Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Qupperneq 32
32 Fréttir Erlendur fréttaannáll Áramótablað 29. desember 2015 OKTÓBER 3. október Spítali sprengdur 22 tveir létu lífið, þar af 12 starfsmenn og 7 sjúklingar, þegar bandaríski her- inn gerði loftárás á sjúkrahús í Kunduz í Afganistan. Sjúkra- húsið var rekið af góðgerðarsamtök- unum Læknar án landamæra. Skömmu eftir atvikið gáfu bandarísk stjórnvöld út yfirlýsingu þar sem upplýst var að árásin hafi verið gerð á vígamenn talíbana, en það „kunni að hafa orðið skemmdir á nærliggjandi sjúkrastofnun“. Sameinuðu þjóðirnar og fleiri alþjóðleg samtök og stofnan- ir fordæmdu atvikið og kölluðu eftir rannsókn. Læknar án landamæra tilkynntu tveimur dögum síðar að þeir yrðu að loka starfsstöð sinni í Kunduz, vegna skemmda. 10. október Sprengjuódæði í Ankara Tvær sprengjur sprungu við friðar- göngu í Ankara, höfuðborg Tyrk- lands, með þeim afleiðingum að nærri hundrað mans létu lífið og hundruð særðust. Var þetta ein mannskæðasta hryðjuverkaárás í Tyrklandi um árabil. Sprengjunum hafði verið komið fyrir á tveimur stöðum, skammt frá hvor annarri og sprungu nær samtímis nærri að- allestarstöð Ankara. Enginn lýsti ábyrgð á hendur sér fyrst um sinn en Ahmet Davutoglu, forsætisráð- herra Tyrklands, sagði ýmislegt benda til að um sjálfsvígs- sprengjuárás hafi verið að ræða. 15. október Hörð átök í Palestínu Fyrstu tvær vikur október voru blóði drifnar í Palestínu og Ísr- ael þar sem 32 Palestínumenn og sjö Ísraelsmenn létu lífið í átök- um. Upphafið má rekja til þess að Palestínumenn töldu yfirgang Ísraelsmanna fullmikinn við al- Aqsa-moskuna á Musterishæð í Jerúsalem, sem bæði gyðingar og múslimar telja með heilögustu stöð- um á jörð. Átökin breiðast fljótt út til annarra staða. Frakkar leggja til á fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna að alþjóðlegum eftirlitsmönn- um verði komið fyrir við al-Aqsa en því hafna Ísraelsmenn. 19. október Óvænt úrslit í Kanada Justin Trudeau og Frjálslyndi flokk- urinn hans vinna óvæntan kosn- ingasigur í þingkosningunum í Kanada. Frjálslyndi flokkurinn hlýtur 39,5 prósent atkvæða og 184 þing- sæti af 338. Íhaldsflokkur sitjandi forsætisráðherra, Stephen Harper, hlýtur 31,9 prósent atkvæða og 99 sæti. Niðurstaðan er talin endurspegla að Kanada- menn hafi verið orðnir langþreyttir á íhalds- samri og afskiptasamri stjórnsýslu Harpers sem setið hafði í níu ár. Trudeau tekur við sem forsætisráðherra, 47 árum eftir að faðir hans, Pierre Elliott Trudeau gegndi því embætti. Trudeau, sem er 43 ára, er næstyngsti forsætis- ráðherra í sögu Kanada og þykir koma sem ferskur blær inn í stöðnuð stjórnmál Kanada. 29. október Lögum um fjölda barna breytt Kínversk stjórnvöld ákveða að breyta til og afnema 35 ára gömul lög í landinu sem höfðu hamlað hjónum að eignast fleiri en eitt barn. Tilkynnt er að hjón megi nú eignast tvö börn og standa vonir til að það hjálpi til við að endurnýja vinnuafl þjóðarinn- ar, sem sé sífellt að eldast. NÓVEMBER 4. nóvember Sögulegur leiðtogafundur Það var til marks um batnandi samskipti þjóðanna þegar tilkynnt var í upphafi nóvember að forset- ar Taívan og Kína myndu hittast á fundi í fyrsta skipti síðan 1949. Slíkur fundur hefði þótt óhugsandi fyrir aðeins tíu árum síðan en sam- band þessara tveggja kaldastríðsóvina hef- ur losnað úr klaka- böndum undanfarin misseri. Fundurinn fór fram í Singapúr, á hlutlausum vettvangi. 