Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Síða 94
66 Menning Áramótablað 29. desember 2015
Fjölbreytilegt jólabókaflóð
Kolbrún Bergþórsdóttir stiklar á stóru í jólabókaflóðinu en þar var ýmislegt sem heillaði
M
esta gróskan í jólabóka
útgáfunni þetta árið var
í útgáfu ljóðabóka og
barna og ungmenna
bóka. Lengi hafa menn
haft áhyggjur af minnkandi bókalestri
ungs fólks, en barna og unglinga
bækur fengu þetta árið glæsilegar
viðtökur. Bókin er ekki á undanhaldi
og unga kynslóðin gleymir sér í bók
um líkt og þeir sem eldri eru.
Skáldsagan lifir miklu sældar
lífi. Í þeim geira kom ekki margt sér
lega á óvart. Arnaldur Indriðason og
Yrsa Sigurðardóttir hafa undanfarin
ár heillað lesendur og selt verk sín í
bílförmum og engin breyting varð á
því þetta árið. Þýska húsið og Sog
ið rötuðu til aðdáendanna en þar
voru höfundarnir á svipuðum slóð
um og áður. Bækurnar voru ekki
meðal þeirra allra bestu en þó vel yfir
meðal lagi.
Þriðja bókin og fleiri skáldverk
Bóksalar landsins tala stundum um
„þriðju bókina“ í jólabókaflóðinu
og eiga þá við þá skáldsögu sem
vekur mesta athygli lesenda fyrir
utan bækur Arnaldar og Yrsu. Í fyrra
var það Ófeigur Sigurðsson sem stal
jólunum óvænt með skáldsögunni
Öræfi sem var óvenjuleg metsölu
bók, ekki hefðbundin í formi og ekki
alltaf auðveld aflestrar. Þetta árið
er það Auður Jónsdóttir og skáld
saga hennar Stóri skjálfti, um ofbeldi
og flókin mannleg samskipti, sem
lesendur hrifust áberandi mikið af.
Það eru alls ekki eins óvænt tíðindi
og metsala Öræfa, því Auður hef
ur átt áberandi vin sældum að fagna
síðustu ár. Staða hennar í íslenskum
bókmenntaheimi er orðin mjög
sterk.
Skáldsagnahöfundar landsins
voru á nokkuð öruggu róli í verkum
sínum. Bergsveinn Birgisson á
heiðurinn af því að hafa skrifað sér
viskulegustu skáldsögu ársins, Geir
mundar sögu heljarskinns sem rituð
er á fornu máli. Þetta er ein þessara
bóka sem lesendur verða annaðhvort
hrifnir af eða ná engu sambandi við.
Skáldsaga Bergsveins er unnin af
töluverðum metnaði og frumleika en
það nægði ekki til að tryggja höfundi
tilnefningu til Íslensku bókmennta
verðlaunanna. Fyrrum handhafi
þeirra verðlauna Eiríkur Örn Norð
dahl sendi frá sér nýja skáldsögu
Heimsku sem var ekki vel heppnuð
og hljótt var um hana. Skáldsaga
Braga Ólafssonar, Sögumaður, hefði
sannarlega mátt fá meiri athygli en
þar er Bragi í essinu sínu og hinn
lúmski húmor hans nýtur sín einkar
vel. Aðdáendur Ólafs Jóhanns Ólafs
sonar geta ekki annað en verið
ánægðir með Endurkomuna sem er
með hans betri bókum.
Einar Már Guðmundsson á
heiðurinn af því að eiga skemmti
legustu skáldsögu ársins. Hunda
dagar einkennist af mikilli frásagnar
gleði og er bæði dramatísk og fyndin.
Þetta er skáldsaga sem er sneisafull
af litríkum persónum og allar auka
persónur hennar hefðu getað orðið
aðalpersóna í skáldsögu.
Jón Gnarr, Hallgrímur Helgason
og Mikael Torfason settu sjálfa sig í
forgrunn í bókum sínum Útlaginn,
Sjóveikur í München og Týnd í Para
dís. Bók Hallgríms var áberandi best
stíluð af þessum bókum en frásagnir
Jóns Gnarr sættu þó mestum tíðind
um og ollu jafnvel deilum. Þórunn
Valdimarsdóttir tók að sér að laga
kynjahallann í skáldævisögunum og
sagði sögu sína í Stúlka með höfuð,
sem var skemmtileg þótt ekki sé hún
með bestu bókum hennar.
Tilnefningar í takt við spár
Enginn hefði átt að verða mjög undr
andi þegar kom að tilnefningum til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna í
flokki fagurbókmennta, en þær voru
í aðalatriðum í takt við spár. Venju
lega geta bókaáhugamenn gengið
út frá því að ein tilnefning í þessum
flokki komi á óvart. Þetta árið var
það bók Hermanns Stefánssonar,
Leiðin út í heim. Fyrirfram má ætla
að baráttan í þessum flokki standi
á milli Hundadaga Einars Más og
hinnar einkar vel stíluðu Eitthvað
á stærð við alheiminn eftir Jón
Kalman Stefánsson.
