Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Blaðsíða 4
Vikublað 28.–29. apríl 20154 Fréttir
2007 Illugi kjörinn á þing
í fyrsta sinn. Alþingismaður
Reykjavíkurkjördæmis suður
2007–2009. Mikil afskipti af
stjórnmálum áður. Formaður
Heimdallar, aðstoðarmaður
Davíðs Oddssonar, þáverandi
forsætisráðherra (2000 til 2005)
o.fl.
2009
Formaður
þingflokks sjálf-
stæðismanna
2009–2010 og
aftur 2012–2013.
2009 Alþingismaður
Reykjavíkurkjördæmis norður
síðan 2009
2010 Illugi ákveður að taka
sér hlé frá þingstörfum meðan
sérstakur saksóknari rannsakar
málefni peningarmarkðssjóða,
en hann sat í stjórn sjóðs 9 hjá
Glitni þegar bankinn hrundi.
2011 Tekur á ný sæti á Alþingi
um haustið. Vann ráðgjafarstörf
fram að því fyrir Orka Energy.
2012 Illugi fær 5–6 milljóna
króna eingreiðslu frá Orku
Energy í febrúar. Illugi viður-
kennir að hafa fengið greiðslur
árið 2012 frá félaginu en vísar
til ráðgjafastarfa sinna fyrir
félagið árið áður.
2013 Mennta-
og menningar-
málaráðherra
síðan 23. maí
2013.
2013 Illugi selur
Hauki Harðarsyni eiganda Orka
Energy íbúð sína Ránargötu
6a fyrir 53,5 milljónir króna.
Afsal: 23. júní, mánuði eftir að
Illugi er orðinn ráðherra. Gerir
leigusamningvið Hauk til tvegga
ára. Greiðir 230 þúsund krónur á
mánuði í leigu.
2015 21.–27. mars: Illugi fer
til Kína með 9 manna opinbera
sendinefnd, þar á meðal rektor-
ar þriggja íslenskra háskóla. Auk
þess viðskiptasendinefnd skip-
uð 8 fulltrúum Orka Energy og
3 fulltrúum Marels. Með í för er
Haukur Harðarson, aðaleigandi
Orka Energy.
2015 20. apríl berast svör Ill-
uga við eftirfarandi spurningum
DV. Svörin að sumu leyti óskýr
og ófullnægjandi. Spurningar
DV voru:
1. Tókst þú
við nær 6
milljóna
króna
greiðslu
frá Orka
Energy eða
tengdu félagi
í febrúar 2012?
2. Voru gefnir út launaseðlar eða
sendir þú reikninga með þinni
kennitölu?
3. Hvenær fékkst þú síðast
greiðslu fyrir þjónustu þína
(ráðgjafarstörf o.fl) í þágu Orka
Energy?
4. Ég gef mér að greiðslur frá
Orka Energy hafi verið gefnar upp
til skatts. En í hvaða landi?
5. Hver eru tengsl þín við Hauk
Harðarson eiganda Orka Energy?
Er hann vinur, viðskiptafélagi,
stuðningsmaður í pólitík og hve
langt aftur í tímann ná tengslin?
2015
25. apríl og síðar: Stundin upp-
lýsir um íbúðaviðskipti Illuga og
Hauks Harðarsonar 2013. Illugi
stígur fram í fréttum RÚV og
greinir frá eðli viðskiptanna og
segist vilja hafa allt uppi á borð-
um. Hringbraut birtir dagskrá
Kínaferðarinnar í mars o.fl.
Illugi
og Orka
Energy
S
igmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra segir að
siðareglur fyrir ráðherra, sem
samþykktar voru og birtar
árið 2011, séu enn hafðar til
viðmiðunar.
Þetta kom fram í svörum hans
við fyrirspurn Svandísar Svavars-
dóttur, VG, sem gerði siðareglurnar
að umtalsefni á þingi í gær með vísan
í hagsmunatengsl Illuga Gunnars-
sonar menntamálaráðherra og Orka
Energy og Hauks Harðarsonar, helsta
eiganda þess, en upplýst hefur verið
um þau í fjölmiðlum á undanförnum
dögum.
Svandís spurði hver ætti að túlka
siðareglurnar þar sem nefnd um
siðferðileg viðmið fyrir ráðherra og
stjórnsýsluna hafi verið lögð niður
og hvort Sigmundur ætlaði að endur-
meta afstöðu til slíkrar nefndar þar
eð siðferðisvandi kæmi ítrekað upp í
ríkis stjórninni.
