Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Side 6
Vikublað 28.–29. apríl 20156 Fréttir
Sjúklingum sama
um stöðugleikann
É
g skora á þá að leysa þessa
flækju, þetta verður auðvit-
að leyst en spurningin er bara
hvenær. Ég ætla ekki að gjalda
með heilsufari mínu fyrir stöð-
ugleikann á Íslandi. Það verður að
leysa það einhvern veginn öðru-
vísi. Og ég er ekki einn í þeirri stöðu
að bíða, það er fjöldi fólks í svipaðri
stöðu,“ segir Tryggvi Jónsson sem í
lok mars var greindur með góðkynja
heilaæxli sem til stóð að fjarlægja
strax í apríl. Verkföll og óvissa hafa
hins vegar sett strik í reikninginn hjá
honum og biðin hefur reynst hon-
um erfið. Heilsunni hrakar á meðan
en Tryggvi er orðinn nánast blindur
á öðru auga og farinn að sjá illa með
hinu. Hann á sér þá ósk heitasta að fá
að sjá börn og barnabörn sín vaxa og
dafna – ekki bara heyra í þeim.
Sama um stöðugleikann
Í umræðunni um kjarasamninga
hefur mikið verið rætt um það svig-
rúm sem er til launahækkana og að
ef gengið verði að kröfum launafólks
muni það ógna efnahagsstöðugleika
þjóðarinnar. Tryggvi segir fólk í hans
stöðu, sjúklinga sem bíði eftir að fá
bót meina sinna meðan karpað sé
um prósentur og upphæðir, hafa um
annað að hugsa.
„Það er ekki efst á óskalistan-
um. Okkur er örugglega alveg sama
um stöðugleikann ef við höldum líf-
tórunni eitthvað áfram. Það skiptir
meira máli en hvort stöðugleikinn
haldi,“ segir Tryggvi sem er 49 ára.
Orðinn nánast blindur á öðru
Þegar hann greindist með heilaæxlið
í lok mars var honum sagt að hann
ætti að fara í aðgerð strax í apríl.
„En ég veit ekki hvenær. Það eru
ekki margir dagar eftir af apríl. Með-
an ég bíð þá minnkar sjónin. Ég er
orðinn nánast blindur á öðru aug-
anu og farinn að sjá verr með hinu.
Mann langar að fylgjast með og sjá
börn sín og barnabörn vaxa og dafna
– ekki bara heyra í þeim. Ég held að
þetta sé nú ekkert að ganga af mér
dauðum en þeir geta ekki sagt mér
hvort sjónin komi til baka eftir þetta
eða ekki.“ Og á meðan engin tíma-
setning sé komin þá sé óvissan mik-
il og slæm. „Það er mjög óþægilegt,
að finna heilsufarinu hraka og hanga
svona í óvissu er alveg hrikalegt.“
Þrýstir á augnbotninn
Tryggvi fór í blóðprufu á miðviku-
daginn í síðustu viku og hitti svo
lækninn á föstudag fyrir skoðun.
„Það átti eftir að lesa úr blóðpruf-
unum en samt var búið að merkja
þær í forgang. Læknirinn hringdi og
ýtti við einhverjum og það átti að
redda því í hvelli. En svo hef ég ekk-
ert heyrt.“
Hann segir þó að allt það starfs-
fólk sem hann hafi talað við á
heilsugæslustöðvum og sjúkrahús-
um sé óskaplega ljúft fólk og hann
sé ekki að benda á neinn einstakan
sökudólg í þeirri stöðu sem upp er
komin. „Svo veit maður ekkert, ég
þekki ekki inn á heilbrigðiskerfið og
veit ekki hvort þetta þyki bara eðlileg
bið. Maður er svo heppinn að hafa
verið heilsuhraustur fram að þessu.“
Aðspurður hvaða svör hann hafi
fengið við þessari bið segir Tryggvi
að hann hafi bara fengið þau svör að
læknarnir geti tekið æxlið og hann
eigi að ná heilsu. „Þeir geta bara ekki
svarað mér með sjónina. Það er sjálf-
sagt einstaklingsbundið, hvar þetta
er og hvernig gengur að fjarlægja
þetta. Þetta liggur einhvers staðar
við augnbotninn, þrýstir á hann og
er nærri heiladinglinum – án þess að
ég sé einhver sérfræðingur í þessu.“
Aðspurður segir Tryggvi að æxlið sé
góðkynja og sé því ekki að dreifa sér,
aðeins að stækka með tilheyrandi
tjóni.
