Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Qupperneq 17
Áramótablað 29. desember 2015 Fréttir Innlendur fréttaannáll 17
gætu gengið um berbrjósta, ef þeim
sýndist svo, líkt og karlmenn og að
hætt væri að klámvæða brjóst og
líkja þeim við kynfæri. Forsprakk-
inn, Adda Þóreyjardóttir Smáradótt-
ir, fór mikinn og vakti verðskuldaða
athygli fyrir vasklega framgöngu.
Þetta var fyrsta kvennabyltingin af
mörgum á samfélagsmiðlum.
28. mars
Látinn
í tvo
mánuði
Rúmlega
fertugur
karlmað-
ur fannst
látinn í íbúð
sinni í fjölbýlis-
húsi í Reykjavík, en
það var aðstandandi mannsins sem
fann hann látinn. Maðurinn hafði
verið látinn í tvo mánuði, án þess að
nokkur vitjaði hans.
30. mars
700 milljóna áhlaup
Áhlaup viðskiptavina Sparisjóðs
Vestmannaeyja (SV) nam tæpum
700 milljónum króna, en viðskipta-
vinir höfðu nokkrum dögum fyrr
byrjað að taka út reiðufé í aukn-
um mæli og færa innlán til annarra
banka.
APRÍL
7. apríl
Verkföll hefjast
Verkföll hjá Ljósmæðrafélagi Ís-
lands, Stéttarfélagi lögfræðinga,
Stéttarfélagi háskóla-
manna á matvæla-
og næringarsviði,
Félagi háskóla-
menntaðra
starfsmanna
stjórnarráðsins,
Félagi ís-
lenskra nátt-
úrufræðinga,
Félagi geisla-
fræðinga og Félagi
lífeindafræðinga hefjast.
500 starfsmenn lögðu niður störf í
ótímabundnu verkfalli, með tilheyr-
andi röskun á þjónustu.
7. apríl
Hvaða Óli
Ingibjörg Kristjánsdóttir, eiginkona
Ólafs Ólafssonar, telur að niður-
staða Hæstaréttar í Al-Thani-málinu
byggi á misskilningi. Hún segir að
Hæstiréttur hafi vísað, í forsendum
dómsins, til símtals í gögnum máls-
ins þar sem kemur fram að ítrekað
sé talað við „Óla.“ Ingibjörg segir að
þar ekki sé verið að tala um eigin-
mann sinn heldur annan mann,
lögfræðing, sem ber sama fornafn.
Björn Þorvaldsson, saksóknari sem
sótti Al-Thani-málið fyrir hönd
sérstaks saksóknara, segir ekki rétt
að í gögnum málsins sé verið að
tala um annan „Óla“. Hann segir að
ef svo væri þá hefði það ekki breytt
neinu um niðurstöðu dómsins.
7. apríl
Íslendingar á leið á
stríðssvæði
Tveir sendifulltrúar Rauða krossins,
Elín Jakobína skurðhjúkrunar-
fræðingur og Jón Magnús bráða-
læknir, koma til með að sinna
stríðssærðum. Þau verða í
skurðlæknateymum Alþjóða
Rauða krossins (ICRC) en í
hverju slíku teymi eru skurð-
læknir, svæfingalæknir og
hjúkrunarfræðingur.
9. apríl
Sömdu
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrum að-
stoðarmaður innanríkisráðherra, og
Tony Omos hafa náð sátt um bæt-
ur fyrir þann skaða sem Tony hlaut
vegna lekamálsins svokallaða. Eins
og þekkt er orðið lak Gísli Freyr
persónuupplýsingum um Tony til
fjölmiðla og úr því varð lekamálið.
Tony krafði Gísla Frey upphaflega
um fimm milljónir króna í bætur
fyrir þann skaða sem hann hlaut
vegna málsins, en ekki liggur fyrir
hvernig sátt náðist í málinu. Gísli
hafði áður gert samkomulag við
aðra málsaðila, íslenska konu sem
var nafngreind í minnisblaði sem
hann sendi fjölmiðlum með trúnað-
arupplýsingunum, og Evelyn Glory
Joseph, barnsmóður Tonys.
9. apríl
Einn sekur, ellefu
saklausir
Aðeins einn af þeim tólf
starfsmönnum Byko,
Húsasmiðjunnar og Úlfs-
ins sem grunaðir voru um
verðsamráð, var dæmd-
ur sekur, hinir voru
allir sýknaðir. Sá sem
var dæmdur var fram-
kvæmdastjóri fagsölu-
sviðs Byko en hann fékk eins
mánaðar skilorðsbundinn dóm
til tveggja ára. Mennirnir neituðu
allir sök, en málareksturinn tók
fjögur ár frá því að mennirnir voru
handteknir.
