Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Blaðsíða 12
12 Fréttir Innlendur fréttaannáll Áramótablað 29. desember 2015 16. janúar Datacell hjólar í Valitor DV greinir frá því að Datacell og Sunshine Press Productions (SPP) ætli að krefja Valitor um rúma tíu milljarða króna í skaðabætur vegna ákvörðunar fyrirtækisins um að loka á greiðslur til vefsíðunnar Wikileaks í júlí 2011. Lögmaður Valitor segir bótakröfuna hreinan tilbúning. 18. janúar Hné niður á Hverfisgötu Fréttir berast af því að karl maður, sem hné niður á Hverfisgötu vegna heilablæð- ingar, væri lát- inn. Fimm voru handtekin og yfir- heyrð vegna atviksins en þeim var öllum sleppt. Ekki var vitað hvort áverkar manns- ins voru af mannavöldum eða vegna slyss eða sjúkdóma. 20. janúar „Mér líður illa“ Björgvin G. Sigurðsson stígur fram í viðtali við DV eftir að hafa verið sakaður um fjárdrátt í starfi sem sveitar stjóri Ásahrepps. Hann keypti meðal annars GoPro-myndavél, hangikjöt og bækur með debetkorti Ásahrepps. Heildarupphæðin var 421 þúsund krónur. „Það voru mis- tök og rangt af mér að biðja ekki um heimild frá oddvita,“ segir Björgvin við DV og upplýsir að hann ætli að leita sér hjálpar við áfengissýki á Vogi. Honum líði illa. Hreppurinn fellur frá kæru, gegn endurgreiðslu Björgvins. 23. janúar „Fór langt út fyrir valdsvið sitt“ Umboðsmaður Alþingis birt- ir frumkvæðisathugun á samskiptum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkis- ráðherra, og Stefáns Ei- ríkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra á höfuð- borgarsvæðinu, vegna lekamálsins. „Ég lít svo á að þarna hafi verið um að ræða harða gagnrýni ráðherra á ákvarðanir og störf lögreglunnar í þessu máli. Í samræmi við framan- greint er það niðurstaða mín að efni samskipta innanríkisráðherra við lögreglustjórann á höfuðborgar- svæðinu hafi ekki samrýmst þeim reglum sem ráðherra bar að virða um sjálfstæði og hlutlægni lög- reglunnar. Samskiptin voru því ósamrýmanleg stöðu ráðherra sem yfirstjórnanda lögreglunnar,“ skrifar umboðsmaður. Ráðherra hafi farið langt út fyrir valdsvið sitt. 27. janúar Rekin eftir að hafa tilkynnt um áreitni Emma Jóhanna Pálínu- dóttir ber, í samtali við DV, að hún hafi verið rekin frá Aktu taktu í kjölfar tilkynn- ingar um kyn- ferðislega áreitni á vinnustaðnum. „Hann var að strjúka stelpunum á bakinu og sagði við mig, þegar ég var að borða ísnál, að hann teldi mig vera að hugsa um að sjúga eitthvað annað en þessa ísnál,“ segir Emma við DV en fyrirtækið hafnar því að tilkynningin sé ástæða uppsagnar- innar. „Við getum ekki rætt mál einstakra starfsmanna.“ 30. janúar „Ég er bara svo óheppinn“ Viðtal DV við meintan mann með bleyjublæti vekur mikla athygli. Maðurinn, sem hlotið hef- ur dóm fyrir kynferðisbrot og vörslu barnakláms, ber að allt sé málið á misskilningi byggt. Brot- ist hafi verið inn á aðganginn hans á bland.is og einhver óprúttinn sett þar inn beiðnir um myndir af börn- um á bleyjum. Hvað dómana varðar þá hafi hann einfaldlega verið svo óheppinn að tölvan hans sýktist af vírus og fylltist fyrir þær sakir af barnaklámi. Og dómurinn fyrir að táldraga 14 ára þroskaskertan dreng mun líka vera á misskilningi byggður. „Ég er bara svo óheppinn.“ FEBRÚAR 3. febrúar Gústaf settur af Gústaf Níelsson er settur af sem varamaður í Mannréttinda- ráði Reykjavíkurborgar en hann hafði daginn áður verið tilnefndur af borgarfulltrúum Framsóknar- flokksins og kjörinn í embættið af borgarstjórn. Skoðanir Gústafs, sem er til dæmis and- vígur mosku á Íslandi og giftingu samkyn- hneigðra, þykja ekki samrýmast stöð- unni. „Ég hefði átt að gúggla betur,“ segir Sveinbjörg borgarfulltrúi í við- tali við Kastljós. 4. febrúar Gleymdist í bílnum Ólöf Þorbjörg, 18 ára þroskaskert stúlka, skilar sér ekki í Hitt húsið á tilskildum tíma. Þegar leit hefst að stúlkunni, þremur tímum síðar, finnst hún í bíl ferðaþjónustu fatl- aðra, við heimili bílstjórans. Bílstjór- inn segir við DV að dagurinn hafi verið algjör martröð, of stutt hafi verið á milli ferða. 5. febrúar Kántríkóngur í fangelsi Hæstiréttur Íslands staðfestir þriggja ára fangelsisdóm yfir tónlistar- manninum Hallbirni Hjartarsyni vegna kynferðisbrota gegn ungum drengjum. Árið 1999 kyssti Hall- björn annan drenginn tungukossi á heimili sínu og fróaði honum. Þetta gerðist líka tæpum tveimur árum seinna en þá kyssti hann drenginn tungukossi, strauk ber kynfæri hans, hafði við hann munnmök og lét drenginn fróa sér. 9. febrúar Leynigögn afhjúpa skattabrot Vefritið Kjarninn greinir frá því að útibú breska bankans HSBC í Sviss hafi aðstoðað viðskiptavini sína við að svíkja undan skatti og fela eignir fyrir skattyfirvöldum. Sex aðilar, tengdir Íslandi, komu 1,3 milljörð- um króna undan skatti, samkvæmt leynilegum gögnum. Pressa er sett á fjármálaráðherra að kaupa gögn- in en í kjölfarið hefst störukeppni á milli skattrannsóknarstjóra og fjár- málaráðherra. 12. febrúar Fjórmenningar í fangelsi Magnús Guðmundsson, Ólafur Ólafsson, Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson eru dæmdir samtals til 18 mánaða fangelsisvistar í Al-Thani-málinu. Hæstiréttur þyngdi dóma Magnúsar og Ólafs. Um að ræða þyngstu dóma sem fall- ið hafa í efnahagsbrotamáli á Íslandi og þá langþyngstu sem fallið hafa í markaðsmisnotkunarmáli. 12. febrúar #Siggifullur Sérkennilegt viðtal sem Bogi Ágústs- son tekur samdægurs við Sigurð í beinni útsendingu í fréttatíma RÚV, vekur mikla athygli á samfélags- miðlum undir myllumerkinu #siggi- fullur. Daginn eftir neitar Sigurður því í viðtali við Vísi að hann hafi verið drukkinn. 14. febrúar Grunuð um morð Kona er hneppt í varðhald vegna gruns um að hafa orðið karlmanni að bana í Hafnarfirði. Maðurinn var látinn þegar lögregla kom á vett- vang, en grunur lék á að maðurinn hefði látist af völdum hnífstungu. ÖRYGGI BÍLSINS BYGGIST Á GÓÐUM HÓLBÖRÐUM www.gummivinnustofan.is Gúmmívinnustofan Skipholti 35 • S: 553-1055
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.