Meira umhugað um kjúklinga en
sjúklinga
Hann vill að stjórnvöld geri sitt
og leysi málin. Þeir sem veikir eru
hugsi ekki um prósentur til eða frá
eða efnahagsstöðugleikann. „Það
er að skrimta fram á haustið og eitt-
hvað fram á næsta ár. Einhvers stað-
ar heyrði ég að það jaðraði við lög að
stofna lífi og heilsu annarra í hættu.
Ef þetta er ekki dæmi um það þá veit
ég ekki hvað. Ég efast ekki um að
allt þetta fólk sé að vinna vinnuna af
heilindum og reyna sitt besta en það
eru ekki mörg ár síðan það voru sett
lög á sjómenn. Af því að þeir kost-
uðu þjóðfélagið svo mikið. Það voru
sett lög á flugvirkja. Því þeir kost-
uðu okkur svo mikið. Ég var því alveg
brjálaður í gær [sunnudag] þegar ég
heyrði vitnað í Harald Benediktsson
[þingmann Sjálfstæðisflokksins og
fyrrv. formann Bændasamtakanna]
þar sem púðrið fór í að kjúklingar
hefðu það svo slæmt. Þetta er alveg
frábært. Ef þingmenn leggja sig nið-
ur við að bjarga kjúklingum – svo
þeir lifi nú af til að komast í slátur-
húsið. Þetta er ekki í lagi.“
Er þeim meira umhugað um
kjúklinga en sjúklinga?
„Já, en best ég segi ekki meir. Þetta
er ótrúlegt þjóðfélag sem við búum
í. Við erum eitt af ríkustu þjóðfélög-
um heims ef við miðum við höfða-
tölu – að geta svo ekki borgað fólkinu
okkar mannsæmandi laun. Hverjum
svo sem um er að kenna. Ég get ekki
bent á neinn. Ég ætla ekki að fara að
benda á þá sem eru í verkföllum sem
einhverja sökudólga og ekki held-
ur samninganefndirnar. Það er öll-
um sniðinn þröngur stakkur. Ríkið
gekk auðvitað undan með fordæmi
við að semja við lækna og fleiri. Þeir
opnuðu á þessa vitleysu alla. Og nú
verður einhvern veginn að höggva á
hnútinn.“ n
n Tryggvi greindist með heilaæxli í mars n Óvissa vegna verkfalla
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is „Mann langar að
fylgjast með og
sjá börn sín og barnabörn
vaxa og dafna – ekki
bara heyra í þeim.
Heilsunni hrakar
í biðinni Tryggvi
Jónsson átti að
fara í aðgerð í apríl.
Enn bíður hann.
Verkföll og óvissan
sem fylgir þeim
hefur sett strik í
reikninginn. Hann er
orðinn nánast blind-
ur á öðru auganu og
sjónin dvínar á hinu.
Mynd ÞOrMar Vignir
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Við bjóðum uppá allar
gerðir merkivéla og
prentara sem henta inná
hvert heimili og fyrirtæki
Komdu við og kíktu
á þetta frábæra úrval
sem við höfum upp
á að bjóða
Úra og skart-
gripaverslun
Heide Glæsibæ
Við erum líka á Facebook
Tilvalin
ferming-
argjöf