Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Page 12
Vikublað 28.–29. apríl 201512 Fréttir Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir Rykmoppur og sápuþykkni frá Pioneer Eclipse sem eru hágæða amerískar hreinsi- vörur. Teppahreinsivörur frá HOST Hágæða hreinsivörur – hagaeda.is og marpol.is – Sími: 660 1942 Frábærar þýskar ryksugur frá SEBO Decitex er merki með allar hugsanlegar moppur og klúta í þrifin. UNGER gluggaþvottavörur, allt sem þarf í gluggaþvottErum einnig með: Marpól er með mikið úrval af litlum frábærum gólfþvottavélum Tilboð fyrir hótel og gistiheimili í apríl/maí! Ráðuneytið vill leyfa tvöfalt hærri bónusa Að „skaðlausu“ að kaupaukar til starfsmanna fjármálafyrirtækja megi vera 50% af árslaunum F jármálaráðuneytið telur að það yrði að „skaðlausu“ að veita fjármálafyrirtækjum heimild til að greiða tvöfalt hærri bónusgreiðslur en nú- verandi reglur kveða á um og þær megi því vera allt að 50% af föstum árslaunum starfsmanna. Þá mætti einnig skoða að smærri fjármála- fyrirtækjum yrði leyft að greiða hlutfallslega enn hærri kaupauka til starfsmanna, til dæmis 100% af árslaunum, heldur en stóru við- skiptabönkunum. Þetta kemur fram í minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðu- neytið sendi í gær til efnahags- og viðskiptanefndar vegna frumvarps sem nefndin hefur til umræðu um viðamiklar breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Í frumvarpi Bjarna Benediktssonar fjármála- ráðherra er gert ráð fyrir því að kaupaukagreiðslur til starfsmanna fjármálastofnana haldist óbreyttar – að hámarki 25% af árslaunum – frá því sem verið hefur síðustu ár. Eins og áður hefur verið greint frá í DV hafa fjármálafyrirtækin hins vegar farið fram á að kaupaukar geti verið allt að 100% af föstum árslaunum og eins að til staðar verði heimild fyrir hluthafa- fund að hækka hlutfallið í 200%. Slíkt fyrirkomulag yrði í samræmi við það sem þekkist almennt í ná- grannaríkjum Íslands. Þrátt fyrir að ráðuneytið leggi ekki til að öllum fjármálafyrirtækj- um verði veitt heimild til að greiða fjórfalt hærri bónusa – ráðuneytið telur að hækka megi hlutfallið úr 25% í 50% – þá tekur það að stórum hluta undir sjónarmið Samtaka fjár- málafyrirtækja (SFF) um að lágt há- markshlutfall kaupaukagreiðslna muni ekki halda aftur af launa- skriði hjá fjármálafyrirtækjum. Þvert á móti, útskýrir ráðuneytið í minnisblaðinu, gæti slíkt fyrir- komulag frekar leitt til hærri fasts rekstrarkostnaðar. Fram kemur í minnisblaðinu, sem er 28 blaðsíður að lengd, að færa megi rök fyrir því að ef fjár- málafyrirtækjum verði settar of þröngar skorður við að geta greitt út bónusa til starfsmanna þá geti það orðið sveifluaukandi fyrir starf- semi félaganna. „Hætt er við því að föst laun hjá fjármálafyrirtækjum hækki í uppsveiflu í hagkerfinu sem geti leitt til launaskriðs meðal sam- bærilegra hópa.“ Gæta þurfi meðalhófs Ráðuneytið er því þeirrar skoðun- ar að „gæta þurfi meðalhófs“ þegar hámark bónusgreiðslna sé ákveðið og horfa þurfi til þeirra viðamiklu breytinga sem verið er að gera á umgjörð slíkra greiðslna. Reynt sé að gæta þess að „skammtímahags- munir starfsmanna geti ekki leitt til skaða fyrir fyrirtækið og samfélag- ið til lengri tíma“. Þá bendir ráðu- neytið einnig á að ljóst sé að „aðrar starfsstéttir sæta ekki jafn íþyngj- andi takmörkunum á samnings- frelsi sínu“. Þau sjónarmið fjármálaráðu- neytisins að heimila smærri