Frelsi og Thor
Það var mikil gróska í ljóðabóka
útgáfu þetta árið, en þrátt fyrir
fjölda góðra ljóðabóka eftir vinsæl
og viðurkennd ljóðskáld var engin
þeirra tilnefnd til Íslensku bók
menntaverðlaunanna. Sú ljóðabók
sem flestir söknuðu af tilnefninga
listanum er Frelsi, kröftug ljóðabók
Lindu Vilhjálmsdóttur. Nokkuð há
værar umræður um að gengið hefði
verðið framhjá Lindu urðu til þess
að Frelsi var ljóðabók
sem tekið var eftir og
hún seldist upp fyrir
jólin. Fyrsta ljóða
bók Bubba Morthens,
Öskraðu gat á myrkrið,
fékk verðskuldað lof
gagnrýnenda og góða
sölu og mun hafa
verið fyrsta bók jóla
bókaflóðsins sem var
endurprentuð.
Guðmundur
Andri Thorsson skrif
aði sína allra bestu
bók þegar hann gerði
föður sinn að um
fjöllunarefni í Og
svo tjöllum við okkur í rall
ið. Í bókmenntaheiminum fá menn
ekki alltaf tilnefningar og verðlaun
fyrir sína bestu bækur og þessi und
urgóða og hrífandi bók var ekki til
nefnd til Íslensku bókmenntaverð
launanna. Er hún þó ein af allra
bestu bókum ársins.
Bók um Nínu Sæmundsson og
bók með skissum Kjarvals voru kær
komnar og einkar fallega úr garði
gerðar. Páll Baldvin Baldvinsson á
heiðurinn af þyngstu bók ársins,
sem er fjögur kíló. Þessi fróðlega
bók, Stríðsárin 1938–1945, er til
nefnd til Íslensku bókmenntaverð
launanna og rataði á metsölulista.
Hún seldist upp fyrir jól, en útgef
andinn dó ekki ráðalaus og seldi
gjafabréf sem tryggja eintak af
endurprentun sem kemur í janúar.
Unaðsleg ævintýri og
áhrifamikil skáldsaga
Útgáfa þýddra úrvalsverka hefur oft
verið meiri en þetta árið. Grimms
ævintýri í endursögn Philips
Pullman er sannar
lega ein af bókum
árins. Pullman set
ur þessi vel þekktu
ævin týri í einkar að
laðandi búnað og
undurfallegar myndir
styrkja útgáfuna enn
frekar. Spámennirnir
í Botnleysufirði, eftir
danska rithöfundinn
Kim Leine, er önnur
bók sem sætir tíð
indum, en hún fékk
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs
2013. Þetta er sögu
leg skáldsaga sem gerist á 18. öld
þar sem samskipti Grænlendinga og
Dana eru skoðuð með gagnrýnum
augum. Gríðarlega vel samin bók og
áhrifamikil – ekki fyrir viðkvæma!
Gunni Helga heillar börnin
Þetta árið var mesta gróskan kannski
í útgáfu fyrir börn og ungmenni þar
sem höfundar sýna oft mikla hug
myndaauðgi í verkum sínum og
oftar en ekki fær fantasían þar að
njóta sín. Bækurnar virðast sannar
lega rata til sinna því sala á barna
og unglingabókum var einkar góð
þetta árið. Gunnar Helgason er
sigur vegarinn í þessum flokki en
bók hans Mamma klikk! sló rækilega
í gegn og fékk afar góða dóma. Ævar
Þór Benediktsson rataði einnig ofar
lega á metsölulista með Þín eigin
goðsaga.
Að sögn útgefenda og bóksala
var bóksalan fyrir þessi jól afar góð.
Þjóðin er að lesa bækur – og er það
harla gott. n
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Auður Jónsdóttir Hún er orðin mikið eftirlæti íslenskra lesenda. Mynd SiGTryGGUr Ari
Einar Már Guðmundsson Bók hans Hundadagar er skemmtilegasta skáldsaga ársins.
Mynd SiGTryGGUr Ari
Linda Vilhjálmsdóttir Margir voru
ósáttir við að ljóðabók hennar var ekki til-
nefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Mynd JoHAnn PALL VALdiMArSSon
og svo tjöllum við okkur í rallið Bók
Guðmundar Andra um Thor Vilhjálmsson er
án nokkurs vafa ein af bestu bókum ársins.
Grimmsævintýri Bók
sem allir ættu að lesa.
Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.thrif.net
Fyrirtæki og húsfélög, gerum
tilboð ykkur að kostnaðarlausu
Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir
íbúðir sem eru í túristaleigu
Hefur þú þörf fyrir
þrif