4. nóvember Örlagaríkur skemmti- staðarbruni Victor Ponta, forsætisráð- herra Rúmeníu, var steypt af stóli í kjöl- far háværra mót- mæla eftir að 32 létu lífið í stórbruna á skemmtistað í lok október. Mótmæl- endur komu saman í Búkarest og gagnrýndu stjórnvöld harðlega fyr- ir leyfisveitingar og eftirlit með samkomustöðum. Ponta ákvað að axla sína ábyrgð og stíga til hliðar með þeim orðum: „Ég get tekið alla pólitíska slagi en ég get ekki barist við fólkið.“ 13. nóvember Blóðbað í París Hryðjuverkasamtökin ISIS skipu- leggja þrjár aðskildar árásir í Par- ís, höfuðborg Frakklands, þar sem hópur manna vopnaður hríð- skotabyssum og sprengjum myrð- ir 129 manns og skilur hundruð einstaklinga eftir í sárum sínum. Mannskæðasta árásin varð á tón- leikastaðnum Bataclan þar sem bandaríska rokksveitin Eagles of Death Metal hélt tónleika. Alls 89 tónleikagestir voru myrtir. Sjö af átta árásarmönnum ISIS létu lífið í árásunum en sá áttundi, Abdel- hamid Abaaoud, sem talinn er hafa skipulagt árásina, er hundeltur og drepinn í norðurhluta París 18. nóvember. Sönnunargögn finnast sem bendla Abaaoud við skipulagningu fjögurra hryðjuverkaárása í París bara á þessu ári, þar á meðal lest- arárásina sem komið var í veg fyrir í ágúst og greint hefur verið frá hér. Hryðju- verkin eru mannskæð- asti harmleikur í sögu Frakklands síðan í síðari heimsstyrj- öldinni. Viðbrögð- in við árásunum eru hörð og fyrirskipa leiðtogar þjóða á borð við Frakkland, Bretland, Rússland og Bandaríkin loft- árásir á höfuðvígi ISIS í Sýrlandi. 20. nóvember Hótelhryðjuverk í Malí Íslamskir öfgamenn gera áhlaup á Radisson Blu-hótelið í Bamako, höfuðborg Malí, og taka 170 manns í gíslingu. Franskir og bandarísk- ir sérsveitarmenn bregðast skjótt við og gera rassíu á bygginguna og endurheimta yfirráð yfir henni hæð fyrir hæð. Að minnsta kosti 27 manns létu lífið, þar af tveir árásarmannanna. Öfgahópur tengd- ur al-Qaeda, lýsir ábyrgð á hend- ur sér. Frakkar líta á þetta sem aðra árás á hagsmuni sína þar sem Malí er gömul frönsk nýlenda. 24. nóvember Rússnesk þota skotin niður Tyrkir skjóta niður rússneska orr- ustuþotu og gefa þær ástæður að þotan hafi rofið lofthelgi Tyrklands og að flugmennirnir hafi hunds- að ítrekaðar viðvaranir eftirlitsað- ila. Annar af tveimur flugmönnum þotunnar lætur lífið. Rússar hafa aðra sögu að segja og Vladimir Pútín segir að Tyrkir hafi stungið Rússa í bakið. Hann heitir því að árásin muni hafa alvarlegar afleiðingar en þetta var í fyrsta skipti í 50 ár sem NATO-þjóð skýtur niður rússneskt loftfar. 