Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Blaðsíða 60
Áramótablað 29. desember 201514 Völvuspáin 2016
Eurovision –
hvEr fEr út?
Forkeppnin verður með æsilegra
móti, þó svo að hún sé öll tónuð
niður vegna niðurskurðar. Gömlu
skemmtikraftabrýnin verða meira
áberandi en oft áður. Sá sem fer fyrir
okkar á hönd á endanum
hefur farið áður. Okkur gengur
ekki vel í keppninni að þessu sinni.
Því miður. Bara ekki okkar ár í
Eurovision. Eins og svo oft áður
verður þetta keppni milli fyrrver-
andi Sovétlýðvelda og Norðurland-
anna – nema Íslands og Noregs.
Austurblokkin vinnur í ár.
Dómsmál
Jón Ásgeir Jóhannes son mun velta
þungu hlassi þegar hann vinnur
dómsmál í útlöndum og mun það
hafa veruleg áhrif hér á landi og
skipta tugi einstaklinga miklu máli.
Gagnrýni á Hæstarétt heldur áfram
og einkum er það forseti réttarins
sem situr undir ásökunum. Seint á
árinu dregur til tíðinda og er allt út-
lit fyrir að forseti Hæstaréttar dragi
sig í hlé til að bjarga orðstír réttar-
ins. Margir munu sækja að honum
áður og úr mörgum áttum.
Hneykslismál úr herbúðum sér-
staks saksóknara mun fara hátt og
víða. Ástamál innan embættisins og
háar greiðslur til starfsmanna valda
hneykslun.
Fleiri bankamenn verða dæmd-
ir og fá þeir þunga fangels-
isdóma. Símon grimmi
verður í essinu sínu.
Kvíabryggja verður
eins barinn á Hótel
101 var árið 2007.
Endurupp-
tökunefnd mun
komast að þeirri
niðurstöðu að
brotið hafi verið á
einum útrásarvík-
ingi í nýlegum dómi
Hæstaréttar. Það
verður erfitt fyrir hæst-
ráðendur þar að kyngja
þeirri niðurstöðu.
Skattrannsóknastjóri
nær ekki að gera
sér mat úr þeim
upplýsingum
sem keyptar
voru af upp-
ljóstrurum. Í
ljós kemur
að upplýs-
ingarn-
ar eru of
gamlar
og málin
fyrnd.
Emb-
ættið
mun í framhaldi af þessu þurfa að
gera grein fyrir af hverju þessi leið
var farin á sínum tíma. Þetta verð-
ur erfitt ár fyrir Bryndísi og hennar
fólk.
mafía og
hryðju-
vErkamEnn
Upp kemur alvarlegt mál innan
fangelsis á Íslandi. Lögregla mun
rannsaka málið en fangavörður er
grunaður um að vera samstarfs-
maður þeirra fanga sem um ræðir.
Málið er umfangsmikið og teygir
anga sína út fyrir landsteinana.
Eitt mest hrollvekjandi mál sem
upp kemur á Íslandi á árinu verður
handtaka tveggja eftirlýstra hryðju-
verkamanna þegar þeir koma til
landsins. Gríðarlegur við-
búnaður verður vegna
þessa og nánast
allt lögreglulið
á suðvestur-
horni lands-
ins tekur þátt í
aðgerðunum.
Mennirnir eru
yfirbugaðir og
í ljós kemur að
þeir áttu bara
leið um Ísland en
voru ekki að koma
hingað til lands til
að fremja ódæði. Íslensk
lögreglu yfirvöld fá hrós fyrir málið í
hinu alþjóðlega samfélagi.
En Keflavíkurflugvöllur
verður oftar miðdep-
ill alþjóðlegra mála.
Upp kemst um
fangaflug sem
stundað hef-
ur verið um
nokkurt skeið
í gegnum
völlinn. Þetta
mál skek-
ur íslenska
kerfið og
opinber
rannsókn
er sett af
stað. Ekki
sér
fyrir endann á mál-
inu í lok árs, en fæstir
í stjórnkerfinu hér
virðast hafa haft
hugmynd um mál-
ið.
Mikil um-
ræða verður um
skipulagða glæpa-
starfsemi á Íslandi.
Mafía sem kennd er
við Eystrasaltslöndin
verður upprætt og mörgum
meðlimum hennar vísað úr landi.
Þetta mun ekki gerast átakalaust og
mun lögregla þurfa að beita skot-
vopnum í uppgjöri við þessi öflugu
samtök sem síðar er upplýst að hafi
staðið að baki margvíslegum glæp-
um.
Eftir þetta mun gagnrýni á
vopnaburð lögreglu almennt heyra
sögunni til.
Baltasar mEð
stóran samning
Þetta verður frjótt ár hjá listamönn-
um á Íslandi og erlendum lista-
mönnum sem munu koma til
Íslands. Samstarf íslensks lista-
manns og erlendrar stór-
stjörnu mun vekja mikla
athygli. Þetta samstarf mun
verða upphafið að ein-
hvers konar nýrri list.
Justin Bieber
mun gera allt
vitlaust á
Íslandi
á tón-
leikum
sem
hann heldur og hann mun ekki bara
halda eina tónleika – heldur mun
hann bæta við aukatónleikum. Á
þá mun einnig seljast upp á
örskotsstund.
Íslensk stúlka
kennir Bieber barn
og munu þær frétt-
ir vekja heims-
athygli. Bieber
talar fallega um
Ísland og tengsl
hans við landið
munu verða áber-
andi.
Björk Guð-
mundsdótt-
ir verður
mikið
í fréttum. Og þá ekki fyrst og fremst
fyrir list. Hún gerir sig æ meira áber-
andi í stjórnmálum og skiptir
sér af Íslandi úr fjarlægð.
Fjármál hennar verða
til umfjöllunar og
reiðist söngkonan
og hennar hirð
vegna þeirr-
ar umfjöllunar.
Heift hleyp-
ur í málið. En
listamaður með
rætur í Þýska-
landi stendur eins
og klettur við hlið
hennar.
Leikhúslífið blómstrar
og sækir í sig veðrið. Þó nokk-
ur ný samtímaverk njóta vin-
sælda og gera góða hluti.
Bæði Borgarleikhúsið og
Þjóðleikhúsið njóta góðs af.
Nýir leikarar koma fram
á sjónarsviðið í þessum
stykkjum og eru komnir til
að vera.
Baltasar kvikmynda-
gerðarmaður heldur
áfram sinni Everestgöngu
í Hollywood. Hann landar
risavöxnum samningi á þessu
ári um gerð stærstu myndar
sem hann hefur komið ná-
lægt á sínum ferli.
Myndin er
hörð gagnrýni
Hæstiréttur sætir
harðri gagnrýni
á árinu og það úr
mörgum áttum.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
M.BENZ C 180 CDI
07/2014, ekinn 39 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ
5.490.000 kr. Raðnr.254586
BMW 520D XDRIVE M-PACK F10
04/2015, ekinn 5 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ
8.750.000 kr. Raðnr.254416
AUDI A6 2.0 TDI S-LINE
08/2014, ekinn 16 Þ.km, disel,
sjálfskiptur, gríðarlega vel búinn!
Verð: 7.980.000 kr. Raðnr.254356
M.BENZ E 200CDI T BLUETEC
AVANTGARDE 11/2014, ekinn
28 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.
Verð: 6.990.000 kr. Raðnr.254418
AUDI A6 2.0 TDI
05/2012, ekinn 50 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ
6.290.000 kr. Raðnr.254089