Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Blaðsíða 9
Fréttir 9Vikublað 28.–29. apríl 2015 Smart föt fyrir smart konur Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464 Stærðir 38-54 Útgjöld á mánuði alls með húsnæðiskostnaði: Dæmigert: Útgjöld: 383.684 kr. Útborguð laun: 228.478 kr. Mismunur: -155.206 kr. Mismunur ef miðað er við 100 þúsund krónur í húsnæðiskostnað: -106.086 kr. Grunnviðmið: Útgjöld: 248.878 kr. Útborguð laun: 228.478 kr. Mismunur: -20.400 kr. Ef miðað er við 100 þúsund krónur í húsnæðiskostnað: 28.720 kr. afgangur Launakrafan langt frá því að duga fyrir framfærslu mið n Kröfurnar hófsamar, segir SGS Húsnæðiskostnaður Tveggja herbergja íbúð í austurbæ Reykjavíkur. Meðalleiguverð á hvern fermetra skv. leigugagnagrunni Þjóðskrár: 2.052 kr. 60 fermetra íbúð: 123.120 kr. Hiti og rafmagn: 16.000 kr. Hússjóður: 10.000 kr. Samtals: 149.120 kr. Starfsgreinasamband Íslands miðar við 100 þúsund krónur í húsnæðiskostnað á mánuði, þar sem miðað var við landsbyggðina. ans hvernig dæmið lítur út ef mið- að er við aðeins 100 þúsund krónur í húsaleigu. Þar má sjá að enn vant- ar talsvert upp á þegar miðað er við dæmigerða viðmiðið, rúmar 106 þúsund krónur. En einstaklingur- inn, sem leigir fyrir 100 þúsund eða minna á mánuði, getur átt smá af- gang ef miðað er við grunnviðmiðið. Hófsamar og varfærnar kröfur En í ljósi þess að lágmarkslaunakröf- ur SGS eru enn undir flestum opin- berum viðmiðum er þetta þá síst of mikið eins og viðsemjendur sam- bandsins vilja meina? „Það er alltaf að koma betur í ljós að þetta eru hóf- samar, skynsamar og varfærnar kröf- ur. Þær eru það, þó að þeir súpi hvelj- ur yfir þessu,“ segir Drífa og bætir við að það sé fullkomið ábyrgðarleysi af atvinnurekendum að vera ekki búnir að koma til móts við kröfur sambandsins. „Eða gefa eitthvað til kynna sem gerir það að verkum að hægt sé að tala saman. Þess vegna erum við nauðbeygð til að fara í verk- fall, sem er ekkert gaman og neyðar- úrræði, en við höfum ekki feng- ið svo mikið sem bréfsnifsi frá þeim sem er viðræðugrundvöllur. Þannig að ábyrgðin er þeirra, boltinn er hjá þeim. Og þessi grein Hörpu ýtir und- ir þá staðreynd.“ Krafan ekki óraunhæf Í áðurnefndri grein í Morgunblað- inu sagði Harpa Njálsdóttir að niður- stöðurnar, sem eru áþekkar niður- stöðum DV, sýndu að launakrafa SGS gæti hvorki talist óraunhæf né ofmetin með tilliti til framfærslu- kostnaðar í íslensku samfélagi. Það hljóti að teljast réttlát krafa að fólk hafi laun fyrir fulla vinnu sem dugi fyrir mannsæmandi framfærslu einstaklinga og fjölskyldna. Og lýkur greininni með þeim orðum: „Það er óásættanleg þjóðarskömm að bjóða upp á kjör á almennum vinnumark- aði sem hneppa fólk í skort og fátækt. – Nú er mál að linni!“ n Kröfuganga Algjör pattstaða er í kjaraviðræðum og íslenskt þjóðfélag logar í verkföllum. Ein af háværustu kröfum baráttunnar er um 300 þúsund króna lágmarkslaun innan þriggja ára. Ljóst er að sú upphæð myndi duga flestum skammt. MynD EyþóR ÁRnaSon S amtökin '78 hafa lagt fram tíu kærur vegna ummæla einstaklinga sem féllu í síðustu viku í tengslum við umræðu um hinsegin fræðslu í grunnskólum Hafnarfjarðar. Alls voru skoðuð um- mæli 30 einstaklinga sem samtökin telja að feli í sér refsiverða háttsemi. Kærurnar voru lagðar fram hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu á mánudag. „Þeir einstaklingar sem hefur ver- ið ákveðið að kæra hafa kynt undir orðræðu sem við teljum vega gróf- lega að rétti hinsegin fólks til frið- helgi einkalífs, fjölskyldu og fyllsta jafnréttis. Réttinda sem vernduð eru af stjórnarskrá lýðveldisins Ís- lands og þeim alþjóðlegu sáttmálum sem Ísland er aðili að, þar með talið mannréttindasáttmála Evrópu,“ segir í yfirlýsingu samtakanna. Í kærunum er vísað til 233. grein- ar almennra hegningarlaga, en hún kveður á um að þeir sem opinber- lega rægi, hæðist að, smáni eða ógni vegna þjóðernis, litarháttar, kyn- þáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar skuli sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Viðurlög geta verið sektargreiðsl- ur eða fangelsisvist allt að tveimur árum. n Kæra hatursfull ummæli Segja orðræðu hafa vegið gróflega að rétti hinsegin fólks Bregðast við hrottaskap Hilmar segir að ekki sé hægt að líta framhjá þeim hrottaskap sem hafi einkennt umræðuna síðustu daga. MynD SiGTRyGGuR aRi JoHannSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.