30. nóvember Söguleg loftslags- ráðstefna Loftslagsráð- stefna Sameinuðu þjóðanna hefst í París þar sem miklar vonir eru bundnar við að helstu þjóðarleið- togum takist að koma böndum á hnattræna hlýn- un. Við tekur tveggja vikna mara- þonráðstefna þar sem 30 þúsund erindrekar og fulltrúar reyna að finna hinn gullna meðalveg sem all- ar þjóðir geta sætt sig við varðandi það markmið að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. DESEMBER 12. desember Samkomulag í París Þjóðarleiðtogar um allan heim fagna niðurstöðu loftslagsráðstefnunnar í París og segja samkomulag- ið marka tímamót eft- ir langar og strangar samningaviðræð- ur. Hinn bindandi samningur fyrir 195 aðildarríki Sameinuðu þjóð- anna, kveður með- al annars á um að hlýnun jarðar verði ekki meiri en 2 gráður á þessari öld, en að reynt verði að takmarka hana við 1,5 gráður. Þá verður 100 milljörðum dala veitt til þróunarríkja til að ná markmiðum í loftlagsmálum. Gagnrýnendur benda á að þó að samningurinn sjálfur sé bindandi þá séu markmið einstakra ríkja um að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda það ekki. 14. desember Ekki verk hryðjuverkamanna Stjórnvöld í Egyptalandi lýsa því yfir að engar sannanir séu fyrir því að rússnesku farþegaþotunni sem fórst yfir Sínaí-skaga í október hafi verið grandað af hryðjuverkamönn- um. 224 létust í slysinu. Vitnað var í bráðabirgðaskýrslu sem segir að ekkert bendi til hryðjuverkaárásar. 18 desember Drög að vopnahléi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkir ályktun þar sem leitast verður eftir því að koma á friði í Sýr- landi. Reynt verður að hefja friðar- viðræður milli Assad-stjórnarinnar og uppreisnarmanna í janúar næst- komandi. 19. desember Bretar til þjóðarat- kvæðagreiðslu David Cameron, for- sætisráðherra Bret- lands, lýsir því yfir að hann nálgist samkomulag við leiðtoga annarra Evrópuríkja um breytingar á Evrópusambandinu. Cameron hafði lagt fram tillögur um víðtækar um- bætur en hann stefnir á að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi á næsta ári um nýjan samning Bret- lands við ESB. Í henni mun væntan- lega ráðast hvort Bretar verði áfram í sambandinu eða segi sig úr því. 20. desember Hafna hjónabandi samkynhneigðra Slóvenar hafna lögum sem hefðu heimilað hjónabönd samkyn- hneigðra í landinu í þjóðarat- kvæðagreiðslu með yfirgnæf- andi meirihluta. 63 prósent kjósenda voru á móti því að leyfa hjónaband samkynhneigðra en að- eins 37 prósent voru því fylgjandi. Þingið hafði samþykkt lögin en íhalds- menn með liðsinni kaþ- ólsku kirkjunnar knúðu fram þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. 22. desember Milljón flóttamanna til Evrópu Alþjóðlega stofnunin um fólksflutn- inga (IOM) greinir frá því að rúm- lega ein milljón flóttamanna hafi komið til Evrópu það sem af er ári. Langflestir í gegnum Grikkland, eða rúmlega 821 þúsund manns. Flestir hælisleitendanna og flótta- mannanna komu frá Sýrlandi, Afríku og Suður-Asíu. IOM greinir frá því að um sé að ræða mestu fólksflutninga síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Eins og fram hefur komið í þess- um annál þá hafa þessi ferðalög kostað sitt. Tæplega fjögur þúsund manns létu lífið í tilraun til að kom- ast til Evrópu í leit að betra lífi. KR flugeldaR KR Heimilinu Frostaskjóli Opið til kl.22 í dag Og til kl.16 á gamlársdag
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.