10. apríl
Lést í bílslysi
Alexandru Bejinariu,
Rúmeni búsettur í
Hveragerði, lætur
lífið þegar fólks-
bifreið lenti utan
vega á Biskups-
tungnabraut
skammt frá
Alviðru. Rannsókn
lögreglu hefur leitt
í ljós að hann var far-
þegi í farangursrými bif-
reiðarinnar sem er skutbíll. Maður-
inn kastaðist út úr henni enda ekki í
öryggisbelti og endaði bifreiðin ofan
á honum.
12. apríl
Máttu ekki reka
Snorra
Akureyrarbæ var óheimilt að segja
upp Snorra Óskarssyni, sem oftast
er kenndur við Betel, í byrjun árs
2015. Ástæður uppsagnarinnar voru
ummæli Snorra um samkynhneigð,
en hann skrifaði bloggpistla sem
Akureyrarbær taldi ekki samrýmast
starfi kennarans. Eftir uppsögnina
vísaði Snorri málinu til innanríkis-
ráðuneytisins sem taldi að brott-
rekstur hans væri ólöglegur. Akur-
eyrarbær reyndi fyrir dómstólum að
hnekkja þeim úrskurði en varð und-
ir og þurfti að greiða tvær milljónir í
málskostnað.
14. apríl
Hann leitar að
börnunum
Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu skip-
ar lögreglumann í fulla
stöðu við að hafa uppi á
ungmennum sem týnast
eða láta sig hverfa. Lögreglu-
maðurinn, Guðmundur, fór ítar-
lega yfir verkefnið í viðtali
við DV, þar sem hann
greindi meðal annars frá
því að þeir sem tæla til
sín ungmenni og hjálpa
þeim ekki að komast aft-
ur heim geti átt yfir höfði
sér kærur.
14. apríl
Ekkert
Eurovison?
Verkföll sliga landsmenn og þjóðar-
búinu stendur ógn af vinnudeilum.
Verkfall BHM hefur þegar haft víð-
tæk áhrif, en DV greinir frá því að
ekki sé nóg að fasteignakaup og
þinglýsingar sitji allar á hakan-
um heldur geti Eurovision-
þátttöku Íslands verið
stefnt í stórfellda hættu
vegna þess að engar lög-
bókandagerðir geti farið
fram. Málið leystist far-
sællega stuttu seinna, en
það stóð tæpt um tíma.
14. apríl
Slys við Reykdalsstíflu
Tveir bræður lenda í kröppum
dansi við Reykdalsstíflu í Hafnar-
firði þegar annar þeirra ákveður að
elta bolta út í vatnið. Hann lenti í
vandræðum og fór þá bróðir hans á
eftir honum. Drengirnir festust í af-
fallinu og voru í sjálfheldu og lentu
tveir karlmenn sem reyndu að að-
stoða þá einnig í vandræðum. Báðir
drengirnir voru fluttir þungt haldn-
ir á sjúkrahús, en hafa náð fullum
bata.
19. apríl
Vatnið streymir
Um 400 lítrar af níu gráða heitu
vatni streyma á hverri sekúndu úr
misgengissprungu sem opnaðist í
Vaðlaheiðargöngum. Þetta er í ann-
að sinn sem stór vatnsæð opnast
í Vaðlaheiðargöngum. Í febrúar í
fyrra opnaðist sprunga sem dældi
um 380 lítrum af 46 gráðu heitu
vatni inn í göngin Eyjafjarðarmegin.
20. apríl
Nýr rektor
Jón Atli Benediktsson fékk 54,8% at-
kvæða í seinni umferð rektorskjörs í
Háskóla Íslands og er því nýr rektor
háskólans. Mótframbjóðandi hans,
Guðrún Nordal, hlaut 42,6% at-
kvæða.
MAÍ
2. maí
Flugfélögum
fjölgar enn
Flugfélögin Airberlin og Lufthansa
frá Þýskalandi, hið banda-
ríska Delta og spænska
lággjaldaflugfélagið
Vueling bætast í
hóp átta flugfé-
laga sem bjóða
upp á reglulegar
ferðir til og frá
Keflavíkurflug-
velli. Metfjöldi
ferðamanna sækir
Ísland heim á hverju
ári og ekkert lát virðist á
þeirri þróun.
5. maí
Dýrin skulu burt
DV greinir frá því að bann hafi verið
lagt á dýrahald í leiguíbúðum Ör-
yrkjabandalagsins við Hátún
og Sléttuveg. Stjórn
Dýraverndarsam-
bands Íslands telur
mannfjandsam-
legt að krefjast
þess af íbúum að
þeir losi sig við
dýrin. Íbúar safna
undirskriftum en
ákvörðuninni fæst
ekki haggað.
6. maí
Skorað á forsetann
Ríflega 30 þúsund Íslendingar skrifa
undir áskorun til forseta Íslands
um að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu
öllum lögum sem Alþingi
Gylfaflöt 3 - Sími 567 4468 - www.gummisteypa.is