Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Blaðsíða 14
14 Fréttir Innlendur fréttaannáll Áramótablað 29. desember 2015
17. febrúar
„Hvorki ólögmætt né
óskynsamlegt“
Það var hvorki „ólög-
mætt né óskyn-
samlegt“ að
stjórnvöld hafi
farið þá leið
við endurreisn
bankakerfisins
á árinu 2009 að
slitabúin eignuð-
ust yfirgnæfandi
hlut í Arion banka og
Íslandsbanka. Slíkt hafi
verið eðlilegt enda var verið að færa
skuldir og eignir gömlu bankanna
yfir í þá nýju. Þetta er á meðal þess
sem kemur fram í skýrslu Brynjars
Níelssonar alþingismanns sem
hann skilaði til stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar vegna erindis Víg-
lundar Þorsteinssonar um samn-
inga sem fyrrverandi ríkisstjórn
gerði við erlenda kröfuhafa föllnu
bankanna. Hann segir að þegar
horft sé til baka megi örugglega
finna einhver mistök sem gerð hafi
verið í ferlinu við endurreisn bank-
anna þriggja, til dæmis hvað varðar
starfsemi nýju bankanna við endur-
skipulagningu skulda einstaklinga
og fyrirtækja. „En það er auðveldara
um að tala en í að komast þegar allt
bankakerfið hrynur á einu bretti
eins og gerðist í byrjun október
2008. Enginn var viðbúinn
svona fordæmalausum að-
stæðum á fjármálamark-
aði,“ segir Brynjar.
17. febrúar
Fannst hjá
nágrannanum
Ellefu ára fötluð
stúlka fannst hjá ná-
granna sínum eftir
að ferðaþjónusta
fatlaðs fólks fylgdi
ekki verklags-
reglum.Stúlkan
skilaði sér ekki
heim síðdegis en
reyndist hafa farið
til nágrannakonu
sinnar í sama fjölbýlis-
húsi og hún býr í. Málið var
litið mjög alvarlegum augum, en
bílstjórinn hafði ekki fylgt stúlkunni
alla leið heim og komið henni í ör-
uggar hendur foreldra.
24. febrúar
Deilt um
bólusetningar
Íslendingar ræða af ákafa um bólu-
setningar, en um það bil tíu prósent
18 mánaða barna á Íslandi hafa ekki
hlotið viðteknar bólusetningar gegn
helstu barnasjúkdómum. DV fjallar
ítarlega um málið, frá öllum hliðum,
og ræðir við þá sem telja bólusetn-
ingar skaðlegar og þá sem telja and-
stæðinga bólusetninga skaðlega.
25. febrúar
Ólafur Ólafsson
kominn í
fangelsi
Ólafur Ólafsson er
kominn í fangelsið
á Kvíabryggju. Hann
var dæmdur í fjögurra
og hálfs árs fangelsi fyrr
í mánuðinum í Hæstarétti
vegna þátttöku sinnar í stærsta
markaðsmisnotkunarmáli sem
dómur hefur fallið í hér á landi.
Ólafur hefur lagt fram kvörtun til
mannréttindadómstóls Evrópu
vegna málsins, en ekki hefur verið
tekin ákvörðun um hvort málið
verði tekið upp á þeim vettvangi.
27. febrúar
Græddu 9 milljónir á
klukkustund
Stóru viðskiptabankarnir þrír högn-
uðust um samtals 81,2 milljarða
króna eftir skatta á síðasta ári sem
var aukning um 16 milljarða
milli ára. Til að setja þessar
tölur í samhengi þá nam
samanlagður hagnað-
ur bankanna þriggja
222 milljónum króna
á sólarhring. Það þýð-
ir að fyrirtækin þrjú
græddu samtals rúm-
ar níu milljónir króna á
hverri klukkustund síð-
asta árs.
27. febrúar
Braut lög
Miðlun lögreglunnar á
Suðurnesjum á gögn-
um með persónuupplýs-
ingum um Tony Omos og
Eve lyn Glory Joseph til inn-
anríkisráðuneytisins í nóvember
2013 studdist ekki við viðhlítandi
heimild. Þá fór skortur á skráningu
gagnanna í málaskrá lögreglunn-
ar í bága við kröfur um upplýs-
ingaöryggi. Þetta segir í úrskurði
Persónuverndar, en Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, þáverandi lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum og núverandi
lögreglustjóri höfuðborgarsvæðis-
ins, braut lög um persónuvernd og
meðferð persónuupplýs-
inga, þegar hún sendi
Gísla Frey Valdórssyni,
þáverandi aðstoðar-
manni Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur,
greinargerð vegna
lekamálsins. Ólöf
Nordal innanríkis-
ráðherra segist
treysta Sigríði Björk og
sér ekki ástæður til
að afhafast frekar
vegna málsins.
Fara verði yfir
athugasemdirn-
ar og laga verk-
ferla.
Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is
Verum
þjóðleg
til hátíðabrigða