Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Síða 87
Áramótablað 29. desember 2015 Fólk 59
Óhætt er að fullyrða að Ís-
land hafi sjaldan fengið jafn mikla
landkynningu og með heimsókn
Biebers. Tónlistarmyndbandið
sem hann tók upp sýnir náttúru-
fegurðina vel, en það hefur fengið
tugi milljóna áhorfa á Youtube, og
sjálfur var hann duglegur að birta
myndir frá heimsókninni. Hann
fékk reyndar ákúrur frá náttúru-
verndarsinnum fyrir hafa ekki bor-
ið nógu miklu virðingu fyrir náttúru
landsins og einhverjir óttuðust að
aðrir ferðamenn myndu apa hegð-
unina eftir honum og skaða náttúr-
una þannig meira en ella. En Bieber
heillaðist það mikið af Íslandi að
hann ætlar að koma aftur og þá til
að halda tónleika. Staðfest hefur
verið að Evrópuhluti Purpose-tón-
leikatúrs hans hefjist í Kórnum í
Kópavogi 9. september 2016. Eru
þetta einir stærstu tónleikar sem
haldnir hafa verið hérlendis. Alls
verða 19 þúsund miðar í boði.
Nágranni tróð upp á Spot
Það vakti töluverða athygli í byrj-
un árs þegar ástralski leikarinn
Alan Fletcher sem einhverjir muna
eftir sem Karli Kenn-
edy í sjónvarpsþátt-
unum Nágrönnum,
kom hingað til lands
ásamt hljómsveit sinni
The Waiting Room
til að halda tónleika á
skemmtistaðnum Spot.
„Ég vissi ekki að Ná-
grannar væru sýndir í
sjónvarpinu á Íslandi
fyrr en íslenskir Face-
book-vinir mínir sögðu
mér að hálf þjóðin hefði
fylgst með þeim í mörg
ár,“ sagði Alan í samtali
við blaðamann DV í jan-
úar. En hann sagðist jafn-
framt vera mjög hrifinn
af Íslandi og það væri án
efa eitt fallegasta land í
heimi. Ekki fylgir sögunni hvernig
tónleikarnir heppnuðust en það er
spurning hvort fleiri miðar hafi selst
út á þá staðreynd að hinn viðkunn-
anlegi Karl Kennedy var í forsvari
fyrir hljómsveitina eða vegna eftir-
spurnar eftir henni sjálfri.
Kings of Lion kunnu að meta Ísland
Það ætlaði allt um koll að keyra
þegar fréttist af því að hljómsveitin
Kings of Leon ætlaði að halda tón-
leika hér á landi, sem hún gerði í
ágúst síðastliðnum. Hljómsveitar-
meðlimir stoppuðu stutt hér á landi
en náðu þó aðeins að kíkja út á lífið í
Reykjavík eftir tónleikana. Söngvari
sveitarinnar, Caleb Followill, sagði
að þeir hefðu lengið hlakkað til að
koma til Íslands og að þeir hefðu
svo sannarlega ekki orðið fyrir von-
brigðum. Hér væri frábært að vera
og þeir myndu eflaust koma aftur
síðar.
Barinn í Laugardalnum
En það eru ekki allir sem eiga jafn
gleðilegar minningar af Íslands-
dvöl sinni. Jackass-meðlimurinn
Bam Margera gerði sér ferð hingað á
Secret Solstice-hátíðina sem haldin
var í Laugardalnum í júní, en fór af
landi brott í fússi eftir að hafa verið
laminn af rapparanum Gísla Pálma
og fleirum. En barsmíðarnar náðust
á myndaband sem fór eins og eldur
í sinu um samfélagsmiðla, sem og
inn á Youtube. Þurfti Margera að leita
sér aðhlynningar á slysadeild vegna
áverkanna, en hann kærði málið ekki.
Samkvæmt sjónvarvottum var
Jackass-stjarnan í annarlegu ástandi
þegar barmsmíðarnar áttu sér stað
og áreitti hann starfsmenn hátíðar-
innar. Eftir að Margera hafði farið af
landi brott birti hann mynd af Gísla
Pálma á Instram-síðu sinni og sagði
hann bera ábyrgð á áverkunum.
Sagðist hann jafnframt hafa verið að
tala við einhvern og snúið undan og
því verið algjörlegra óviðbúinn bar-
smíðum. Sögum ber því ekki alveg
saman um hvað gerðist. n
Tók upp myndband Í fyrstu var
sagt að Bieber væri kominn hingað
til lands í frí, en síðar kom í ljós að
hann tók upp tónlistarmyndband
þar sem íslensk náttúra var í
aðalhlutverki. MyNd INSTagraM
Kings of Leon Það var
mikið stuð í Laugardalshöll-
inni í ágústmánuði þegar
Kings of Leon tryllti lýðinn.
MyNd davÍð Þór guðLaugSSoN
Nágranni á Íslandi
Alan Fletcher, sem er
þekktastur sem Karl
Kennedy í nágrönnum,
hélt tónleika með
hljómsveit sinni á Spot.
MyNd SIgTryggur arI
Íslandsóvinur Bam Margera fór frekar fúll af landi brott eftir að rapparinn
Gísli Pálmi lúskraði á honum ásamt fleirum.
Ekki sáttur Margera
vandaði kvölurum
sínum ekki kveðjuna á
Instagram síðu sinni.
MyNd SKjáSKoT/INSTagraM
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18
Lengri og breiðari
parketpLankar