Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Side 30
30 Menning Vikublað 16.–18. júní 2015 loksins á Íslandi! Verslun og Viðgerðir Hjól aspret tur ︱ Dal sHr aun 13 ︱ 220 Hafnarfjörður ︱ s ími: 565 2292 ︱ w w w.Hjol aspret tur. is Að drepa á daginn og grilla á kvöldin The Good Kill fæst við firringu nútímahernaðar N ý tegund stríðs kallar á nýja tegund stríðsmynda. Jarhead sýndi hermenn leita að Íraksher í Persaflóa- stríðinu fyrra en ná ekki að hleypa af skoti áður en flugherinn hafði grandað öllum óvinum. Í Good Kill þurfa menn ekki lengur að hlaupa um eyðimörkina, heldur mæta á skrifstofuna í Las Vegas og skjóta menn með vélmennum úr fjar- lægð. „Drónar eru ekki framtíð hernaðar,“ segir skrifstofustjórinn. „Þeir eru nútíminn.“ Það að undirbúa menn und- ir stríð hefur alltaf verið nauðsyn- legt samfélögum, hvort sem menn sveifluðu sverðum á víkingatím- um eða skapa öfluga liðsheild á fótboltavellinum. Nú er hins vegar svo komið að þeir sem eyða mest- um tíma í tölvuleikjum eru best búnir undir hernað, enda er hér tekið fram að stýrikerfi flugdráps- vélanna er lauslega byggt á X-BOX til að auðvelda mönnum „leikinn“. Leikstjórinn er Nýsjálendingur- inn Andrew Niccol sem fer sjaldn- ast fínt í sakirnar. Hann er einstak- lega naskur á samtíma sinn og hefur áður fjallað um samband nú- tímatækni og raunveruleika sem handritshöfundur að The Truman Show og hefur fjallað um nú- tímahernað í vopnasölumyndinni Lord of War. Hér sameinar hann þetta tvennt. Persónur myndarinnar eru flestar málpípur hinna mismun- andi skoðana og er umræðuefnið skoðað frá öllum hliðum. Við sjá- Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir The Good Kill IMDb 6,3 RottenTomatoes 75% Metacritic 63 Handrit og leikstjórn: Andrew Niccol Aðalhlutverk: Ethan Hawke og January Jones 102 mínútur „ Í Good Kill þurfa menn ekki leng­ ur að hlaupa um eyði­ mörkina, heldur mæta á skrifstofuna í Las Vegas og skjóta menn með vél­ mennum úr fjarlægð. Bandóðar risaeðlur Risaeðlur í Reykjavík eftir Ævar Þór Benediktsson (hinn vin- sæla vísindamann) er saga fyr- ir lesendur á öllum aldri. Þar er meðal annars sagt frá sjö band- óðum risaeðlum, stórhættuleg- um unglingi, gagnsemi skotbolta, strætóbílstjóra í lífshættu og heimsins bestu félögum. Myndir í bókinni eru eftir Rán Flygenring. Gengið um Þingvallasvæðið Reynir Ingibjartsson er höfund- ur bókarinnar 25 gönguleiðir á Þingvallasvæðinu. Þar lýsir hann gönguleiðum innan marka Þing- vallaþjóðgarðs en einnig áhuga- verðum slóðum annars staðar við Þingvallavatn. Loks lýsir hann gönguleiðum sem tengjast hinum gömlu leiðum til Þingvalla. Hverj- um gönguhring fylgir kort með fjölda örnefna sem geyma sögu svæðisins. Það ásamt leiðarlýs- ingu og ljósmyndum gefur glögga mynd af því sem fyrir augu ber. Á eyjunni þar sem listir eru trúarbrögð n Eyjan Naoshima við Japan er uppfull af nútímalistaverkum og söfnum n Arkitektúr og myndlist renna saman í magnaðri safnaupplifun Þ að er nánast trúarleg upp- lifun að ganga inn í rýmið – birtan í loftinu eins og úr öðrum heimi og skjanna- hvítir veggir, gólf og loft. Ég stend í hvítum inniskóm á litlum viðkvæmum hvítum marmaraflís- unum. Starfsfólkið vísar manni vin- samlegast úr skónum. Það er klætt í hvíta sloppa eins og vísindamenn, eða læknar, eða meðlimir í sértrúar- söfnuði. Hönnun rýmisins er ætlað að magna upp tilfinningu fyrir hinu ægifagra, háleita, nánast guðlega – krafbirtingarhljómi listaverksins. Svona hef ég aldrei séð Monet – eða yfirhöfuð nokkurt listaverk. Chichu Art Museum, „Neðan- jarðarsafnið“ á listaverkaeyjunni Na- oshima á Seto-hafi úti fyrir strönd Jap- ans, starfar eftir öðrum lögmálum en hefðbundin listasöfn, hér hrúga sýn- ingarstjórar ekki listaverkum inn í hvítan kassa eftir handahófskenndu stefi heldur er safnbyggingin hönnuð til þess eins að magna upplifun áhorf- andans af þeim níu listaverkum sem eru hýst í safninu. Þarna eru fimm vatnaliljumálverk eftir Monet, þrjú ljósverk eftir James Turrell og innsetn- ing eftir Walter de Maria. Byggingin, eftir japanska stjörnuarkitektinn Tadao Ando, er tíunda (og alls ekki áhrifaminnsta) listaverkið í safninu. Eins og höfuðstöðvar Bond-illmennis „Andleg en án trúarbragða.