Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Blaðsíða 77

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Blaðsíða 77
pyntaður hroðalega og síðan myrtur. Tilviljun ein réð því að Gary O'Dwyer var drepinn – Bunting, Wagner og Vlassakis myrtu hann á heimili hans í nóvember. Bunting og Wagner myrtu Eliza­ beth Haydon, eiginkonu Marks, kvöld eitt þegar Mark var að heiman. Eina fórnarlambið sem myrt var í Snowtown var David Johnson, enn einn hálfbróðir Vlassakis. Hann var myrtur í bankanum í Snowtown eftir að Bunting og kumpánar hans höfðu flutt tunnurnar þangað til geymslu. Felgujárn og stjörnuljós Síðustu andartök Ray Davies voru óhugnanleg. Honum var fleygt í baðkar, hann barinn ítrekað með kylfum í kynfærin og tærnar kramd­ ar með töngum. Að lokum var hann kyrktur með snarvöndli. Ekki voru síðustu mínútur Frede­ ricks Brooks á jarðríki skárri. Hann fékk rafstraum í getnaðarliminn og eistun, logandi stjörnuljósi var troðið í þvagrásina, tærnar voru kramdar, nef hans og eyru brennd með síga­ rettu og að lokum kafnaði hann af völdum tusku sem hafði verið troðið upp í munn hans. Sagan segir að Bunting og Wagner hafi steikt kjötflís af síðasta fórnarlambinu, David Johnson, og sest að snæðingi. Málalok Vlassakis fékk fjórfaldan lífstíðar­ dóm 21. júní, 2001, eftir að hafa játað sig sekan um fjögur morð. Síðar um sumarið lýstu Bunting, Haydon og Wagner sig saklausa af tíu morðum sem þeir voru ákærðir fyrir. Réttarhöldin yfir Bunting og Wagner hófust í október 2002 og gengu brösuglega. Samkvæmt sum­ um heimildum báðust þrír kviðdóm­ arar lausnar – þeim var um megn að hlusta á lýsingar og sjá sönnunargögn sem vörðuðu morðin. Hvað sem því líður voru Wagner og Bunting sakfelldir í september 2003; Bunting fyrir ellefu morð og Wagner fyrir sjö. Þeir fengu lífstíðar­ dóm fyrir hvert morð sem þeir voru sakfelldir fyrir. Þeir áfrýjuðu dómun­ um en höfðu ekki árangur sem erfiði. Í máli Haydons komst kviðdómur að þeirri niðurstöðu að hann hefði aðstoðað við fimm morð en var tví­ stígandi varðandi tvö morð sem hann var ákærður fyrir. Þegar upp var staðið, í september 2005, var fall­ ið frá morðákærunum gegn því að hann viðurkenndi aðild að morðinu á eiginkonu sinni, Elizabeth, og Troy Youde, og hlaut hann dóm í samræmi við það. Þannig er nú það. n Áramótablað 29. desember 2015 HamraHlíð 17, 105 reykjavík Hús Blindrafélagsins / sími 552-2002 Vönduð lesgleraugu frá 3.900 kr. sama verð í 8 ár! linsur fyrir öll tækifæri 2500 kr. Skrýtið Sakamál 49 Líkin í tunnunum n Aðeins eitt Snowtown-morðanna var framið í Snowtown n Sum líkin voru grafin, önnur sett í tunnur og komið fyrir í geymslu Fórnarlömb … og gerendur Efsta röð; Barry Lane, Clinton Tresize, David Johnson. Miðröð; Elizabeth Haydon, Frederick Brooks, Gary O'Dwyer. Neðsta röð; Michael Gardiner, Ray Davies, Troy Youde. Bankinn Í þessari byggingu fundust líkin í tunnunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.