fjár- málafyrirtækjum að greiða enn hærri bónusgreiðslur en kerfislega mikilvægum fyrirtækjum – Íslands- banka, Arion banka og Landsbank- anum – virðast eiga sér hljómgrunn í efnahags- og viðskiptanefnd. Þannig sagði Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður nefndarinnar, í frétt DV sl. föstudag að hann teldi rök hníga að smærri félögum verði veitt sérstök heimild í lögunum til að greiða hlutfallslega hærri kaupauka til starfsmanna heldur en stóru bönkunum. Gæti minnkað áhættu Í minnisblaði ráðuneytisins er meðal annars nefnt að útfæra megi reglurnar þannig að fjár- málafyrirtækjum verði skipt í þrennt. Ströngustu reglurnar gildi um kerfislega mikilvæg fyrirtæki, aðrar reglur um viðskiptabanka og sparisjóði sem flokkast ekki sem kerfislega mikilvæg fjármála- fyrirtæki, og að lokum reglur sem taka til þeirra fjármálafyrirtækja sem taka ekki við innstæðum. Tel- ur fjármálaráðuneytið að þessi út- færsla geti leitt „til hvata fyrir stóra eða meðalstóra viðskiptabanka til þess að aðskilja ákveðna starfsemi frá aðalstarfsemi sinni með starf- rækslu dótturfélaga með takmark- að starfsleyfi. Slíkt gæti minnkað áhættu í fjármálakerfinu.“ Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir því að fresta þurfi að minnsta kosti 40% af bónus- greiðslum til starfsmanna í að lág- marki þrjú ár. Í minnisblaðinu tek- ur fjármálaráðuneytið hins vegar undir með Seðlabankanum um að fresta skuli 60% af kaupauka- greiðslunum í fimm til sjö ár ef sú leið verður farin að hækka há- markshlutfall sem greiða má starfsmönnum í bónusa. n Hörður Ægisson hordur@dv.is „Aðrar starfs- stéttir sæta ekki jafn íþyngjandi takmörkunum á samningsfrelsi sínu Bankabónusar Starfsmenn Arion banka og Íslandsbanka fengu greiddar 900 milljónir í kaupauka á síðasta ári. Á ætlaður árlegur tjónakostn- aður vegna fjársvika í heimin- um eru um og yfir 3.500 millj- arðar dollara og er talin vera að meðaltali 5% af heildartekjum fyr- irtækja og stofnana. Einnig tekur um 3,5 ár að uppgötva fjársvik og í flest- um tilfella kemst upp um misferli í gegnum ábendingar frá aðilum sem hafa grunsemdir um óeðlilega við- skiptahætti. Þetta kemur fram í skrifum Guð- jóns Ágústssonar, sérfræðings í hug- búnaðarlausnum hjá Nýherja, á vef fyrirtækisins. Nokkrir af helstu sér- fræðingum í heimi fjársvika og tölvu- glæpa munu veita innsýn í heild- stæðar lausnir og gegn fjársvikum og tölvuglæpum á morgunverðar- fundi hjá Nýherja sem fer fram í dag. Er fundurinn haldinn í samvinnu við IBM og FraudID í Danmörku. Guðjón segir að fjársvik og mis- ferli hafi færst í aukana og eru sívax- andi vandamál í daglegum rekstri fyrirtækja og stofnana. Í kringum 67% fjársvika séu framkvæmd af karlmönnum og flestir svikarar á aldursbilinu 32–45 ára. „Fjársvik eru það margvísleg, margbrotin og háþróuð að þau eru erfið viðureignar fyrir þá sem reyna að takmarka eða koma í veg fyrir tjón vegna þeirra. Heildstæðar fjársvika- lausnir geta þar af leiðandi hjálpað fyrirtækjum og stofnunum að kom- ast fljótar að svikum, komið í veg fyrir fjárhagslegt tjón og þannig takmark- að hnekki á orðspori. Með greiningu á gögnum úr mismunandi tækjum og kerfum er hægt að finna grun- samleg atvik sem eiga sér stað í ýms- um þáttum viðskipta og þjónustu,“ segir Guðjón. n Fjársvik kosta 3.500 milljarða dollara Kostnaðurinn 5 prósent af heildartekjum fyrirtækja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.