Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Side 58
Áramótablað 29. desember 201512 Völvuspáin 2016
sjónarspil og hálfgerður glund
roði skapast í tengslum við þessa
miklu veislu. Athöfnin sjálf fer fram
á Þingvöllum og hefur íslenskur
almenningur ekki orðið vitni að
annarri eins öryggisgæslu eins og
við þetta tækifæri. Hjónin gefa út
yfirlýsingar í kjölfarið og þakka Ís
lendingum gestrisnina og dásama
fegurð lands og þjóðina sjálfa.
Íslenskir ferðaþjónustufrömuð
ir meta landkynninguna, sem þessu
fylgir, á margar milljónir dollara.
Hneyksli
Hneykslismálin verða
nokkur á þessu
ári. Völvan dæs
ir. Smæðin og
tengslin eru svo
erfið í þessu litla
landi okkar. Eitt
hneykslismálið
tengist Landeyja
höfn. Þar munu
kom fram upplýs
ingar sem varpa nýju
ljósi á framkvæmdina og
margt henni tengt.
Lögreglan á höfuð
borgarsvæðinu mun
þurfa að glíma við
erfið mál. Þar munu
verða tilfærslur á
nokkrum af toppun
um. Þeim er ekki sagt
upp en þeim verður
ýtt út í kuldann. Ýms
ir úr þeirra röðum þola
ekki að taka við skipunum
úr hendi kvenna. Það jafn
gildir uppsögn þó að það heiti eitt
hvað allt annað.
Utanríkisþjónustan mun glíma
við erfitt mál og ógeðfellt. Þar munu
embættismenn þurfa að verja gjörð
ir sínar á kostnað skattgreiðenda.
Verktakagreiðslur úr tíð síðustu
ríkisstjórnar munu
koma upp á yfirborðið og
þar mun koma í ljós hversu margir
fengu háar greiðslur fyrir mismerki
lega aðstoð við ríkisstjórnina. Vin
ir ríkisstjórnarinnar fengu margir
greitt fyrir ólíklegustu viðvik. Þessi
umræða mun varpa nýju ljósi á svo
margt og útskýra tengsl og hags
muni. Þetta mun auka enn á sundr
ung og vandræði á vinstri væng
stjórnmálanna. Jafnframt verður
kastljósinu í kjölfarið beint að
vildarvinaráðningum þessarar ríkis
stjórnar og þolir ekki allt þar mikla
skoðun.
Endurkoma útrásarvíkings mun
verða afskaplega umdeild, en út
spyrst að hann hafi eignast dágóðan
hluti í Íslandsbanka. Þetta fer mjög
öfugt ofan í marga.
Fjölmiðlar
Ríkisútvarpið á undir högg að sækja
á árinu. Bruðl og óábyrg fjármála
stjórn verður gagnrýnd. Uppsagn
ir verða á fyrri hluta árs. Skoðana
kannanir sýna dvínandi traust
til RÚV. Kastljós, sem ver
ið hefur flaggskip RÚV,
verður aflagt í þeirri
mynd sem tíðkast
hefur um langt
skeið. Helgi Selj
an flytur sig yfir
á Skjá Einn og
hyggur á land
vinninga þar.
Hraðfréttir deyja
drottni sínum og
niðurskurðurinn
verður ákaflega sýni
legur. Þetta er ár hnignunar
hjá RÚV. Á sama tíma mun mennta
málaráðherra, Illugi Gunnarsson,
eiga í vök að verjast. Óhikað mun
Ríkisútvarpið sækja áfram að hon
um og hagsmunabaráttan verður
grímulaus. Báðir málsaðilar munu
skaðast vegna þessa. Fréttastofa
RÚV verður enn og aftur gagnrýnd
harkalega fyrir að gæta ekki hlut
leysis. Það dregur úr trausti almenn
ings á stofnunina.
Magnús Geir er ekki líklegur til
að verða útvarpsstjóri út árið. Leit
að verður til Eyþórs Arnalds um að
taka við keflinu. Hann gæti blómstr
að í nýju hlutverki, enda óhræddur
að taka slaginn.
Fréttatíminn kemur inn á fjöl
miðlamarkaðinn með látum í byrj
un árs. Gunnar Smári fer mikinn
og sankar að sér öflugum blaða
mönnum. Útgáfudögum verð
ur fjölgað og Gunnar Smári fer
í beina og harða samkeppni
við Fréttablaðið – sitt gamla
hugarfóstur. Sú samkeppni
verður blóðug og hörð enda
harðskeyttir kaupsýslumenn í
eigendahópi beggja miðla.
Fréttatíminn kaupir upp
nokkra af smærri fjölmiðlunum.
Kjarninn og Stundin ásamt fleir
um koma upp í hugann, enda
aðsókn dræm og tekjur litlar.
Tvær grímur renna hins vegar á
nýja eigendur blaðsins eftir því sem
ráðningum Gunnars Smára fjölgar.
Hann er betri í að eyða peningum
en afla þeirra, þótt margt sem hann
geri sé mjög sniðugt. Kostnaðurinn
er við að sliga blaðið þegar líður á
árið. Uppgjör verður í lok árs. Það
verður harkalegt.
Allir fjölmiðlar á Íslandi berjast
í bökkum. Sjónvarpsstöðvarnar
eru eins og beljur á svelli. Neyslu
mynstur hefur breyst svo hratt að
þær hringsnúast og vita ekki sitt
rjúkandi ráð. Reksturinn er þungur
hjá 365 og Morgunblaðinu. Áfram
verða uppsagnir hjá 365 og mikla
athygli mun vekja þegar Jón
Gnarr hættir óvænt.
Viltu vita hvað
gerist hjá DV?
Já, auðvitað. –
Þar verður hagn
aður á næsta ári
í fyrsta sinn frá
því elstu menn
muna. Það mun
sannarlega þykja
saga til næsta
bæjar.
„Ætli hún sé að
stríða mér?“
Verða að selj ánn Þetta fólk
stendur í stórræðum á árinu.
Helgi Seljann færir sig yfir til 365.
TERTUR
PAKKAR
RAKETTUR
SMÁVARA
OPNUNARTÍMAR
28.- 29.- 30. des. 10–22
31. desember 9–16
www.stjornuljos.is