Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Page 16
Áramótablað 29. desember 201516 Fréttir Innlendur fréttaannáll
MARS
5. mars
Þorsteinn tapaði
Vatnsendamálinu
Hæstiréttur fellir úr
gildi dóm Héraðs
dóms Reykja
víkur í Vatns
endamálinu.
Niðurstaðan
er sú að Þor
steinn Hjalte
sted, sem hefur
fengið gríðar
lega háar bætur
frá Kópavogsbæ, sé
ekki réttmætur erfingi
að jörðinni. Þorsteinn hefur verið
á lista yfir auðugustu menn lands
ins undanfarin ár. Héraðsdómur
hafði áður dæmt að Þorsteinn væri
réttmætur erfingi. Málaferli vegna
þessa máls hafa gengið árum saman
og er enn ekki lokið, enda þarf nú að
skipta búinu upp á ný.
8. mars
ISIS á Njáluslóðum
Vefsíða Sögusetursins á
Hvolsvelli liggur niðri
ef svo mætti að orði
komast en svo virð
ist sem að tölvu
þrjótar á vegum Ís
lamska ríkisins hafi
komist yfir stjórn
síðunnar en skila
boð frá ISIS eru efst á
vefsíðunni.
9. mars
„Kallaði mig hóru og
hrinti mér í götuna“
Andrea Nótt Guðmundsdóttir, 23
ára þjónn, endaði á sjúkrahúsi eftir
að menn veittust að henni og vin
konum hennar á skemmtistaðnum
Condesa í Kaupmannahöfn. Andr
ea segir í samtali við DV að hún og
vinkonur hennar hafi verið úti að
skemmta sér þegar maður og vinur
hans hafi birst og byrjað að áreita
þær. Annar maðurinn gekk mun
lengra, hrinti henni og kallaði hana
hóru.
10. mars
Líkfundur við Sæbraut
Lík konu rak að landi við Sólfarið
við Sæbraut. Ferðamenn komu
að konunni og gerðu lögreglu
viðvart. Mikill viðbúnaður
var við Sæbraut vegna
fundarins, en andlátið
virtist ekki hafa borið að
með saknæmum hætti.
10. mars
Auga stormsins
Óveður gengur yfir landið og hefur
gríðarleg áhrif á umferð á höfuð
borgarsvæðinu og í nærliggjandi
sveitarfélögum. Óveðrið reyndist
meira en spár gerðu ráð fyrir.
12. mars
Ekki lengur í
aðildarferli
Ríkisstjórnin hefur sam
þykkt að hún hafi ekki í
hyggju að taka upp
aðildarviðræður
við Evrópusam
bandið á nýjan leik og
lítur utanríkisráðherra
svo á að aðildarvið
ræðum hafi verið slitið
formlega.
12. mars
Brjálaður maður
réðst á Þórólf
Vitni sjá Þórólf Árnason, forstjóra
Samgöngustofu og fyrrverandi
borgarstjóra Reykjavíkur, hlaupa
undan mjög reiðum, stórum leður
klæddum manni í Ármúla. Þórólfur
hljóp með símann í hendi en vitni
segja að forstjórinn hafi hringt sjálf
ur á lögregluna sem kom skömmu
síðar. Maðurinn taldi sig hlunnfar
inn í samskiptum sínum við Sam
göngustofu.
13. mars
Neituðu
að mæta í
veislu
„Það ætlar
enginn frá okkur,“
segir Helgi Hrafn
Gunnarsson, þing
maður Pírata, í sam
tali við DV, en þingmenn
stjórnarandstöðu sniðgengu þing
veislu í Súlnasal Hótel Sögu vegna
trúnaðarbrests milli forseta Alþingis
og stjórnarandstöðunnar. Einar K.
Guðfinnsson hafði þá hafnað beiðni
um að halda sérstakan þingfund til
að fara yfir stöðuna í Evrópusam
bandsmálinu.
17. mars
Ákærður fyrir að draga
sér 15 milljónir
Lögreglumanni á sextugsaldri, sem
sætir ákæru fyrir fjárdrátt, er vikið
frá störfum. Maðurinn, sem starf
aði sem lögreglumaður á Vestfjörð
um þar til í desember í fyrra, dró
sér 15,5 milljónir króna úr sjóðum
Félags íslenskra leikara. Fjárdráttur
inn náði yfir fimmtán ára tímabil en
maðurinn nýtti féð í eigin þágu, auk
þess sem hann millifærði eina millj
ón króna á reikning móður sinnar.
17. mars
Íslendingur grunaður
um milljarðasvindl í
Bandaríkjunum
Lögreglan í Kaliforníu í Bandaríkj
unum lýsir eftir Alfreð Erni Clausen
en hann er sagður hafa stolið um 44
milljónum Bandaríkjadala. Alfreð
Örn er sagður hafa svikið út peninga
hjá viðskiptavinum lögfræðistofu
sem hann á og rekur en samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu
yfirvöldum í Kaliforníu
þá leituðust viðskipta
vinir hans eftir því
að endursemja um
lánagreiðslur.
Tveir samstarfs
félagar Alfreðs,
Stephen Siringor
ingo og Joshua
Michael Cobb, voru
handteknir í tengsl
um við svikamálið þann
fimmta mars síðastliðinn og
verða þeir ekki látnir lausir nema
þeir greiði 17 milljónir dollara í
lausnargjald. Alfreð segist ekki vera
eftirlýstur á Íslandi og kveðst ekki
viss um hvort hann ætli að gefa sig
fram við bandarísk lögregluyfirvöld
en hans gæti beðið allt að þrjátíu
ára fangelsisdómur ef hann verður
fundinn sekur. Íslenskir ríkisborgar
ar eru aldrei framseldir til annarra
ríkja.
20. mars
Sólmyrkvi
Íslendingar fylgjast spenntir með
sólmyrkva, vopnaðir sólmyrkva
gleraugum eða logsuðugleri. Sævar
Helgi Bragason, formaður Stjörnu
skoðunarfélags Seltjarnarness,
stendur uppi sem einn af mönn
um ársins, en hann tryggði öllum
grunnskólabörnum á landinu frí
sólmyrkvagleraugu, stóð fyrir mikilli
fræðslu og gerði Íslendinga að sérs
tökum aðdáendum sólmyrkvans.
20. mars
Tapar í
formannskosningu
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir tapar
fyrir Árna Páli Árnasyni, sitjandi
formanni Samfylkingarinnar, í for
mannskjöri á landsfundi. Eitt at
kvæði skilur í milli.
23. mars
Veltu bíl af konu
Najdan Ilievski og Nikola Tisma
unnu ótrúlega hetjudáð á Garð
skagavegi þegar þeir veltu bíl, með
handaflinu einu, til að bjarga konu
og tveimur börnum hennar
eftir að bíll þeirra endaði á
hvolfi utan vegar.
25. mars
#freethen-
ipple
Íslenskar konur taka
yfir Twitter með #freethe
nipple byltingunni.
Hundruð íslenskra kvenna birtu
myndir af berum brjóstum sínum
á samfélagsmiðlum og uppskáru
heimsathygli og vitundarvakn
ingu. Kröfðust þær þess að konur