“ Þannig lýsir hugmyndasmiðurinn listaverka- eyjunni. Naoshima er hugarsmíð milljarðamæringsins og eins ríkasta manns Japans, Soichiro Fukutake, stofnanda menntunar- og velferðar- iðnaðarrisans Benesse Corporation. Hugmyndin kom fram fyrir um þrem- ur áratugum, reisa átti við hnign- andi eysamfélögin á Seto-innhafinu við Japan með nútímalist að vopni og búa til litla paradís fyrir listunn- endur. Fukutake hefur sagt að sam- félag sem byggist einungis á við- skiptum og efnahagslegum tengslum skorti andleg auðæfi, þau telur hann að nútímamaðurinn geti ekki fund- ið í trúarbrögðum heldur í listinni og náttúrunni. Hann vill því gefa til baka af þeim auði sem honum hef- ur áskotnast, hann vill raunar berj- ast fyrir manneskjulegra samfélags- skipulagi „almenningskapítalisma“ eins og hann kallar það. Árið 1992 var fyrsta listasafn eyj- unnar opnað, Benesse House. Húsið, sem er á sama tíma safn og lúxushót- el, er minimalískt og kalt og yfirfullt af verðmætum nútímalistaverkum. Þegar maður stígur inn í húsið kvikna hugrenningatengsl við öll þau James Bond-illmenni sem hafa byggt sér höfuðstöðvar á ímynduðum eyðieyj- um víðs vegar um heim. Þessi aug- ljósu líkindi hrintu af stað undarlegri víxlverkun: rithöfundurinn Raymond Benson lét eina af Bond-bókum sín- um gerast á eyjunni, sem leiddi svo til þess að einhver sá sér leik á borði og opnaði safn tileinkað njósnara henn- ar hátignar á eyjunni. Að baða sig í list Chichu-listasafnið var næst opnað, árið 2004 og safn tileinkað kóreska myndlistarmanninnum Lee Ufan var opnað þegar Setouchi-þríæringurinn var haldinn í fyrsta skipti á eyjunni árið 2010. Söfnin þrjú eru öll hönnuð í áþekkum stíl af fyrrverandi boxar- anum og sjálflærða arkitektinum frá Osaka, Tadao Ando. Þau eru byggð inn í landslagið í sama steinsteypta naumhyggjustílnum. Gráir tómir steypuveggirnir og gróðurinn í kring mynda fallegar andstæður. Þótt maður klári meginsöfnin þrjú er eyjan langt því frá tæmd: skúlp- túrar eftir heimsfræga nútímalista- menn standa víðs vegar um eyjuna og í austurbænum hefur Fukutake keypt upp hús brottfluttra eða látinna íbúa og fengið listamenn til að endur- hanna þau sem innsetningar. Fyrir skemmstu var svo almenningsbað- hús opnað, hannað af listamannin- um Shinro Ohtake í bænum. Lista- æðið er jafnvel farið að dreifa sér til næstu eyja, til dæmis Teshima, þar sem verki eftir Ólaf Elíasson hefur verið komið fyrir. Verk Ólafs smellur eins og flís við rass við fagurfræði eyjarinnar. Verkin sem eru til sýnis á eyjunni er abstrakt, verk og innsetningar sem ögra skynjun mannsins, sem skapa andakt og hálfdulrænar upplifanir. Þarna eru hins vegar engin verk sem takast á við eða gagnrýna þá samfé- lagsgerð sem Fukutake hefur byggt auðæfi sín á. Hvort listin hafi lífgað Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Veggirnir slúta yfir mann, glugg­ arnir mynda sterkar ská­ línur og skugga eins og úr þýskum expressjónískum kvikmyndum millistríðs­ áranna. Grjót og steypa Grár minimalismi sem einkennir verk japanska stjörnuarki- tektsins Tadao Ando.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.