Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Side 62
Áramótablað 29. desember 201516 Völvuspáin 2016
talin ein af þeim stærstu sem ráðist
hefur verið í. Baltasar er kominn á
áður óþekktar slóðir í kvikmynda
heiminum, þegar Íslendingur á í
hlut.
Víkingafjár-
sjóður og
lottóVinningur
„Árið 2016 verður athyglisvert ár
þegar horft er til fornleifa.“ Völva lítur
út um gluggann. Það er fullt tungl.
„Straumarnir eru sterkir og skyggn
ið er gott.“ Hún umlar þetta í átt að
kristalskúlunni. Þögnin sem á eftir
fylgir fyllir mann eftirvæntingu. Hún
skrifar á blað, eitt orð – fjársjóður.
Þetta er spennandi. Það er helst
á henni að skilja að fornleifarann
sóknir gefi til kynna merkari fund
en áður hefur fundist á Íslandi. Ekki
kannski endilega í því samhengi að
varpa ljósi á sögu landnáms á Ís
landi, miklu fremur hvað
varðar verðmæti. Þarna
finnst gull og fagrir
steinar. Margvíslegar
getgátur verða til í
tengslum við forn
minjarnar. Hluti
fjársjóðsins er frá
menningarheimi
sem ekki var vit
að áður að víkingar
hefðu heimsótt.
Spurningum fjölgar
eftir því sem meira er
rannsakað af þessum merku
minjum. Deilur spretta upp vegna
staðsetningar fornminjanna og
landeigandi telur sig eiga tilkall til
hluta fjársjóðsins. Lögregla þarf að
skerast í leikinn.
Völvan lítur
upp og í fyrsta skipti
er eftirvænting í augun
um. Hún segir glottandi; „Þetta
er enginn hafnargarður. Þetta er
alvöru.“ Augun verða aftur sljó.
Stærsti lottóvinningur sem Ís
lendingur hefur unnið kemur úr
Víkingalottóinu. Upphæðin er
hundruð milljóna. Vinningshafinn
kemur fram í dagsljósið og lætur
gott af sér leiða á mörgum sviðum.
Þetta er ein af fallegri sögum ársins.
Ég ákveð að stríða henni aðeins.
Sérðu nokkuð tölurnar?
Henni er ekki skemmt. Hún
skrifar tölu á blað og hvolfir því. „Þú
mátt sjá hana þegar við erum búin.“
Mengun – á
sjó og á landi
Hún sér margvíslega
mengun á árinu.
Eitt af því sem
greinilega
veldur henni
áhyggjum
er Hellis
heiði. Hún
telur að þar
séu ekki öll
kurl komin
til grafar og
að þær gufur
sem þar stíga til
himins séu mun
hættulegri en
áður var talið.
Að sama skapi
er niðurdæling
Orkuveitunnar
hættuleg. Hún
raskar jafnvægi
sem við höfum
ekki hugmynd um
að er til staðar.
Hvað áttu við?
Hún veit það ekki og
segist ekki sjá í því myrkri sem þar
ríkir en í daufu tunglskini má sjá á
upphandlegg hennar að hún fær
gæsahúð. Ósjálfrátt fæ ég gæsahúð
líka. Hvað getur þetta verið? Hún
segir að við þekkjum ekki öll þau
öfl sem eru í kringum okkur. „Sumt
á bara ekki að snerta.“ Hún vill ekki
ræða þetta frekar.
Olía lekur í sjó á strandstað. Þar
fer allt á versta veg. Ekki verður
mannskaði en mikil olíumengun
sem ekki er hægt að ráða við. Dýra
líf bíður mikinn skaða og mikið af
fugli drepst. Selir lenda líka í olíunni
og þetta verður nöturlegt að horfa
á. Fjöldi fólks leggur sitt af mörkum
við að bjarga fuglum og dýrum en
tjónið verður mikið og Íslendingar
hafa ekki séð svona mikla olíu
mengun áður.
Mengun kemur einnig upp í
vatnsbóli í sveitarfélagi, ekki langt
frá Reykjavík. Fyrst í stað veikjast
margir og er óttast að um einhvers
konar hermdarverk sé að ræða.
Annað kemur á daginn og skýring
finnst á málinu. Málið verður erfitt
fyrir viðkomandi bæjarstjórn sem
ekki hafði sinnt viðvörunum sem
höfðu borist.
kristalskúlan
dofnar
Við finnum bæði að þetta er
að verða gott. Ég bið hana
um að leggja frá sér skrif
færin og horfa í augun
á mér. Hún gerir það.
Einkennileg birtan úr
kúlunni í bland við
kertaljós blikar í aug
um hennar.
Ef þú ættir að taka
saman það sem þú hefur
sagt mér. Hvernig ár verður
þetta? Árið 2016?
Hún glottir. „Það er
ekki mitt að segja. Ef
þú vinnur í Víkinga
lottóinu er það sjálf
sagt gott ár. Ef þú
sætir opinberlega
ásökunum um að
hafa ekki staðið þig í
leik eða starfi, er það
sjálfsagt vont ár.“
En á heildina litið?
Fyrir þjóðarhag?
Hún hugsar sig um. „Ég held
að ég verði að segja að miðað við
síðustu sjö ár þá séum við að horfa
fram á fyrsta árið af sjö sem muni
flokkast sem góð ár. Ég vona bara
að við berum gæfu til að nota þessi
komandi ár vel. Notum hina bitru
reynslu sem er að baki til að vanda
okkur nú þegar í hönd fara góð ár.“
Er þetta ekki klisja – sjö mögur ár
og sjö góð ár? Er þetta ekki bara upp
úr Biblíunni?
Hún horfir á mig vorkunnaraug
um. Segir svo að sjö mögur ár séu
að baki og hún telji að sjö góð ár séu
framundan. „Ég er ekki að vitna í
Biblíuna eða slík rit sem ég trúi ekki
á. Þetta er það sem ég skynja þegar ég
horfi fram á veginn. Hin sjö árin, sem
eru liðin, hafa ekkert með það að gera
sem við höfum rætt. Þau eru liðin.“
Ég þakka henni fyrir. Þetta er búið
að taka tvo daga og við erum bæði
nokkuð lúin eftir þetta. Um leið og
ég stend upp og kveð og held til dyra,
kallar hún á eftir mér.; „Vildirðu ekki
sjá töluna?“ Jú, alveg rétt. Hún réttir
mér blaðið. Þar er talan 18. n
Myrk öfl á HellisHeiði Völvan varar við
áður óþekktum öflum sem fara á kreik.
TERTUR
PAKKAR
RAKETTUR
SMÁVARA
OPNUNARTÍMAR
28.- 29.- 30. des. 10–22
31. desember 9–16
www.stjornuljos.is