Margvísleg tengsl
Ljóst er nú að auk þess sem Illugi tók
að sér ráðgjafarstörf fyrir Orka Energy
og Hauk Harðarson á árunum 2010
og 2011 – er hann tók sér hlé frá þing-
störfum –fékk hann milljónagreiðslur
frá fyrirtækinu árið 2012. Hann hafði
þá setið nokkra mánuði á þingi eftir
fjarveruna 2010/11. Eftir þetta seldi
hann Hauki og fyrirtækinu OG Capital
íbúð sína við Ránargötu árið 2013. Af-
salið var gert í júní 2013 eftir að hann
var orðinn ráðherra, eins og Stundin
hefur upplýst. Einnig er upplýst að OG
Capital hafði einnig verið í eigu Illuga
en verið selt Hauki og Orka Energy.
Illugi tjáði sig um íbúðarviðskiptin
í fréttum RÚV síðastliðinn sunnudag
og hefur útskýrt málið síðar á Face-
book.
Almanna- og einkahagsmunir
Jón Þór Ólafsson Pírati sagði á þing-
fundi í gær að allt snerist þetta um að
misbeita ekki í þágu sérhagsmuna því
almannavaldi sem þingmenn og ráð-
herrar öðlast sem kjörnir menn. Hann
taldi athugandi að taka upp viðurlög
gegn brotum gegn hagsmunaskrán-
ingu þingmanna og ráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra taldi heppilegt að þingið gengi
eftir því að hagsmunaskráning ráð-
herra og þingmanna yrði uppfærð
tvisvar á ári að frumkvæði þingsins
sjálfs.
DV spurði Illuga um tengsl hans
við Hauk Harðarson, helsta eiganda
Orka Energy, fyrr í mánuðinum. Í
svari sem barst 20. apríl segist Illugi
hafa kynnst stjórnendum fyrirtækis-
ins fyrst er hann tók að sér verkefni
fyrir fyrirtækið í Singapúr. „ Fyrirtækið
starfar einungis í Asíu, en kaupir þjón-
ustu íslenskra sérfræðinga og vísinda-
manna á sviði jarðvarma. Eðli máls
samkvæmt hef ég þekkt þá síðan þá.
Tengsl okkar hafa ekki legið í gegn-
um nein samtök, hvorki félagasamtök
né stjórnmálasamtök. Er ég fór í leyfi
frá Alþingi varð ég launalaus. Til að
afla mér tekna tók ég meðal annars að
mér verkefni fyrir Orka Energy í Singa-
pore,“ sagði Illugi í svari sínu.
Eins og fram kemur í meðfylgj-
andi tímalínu um samskipti Illuga
og Orka Energy var spurt beint um
tengsl Illuga við Hauk Harðarson.
Í svarinu upplýsti Illugi ekkert um
kaup Hauks á íbúðinni við Ránargötu
og leigusamning sem Illugi gerði við
hann. Þær upplýsingar komu fram
hjá Stundinni og honum sjálfum í
fréttum RÚV um síðustu helgi. n
n Milljónagreiðslur árið 2012 n Leigir íbúðina af Hauki Harðarsyni
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Haukur með
í för til Kína
Viðskiptasendinefnd Orka Energy í för
með Illuga Gunnarssyni menntamála-
ráðherra til Kína 21.–27. mars síðast-
liðinn
n Haukur Harðarson
n Guðmundur Ólason
n Jóhannes Sigurðsson
n Charlotte Zhao
n Sveinn Einarsson
(Þrír til viðbótar komu
frá öðrum löndum og
bættust í hópinn)
smáskömmtum
Illugi upplýsir í
Heimilið Áhvílandi voru
55 milljónir á íbúðinni þegar
Haukur hjá Orka Energy
keypti hana af Illuga
snemmsumars 2013 eftir að
hann varð ráðherra. Haukur
ábyrgðist skuldirnar og
leigði Illuga íbúðina.
HEIMILIS
ÞVOTTUR
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is
Við tökum við hefðbundnum
heimilisþvotti. Við þvoum, þurrkum
og brjótum saman þvottinn þinn.
Lítil vél
1.890 kr.
Millistór vél
2.590 kr.
Stór vél
3.490 kr.