Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Side 20
Vikublað 28.–29. apríl 20152 Garðurinn
Ræktaðu kryddjurtirnar heima
Lifa ehf. - vatnsræktunartæki og gróðurljós
F
yrirtækið Lifa ehf. flytur inn
Aerogarden-vatnsræktunar-
tæki og aðra hluti tengda rækt-
un fyrir garðyrkju og mat og
kryddjurtaræktun. Aerogar-
den-tækin henta venjulegum íslensk-
um heimilum mjög vel og má sjá þau
inni á fjölda íslenskra heimila.
„Aerogarden er búið að vera
lengi á markaðinum og eru fyrstu
tækin sem við fluttum inn,“ segir
Þorsteinn Torfason hjá Lifa. „Fjöldi
fólks er ekki garðmanneskjur en
finnst gott að fá ferskar kryddjurt-
ir í matseldina.“ En það má einnig
rækta blóm í kerfinu og Þorsteinn
segir marga viðskiptavini nota
Aero garden fyrir forræktun, hægt er
að koma 70 plöntum af stað í mars-
apríl og svo fara græðlingarnir út í
garð þegar tími er kominn til. Með
þessum hætti er fólk bæði laust við
arfa og pöddur.
Lifa flytur á næstunni inn tæki
sömu gerðar frá Finnlandi, sem eru
með led-lýsingu, en hjá Lifa fást
einnig ítalskir lampar frá fyrirtækinu
Bulbo, sem henta mjög vel fyrir svo-
kallað „urban living“ eða búsetu
í borgum. Bulbo-lamparnir eru
einstaklega skemmtilegir og fallegir,
en þeir eru ætlaðir til að hengja yfir
blómapotta eða plöntur og má einnig
nota við ræktun kryddjurta.
„Bulbo-ljósin hafa hentað mjög
vel fyrir borgarbúa þar sem að fólk
vill rækta blóm eða kryddjurtir, en
hafa ekki yfir garði að ráða,“ segir
Þorsteinn. „Þú færð þarna smá sól-
argeisla inn í íbúðina þína.“ Að sögn
Þorsteins er markaðsstjóri fyrirtæk-
isins með Bulbo-lampann fyrir ofan
baðið hjá sér og finnst mjög indælt að
liggja í baði með ljósið yfir sér.
Ljóstíðni lampanna sem plönturn-
ar geta unnið úr er eins og sólarljósið.
Þessir lampar eru því mjög sniðugir
fyrir Íslendinga þar sem að birtu nýt-
ur aðeins við stuttan tíma á ári. Ljósin
eru ítölsk og því hefur verið hugs-
að um útlit jafnt og notagildi, skerm-
arnir eru úr terrakotta og lamparnir
því bæði smart og fallegir. Lampann
má festa með álstöng ofan í blóma-
pottinn eða hengja upp. Lampinn er
einnig til í lengri útgáfu og kemur þá í
grind og fer yfir nokkrar plöntur.
Lifa ehf. er að Köllunarklettsvegi
4, Reykjavík, síminn er 511-0909, net-
fang upplysingar@grodurhus.is n
H
já Kemi ehf. að Tunguhálsi
10 er úrval af umhverfis-
vænum hreinsiefnum sem
henta vel bæði fyrir garðinn
og sumarbústaðinn, efni
sem henta vel fyrir sumarbústaða-
eigendur og vörur til flugna- og
meindýravarna. Einnig býður Kemi
ehf. upp á mikið úrval olíu og smur-
efna á frábæru verði og aðstoðar við-
skiptavini við val á réttu efnunum.
„Við erum með krafthreinsi sem
hefur hentað mjög vel á stéttir, til að
ná grænni slikju af þeim og gróðri
inn á milli hellnanna, mjög ein-
falt, og starfsmenn okkar leiðbeina
hvernig nota á efnið,“ segir Óskar
Sigurður Harðarson, deildarstjóri
landbúnaðar hjá Kemi ehf.
Hjá Kemi ehf. fæst einnig úr-
val af umhverfisvænum hreinsiefn-
um sem eru Svansvottuð sem lögð
er áhersla á að fólk noti við sumar-
bústaði. „Fjöldi sveitahótela kaup-
ir hreinsiefni af okkur og hafa þau
reynst mjög vel,“ segir Óskar. Hjá
Kemi ehf. starfar hópur af sérhæfð-
um starfsmönnum sem aðstoða
viðskiptavini með val á hreinsiefni,
hvað hentar best og hvernig skal
nota þau.
„Hjá okkur fást tæki til mein-
dýravarna, gildrur og fóðurstöðvar
og fólk fær ráðleggingar um hvern-
ig skal forða því að meindýr berist
inn í hús og sumarbústaði,“ segir
Óskar. Hjá Kemi ehf. fást einnig
flugnabanar og flugnafæluefni frá
Prevent, krem, klútar og úði og auk
þess gúmmískór sem eru hentugir
við garðverkin.
„Sumarbústaðaeigendur eru í
miklum viðskiptum við okkur og
kaupa mikið fyrir rotþrærnar, við
erum með sérvaldar örverur sem
henta mjög vel fyrir rotþrær og
hreinsa allt upp úr þrónni, þannig
að öll tæming verður óþörf. Efnið
hreinsar öll óhreinindi sem fara í
umhverfið, þannig að vatnið sem
kemur úr rotþrónni er algjörlega
hreint og ómengað,“ segir Óskar.
Fjöldi garðeigenda er með safn-
kassa í garðinum og hjá Kemi fæst
efnið Haugmelta. „Efnið er frá-
bært í safnhauga, 100–200 milli-
lítrar eru settir í safnkassann einu
sinni til tvisvar í mánuði til að flýta
fyrir niðurbroti,“ segir Óskar. „Með
þessum hætti færðu moldina hrað-
ar í gegn og haugmeltan brýtur jafn-
framt niður vonda lykt í safnkassan-
um.“
Kemi ehf. er að Tunguhálsi 10,
Reykjavík. Síminn er 415-4000, net-
fang kemi@kemi.is n
Úrval af umhverfis-
vænum hreinsiefnum
Kemi ehf. - sérhæfing og góð þjónusta