Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Síða 25
Vikublað 16.–18. júní 2015 Sport 25
Graníthöllin
Legsteinar
Hér hvílir
Rósa Margrét Jónsdóttir
f. 10. 2. 1924 d. 21. 3. 2013
Minning þín er ljós í lífi okkar
Hér hvílir
Rósa Margrét Jónsdóttir
f. 10. 2. 1924 d. 21. 3. 2013
Minning þín er ljós í lífi okkar
Mikið úrval
fallaegra Legsteina
Opnunartími: mánudaga - föstudaga 900 til 1800
laugardaga 1100 til 1600
555 3888Bæjarhrauni 26 220 Hafnarfirði
Þarf að rétta af legsteininn?
Graníthöllin tekur að sér að rétta af legsteina
sem eru farnir að skekkjast.
Hafðu samband við sölumenn okkar fyrir
nánari upplýsingar.
Þarf að endurnýja letrið?
Er letrið farið að mást úr?
Hafðu samband við okkur og við gerum þér
tilboð í endurmálun legsteinsins.
n Margfaldir meistarar á lausu
Brede Hangeland
Aldur: 33
Staða: Varnarmaður
Síðasta félag: Crystal Palace
n Dagar norska turnsins á Englandi virðast
brátt taldir. Hann bíður þess að sjá hvort
Palace vilji gera við hann nýjan samning.
Hangeland var mestmegnis á bekknum
eftir áramót og bíður þess sem verða vill.
Þessi öflugi varnarmaður hefur leikið í
úrvalsdeildinni frá árinu 2008, lengst af
með Fulham.
Carlton Cole
Aldur: 31
Staða: Sóknarmaður
Síðasta félag: West Ham
n Cole kveður nú hamrana eftir 260 leiki
og liðlega 60 mörk. Hann spilaði 26 leiki í
vetur og skoraði aðeins þrjú mörk. Það er
einfaldlega ekki nógu gott fyrir framherja
í efstu deild. Cole býr að mikilli reynslu þó
hann hafi aldrei skorað meira en 10 mörk á
keppnistímabili í úrvalsdeildinni.
Wes Brown
Aldur: 35
Staða: Varnarmaður
Síðasta félag: Sunderland
n Brown, sem í fimmtán ár lék undir stjórn
Alex Ferguson hjá Manchester United, er
kominn á lokametrana. Hann virðist ekki
ætla að fá nýjan samning hjá Sunderland og
má fara frítt. Hann býr hins vegar að mikilli
reynslu og gæti reynst yngri leikmönnum
vel, í rétta liðinu.
Ron Vlaar
Aldur: 30
Staða: Varnarmaður
Síðasta félag: Aston Villa
n Vlaar er frábær leikmaður þegar hann er
heill heilsu. En það er dýrt að hafa menn á
launum sem ætíð eru meiddir. Vlaar kom við
sömu í 20 leikjum á leiktíðinni. Honum verður
boðinn nýr samningur hjá Villa og hermt er að
hann geti hugsað sér það. Spurningin er hins
vegar hvort önnur félög freisti hans meira.
Joey Barton
Aldur: 32
Staða: Miðumaður
Síðasta félag: QPR
n Barton féll með QPR í vor og nýr maður er
kominn í stöðuna hans, Massimo Luongo.
Þó Barton eigi erfitt með skapið er hann
góður leikmaður sem á heima í úrvals-
deildinni. Minni spámenn í deildinni hljóta á
endanum að bjóða honum samning. Hann á
ennþá nokkur ár eftir.
Jason Davidson
Aldur: 23 ára
Staða: Bakvörður
Síðasta félag: WBA
n Davidson þótti standa sig vel með landsliði
Ástralíu á HM síðasta sumar. Hann fékk tæki-
færi í fyrsta leiknum en svo varla söguna meir.
Leikmaðurinn er á besta aldri en lék aðeins tvo
leiki í vetur og fékk aldrei að sanna sig. „Ég á
í viðræðum við fjögur félög í Evrópu. Ég ætla
ekki að ana að neinu,“ sagði hann á dögunum.
Esteban Cambiasso
Aldur: 34
Staða: Miðjumaður:
Síðasta félag: Leicester
n Cambiasso hefur átt frábæran feril. Hann
var á mála hjá Real Madrid áður en hann fór
til Ítalíu og vann þar fimm meistaratitla,
sem og Meistaradeildina með Inter Milan.
Menn héldu að hann væri kominn að endi-
mörkum ferils síns en hann afsannaði það
með Leicester í vetur, þar sem hann spilaði
eins og unglingur.
17 bestu bitarnir
Micah Richards
Aldur: 26
Staða: Varnarmaður
Síðasta félag: Manchester City
n „Ég get ekki skrifað undir
nokkurra ára samning til þess
eins að vera varamaður,“ sagði
Richards nýlega. City hefur boðið
honum áframhaldandi samning
en Richards grunar að það sé
einungis gert til að uppfylla lög
um hlutfall enskra leikmanna.
Hann gæti verið á leið til Aston
Villa.