvörtuna – berbrystingar
sameinumst.“
Lesið: 34.800
2 Fingralöngu ferða-mennirnir skilja eftir sig
slóð: Brutust inn á Ströndum
Svissneskt frönskumælandi par braust
inn í Kaupfélagið í Norðurfirði á dögun-
um og földu þau góssið rétt hjá tjaldi
sínu, skammt frá Krossneslaug. Lög-
reglan hafði uppi á þeim og viðurkenndu
þau innbrotið og þjófnaðinn.
Lesið: 29.759
3 Eigandi Bæjarins bestu hjólar í verkalýðshreyf-
inguna Guðrún Kristmundsdóttir,
eigandi Bæjarins bestu, er ósátt við
að þurfa að fylgja prósentuhækk-
unum sem samið var um í nýgerðum
kjarasamningum þar sem hún sé vön
að greiða starfsfólki sínu langt yfir
umsömdum launatöxtum. Enn fremur
er hún óánægð með það viðmót sem
hún mætir almennt hjá verkalýðshreyf-
ingunni sem atvinnurekandi. Guðrún
telur að hún þurfi að velta launahækk-
ununum út í verðlagið hjá sér.
Lesið: 27.037
4 Var kynlífsþræll föður síns í 30 ár og fæddi
honum fjögur börn Kona í Ástral-
íu hefur gefið út sjálfsævisögu þar sem
hún lýsir ótrúlegu kynferðisofbeldi sem
hún mátti þola af hendi föður síns langt
fram eftir ævi.
Lesið: 29.448
5 Mynduðu einelti á laun – kaþólskur skóli ætlar í
mál við Jamie Oliver Kaþólskur
skóli í Englandi hefur hótað framleiðslu-
fyrirtæki Íslandsvinarins og ofur-
kokksins, Jamie
Oliver, málsókn
eftir að nemandi í
skólanum – stúlka
á þrettánda
aldursári – fór
með falda mynda-
vél í skólann í
tvær vikur og festi
á filmu eineltið
sem hún þurfti
að þola í skólanum. Oliver stendur fyrir
þáttagerðinni.
Lesið: 21.001
Markaðsbúskapur án markaðslausna
Í
sland er gott dæmi um þjóð-
félag þar sem menn rembast
við að reka markaðsbúskap
án markaðslausna. Höftum,
skömmtunum og lögum er
beitt í stað þess að finna sameig-
inlegar lausnir. Menn sömdu ekki
um Icesave og ekki um markríl-
inn og ekki hafa samningar náðs
við hjúkrunarfræðinga en samn-
ingar virðast ætla að takast við
kröfuhafa enda hafa menn eytt
ómældum peningum þar til að
borga hæfum útlendingum til
að semja við aðra útlendinga.
En ástandið í heilbrigðismálum
þjóðarinnar tekur nú glansinn af
þessu afreki útlendinganna. Þetta
sýnir líka forgangsröðunina – pen-
ingar ofar heilsu.
Það verður ekkert fyrsta flokks
heilbrigðiskerfi rekið á Íslandi
nema á markaðsverði. Það þýð-
ir lítið að horfa í baksýnisspegil-
inn og vona að fortíðin komi til-
baka. Það gerist ekki. Menn verða
að horfast í augu við raunveruleik-
ann og viðurkenna að markaðsbú-
skapur verður ekki rekinn nema
að leyfa lögmálinu um framboð
og eftirspurn að finna sinn far-
veg. Það verður ekki vinsælt vegna
þess hversu ríkisafskipti hérlend-
is eru mikil og bjaga alla ákvarð-
anatöku.
En lausnin er ekki í órafjarlægð.
Hana er að finna á hinum Norður-
löndunum. Þar hafa menn ára-
tuga reynslu af því að reka mark-
aðsbúskap sem aðlagar sig að
velferðarkerfinu án endalausra
inngripa stjórnmálamanna. Hvers
vegna geta Íslendingar ekki lært af
nágrannaþjóðunum? Eru menn
enn fastir í hugmyndafræði Ólafs
Ragnars um yfirburði Íslendinga
í einu og öllu? Sæt hugmynd en
barnaleg í besta falli. n
„Þetta sýnir líka
forgangsröðunina
– peningar ofar heilsu.
andri geir arinbjarnarson
Höfundur er verkfræðingur
Af Eyjunni
Egill Helgason
silfuregils@eyjan.is
Af Eyjunni
Hið ömurlega sædýrasafn