Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Blaðsíða 19
Áramótablað 29. desember 2015 Fréttir Innlendur fréttaannáll 19
fjárfestinga ráðherrans í fjölmiðlum
og sögðu hann hafa beitt sér fyrir
því að Vefpressan fengi vilyrði fyrir
yfirdrætti hjá MP banka. Forsvars-
menn Vefpressunnar, útgefanda DV,
neita þessu sem og forsætisráðherra
og MP banki. Málið bíður ákæru.
Nokkrum dögum síðar eru systurn-
ar færðar aftur í varðhald, grunað-
ar um aðra fjárkúgun, sem tengist
fyrrverandi samstarfsmanni Hlín-
ar. Hún ásakar hann um nauðgun
en mun hafa krafist þess að hann
greiddi sér háar fjárhæðir gegn því
að kæra ekki. Hún hefur nú lagt
fram kæru.
2. júní
Umsátur um
tóma íbúð
Lögregla og sér-
sveit umkringja
húsnæði við
Hlíðarhjalla í
Kópavogi. Um-
sátrið stendur langt
fram á kvöld og eru
nærliggjandi íbúðir rýmd-
ar. Lögregla telur að skotið hafi verið
úr haglabyssu, en svo reynist ekki
vera. Íbúðin reyndist á endanum
vera mannlaus. Högl höfðu fund-
ist í garði blokkarinnar og ummerki
voru um haglaskot í girðingu. Eig-
andi íbúðarinnar var ekki heima og
vildi lögregla ekki greina frá því hvar
eða hver hann væri.
8. júní
Stöðugleikaskatturinn
verður 850 milljarðar
Stöðugleikaskattur verður lagður
á slitabú uppfylli þau ekki ákveðin
stöðugleikaskilyrði. Hann getur
numið allt að 850 milljörðum króna.
Heildarumfang aðgerðanna nemur
aftur á móti 1.200 milljörðum króna
og þar af er 900 milljarða króna
vandinn vegna slitabúa föllnu bank-
anna og 300 milljarða aflandskrónu-
vandinn.
9. júní
Búið að kaupa
skattaskjólsgögnin
DV greinir frá því að búið sé að
ganga frá kaupum á skattaskjóls-
gögnum sem eiga að tengja Ís-
lendinga við félög í erlendum
skattaskjólum. Þetta er í fyrsta sinn
sem Ísland greiðir fyrir gögn um ís-
lenska skattborgara.
9. júní
#Þöggun
Gular og appelsínugular myndir af
broskörlum sem þaggað hefur verið
niður í vekja heimsathygli, en um er
að ræða verkefni íslenskra kvenna á
samfélagsmiðlum. Breska stór-
blaðið The Independent
fjallar um íslenska Face-
book-hópinn Beauty
Tips á vefnum sínum
og þá byltingu sem
hefur átt sér stað í kjöl-
far umræðu um kyn-
ferðisofbeldi. Þeir sem
bera gular-myndir sem
forsíðumynd hafa ekki
orðið fyrir kynferðisofbeldi
en vilja styðja við aðra þolend-
ur, en þeir sem bera appelsínugula
mynd hafa orðið fyrir kynferðisof-
beldi. Notendur nota myllumerkið
#þöggun á samfélagsmiðlum til að
vekja athygli á málstaðnum.
11. júní
Lög á verkföll
Ríkisstjórnin ákveður á fundi að
setja lög á verkfallsaðgerðir BHM
og hjúkrunarfræðinga. Er verkfalli
frestað til 1. júlí. Páll Halldórsson,
formaður samninganefndar BHM,
segir að ríkisstjórnin hafi ætlað sér
að svelta félagsmenn hans til hlýðni.
Þegar það tókst ekki var ákveðið að
grípa til verkfalls. Hann kallar ríkis-
stjórnina „ofbeldismenn“.
17. júní
Mótmæli á 17. júní
Erfitt reyndist að greina ræðu for-
sætisráðherra fyrir hávaða í mót-
mælendum á Austurvelli á sjálfan
þjóðhátíðardaginn, en 2.000–3.000
mótmælendur söfnuðust saman og
púuðu á forsætisráðherrann.
19. júní
Börn brenndust við
Geysi
Pétur Reynisson birtir myndband
á samfélagsmiðlum þar sem sést
hvernig vatn úr Geysi brennir börn-
in hans tvö. Börnin hlutu fyrsta og
annars stigs brunasár á fótum,
en þau stóðu fyrir utan merkt
öryggissvæði.
20. júní
Gísli Pálmi
kýldi Bam
Margera
Myndband sem sýnir rapp-
arann Gísla Pálma og tvo aðra
karlmenn ráðast á tónlistarmann-
inn og Jackass-meðliminn Bam
Margera birtist á vefnum. Í mynd-
bandinu má sjá Gísla, í gulum jakka
og gallabuxum, ýta vini Margera
frá áður en hann grípur Jackass-
meðliminn og kýlir hann með
hægri hendi. Þar á eftir er Margera
kýldur af tveimur öðrum karlmönn-
um. Margera strengir þess heit að
ná fram hefndum og minnir á að
„karma er raunverulegt“.
26. júní
Sex af níu dæmdir
til refsingar
Héraðsdómur Reykjavíkur sakfell-
ir sjö af níu sakborningum í mark-
aðsmisnotkunar-
máli Kaupþings.
Alls voru níu kærðir
í málinu sem er eitt
viðamesta mál sem
lent hefur á borði sér-
staks saksóknara og tók aðal-
meðferð þess í héraðsdómi tæplega
mánuð. Nímenningarnir kærðir
fyrir umfangsmikla markaðsmis-
notkun sem starfsmenn Kaupþings
á árunum 2007–2008, fyrir að halda
uppi verði hlutabréfa bankans með
stórfelldum kaupum bankans í eig-
in bréfum. Hreiðar Már Sigurðs-
son, fyrrverandi forstjóri Kaupþings,
er sakfelldur en fær ekki frekari
refsingu vegna fyrri dóms, Sigurð-
ur Einarsson, fyrrverandi stjórnar-
formaður Kaupþings, er dæmd-
ur til árs fangelsisvistar, Ingólfur
Helgason, fyrrverandi forstjóri
Kaupþings á Íslandi, er dæmdur í
fjögurra ára og sex mánaða fangelsi.
26. júní
Pétur Blöndal
látinn
Pétur H. Blöndal, þing-
maður Sjálfstæðis-
flokksins, fellur frá.
Pétur, sem var 71 árs að
aldri, hafði um nokkurt
skeið glímt við krabba-
mein og lést hann á heimili
sínu í faðmi fjölskyldu sinnar.
JÚLÍ
1. júlí
Lúsmý lék okkur grátt
Fólk í sumarhúsabyggðum
beggja vegna Hvalfjarð-
ar finnur fyrir áhrif-
um árásargjarnrar
nýrrar mýtegund-
ar á Íslandi þegar
lúsmý lætur til
skarar skríða.
Þetta var í fyrsta
sinn sem þessi til-
tekna tegund finnst
á Íslandi, en talið er að
veðurfarslegar aðstæður
sem sköpuðust í Hvalfirðinum
TERTUR
PAKKAR
RAKETTUR
SMÁVARA
OPNUNARTÍMAR
28.- 29.- 30. des. 10–22
31. desember 9–16
www.stjornuljos.is