Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Síða 21
Vikublað 28.–29. apríl 2015 Garðurinn 3
„Það er ekkert verk of lítið
eða of stórt fyrir okkur“
Bræðurnir Hjörleifur og Róbert reka Garðaþjónustu Íslands
B
ræðurnir Hjörleifur
Björnsson og Róbert
Bjargarson reka garðyrkju-
fyrirtækið Garðaþjónusta
Íslands, sem er í dag eitt
stærsta garðaþjónustufyrirtæk-
ið hér á landi. Bræðurnir stofn-
uðu fyrirtækið árið 2007 og hefur
það verið í örum vexti síðan. Þeir
einbeita sér að einstaklingsmark-
aðinum, en þjónusta jafnframt
húsfélög og fyrirtæki. Þjónustan
er ekki bundin við höfuðborgar-
svæðið, þeir sinna einnig sumar-
bústaðalóðum, hafa unnið verk á
Suðurnesjum, Hellu og Selfossi.
„Við höfum fengið fyrirspurnir frá
öllum landshlutum og skoðum
allt,“ segir Hjörleifur.
Eitt verkefni klárað í einu
Bræðurnir eru vel tækjum búnir
fyrir öll verkefni, bæði stór og smá.
„Við höfum fjárfest í verkfærum
og tækjum, sem gera okkur kleift
að klára verkin hratt og vel. Það er
ekkert verk of lítið eða of stórt fyrir
okkur,“ segir Hjörleifur. Þeir taka að
sér eitt verkefni í einu, vinna fram
eftir og klára það. „Lóðabreytingar
eru stór hluti af vinnu okkar. Við
vinnum í samstarfi við lands-
lagsarkitekta og iðnaðarmenn.
Lóðabreytingar eru skemmtileg-
ustu verkefnin og það kemur fólki
alltaf mikið á óvart hvað við erum
fljótir. Við erum í góðu samstarfi
við aðra iðnaðarmenn sem hjálpa
okkur að klára málin frá A til Ö, svo
að fólk þarf ekki að leita til margra
iðnaðarmanna til þess að kára
dæmið.“
Persónuleg þjónusta og
heiðarleiki er okkar mottó
Hjörleifur segir að viðskiptavinur-
inn fái alltaf fast verðtilboð eftir
fyrsta fund, fólk veit því strax hver
endanlegur kostnaður er og að
engir aukareikningar fylgi, nema
sé sérstaklega samið um það. „Við
leggjum mikla áherslu á að af-
henda alla reikninga persónulega
og að allt standi sem samið var
um.“
Starfsemi allan ársins hring
Garðaþjónusta Íslands starfar allan
ársins hring, eftirspurnin er þó
mest á vorin og yfir sumarið. „Það
er því best að panta sem fyrst,“ seg-
ir Hjörleifur. Snemma á vorin og á
haustin er verið að klippa og þá má
einnig fara í lóðabreytingar. „Það
er margt hægt að gera í garðinum
á veturna, svo lengi sem ekki fryst-
ir í jörð,“ segir Hjörleifur. „Við erum
einnig að þjónusta fjölda húsfélaga
hvað varðar garðslátt, beðahreins-
anir og almenna umhirðu. Einnig
eru margir einstaklingar sem nýta
sér þá þjónustu, enda sumarið
stutt og fólk vill kannski hugsa um
annað en arfa og slátt á sumrin.“
Facebook-leikur
100.000 króna vinningur
Á Facebook-síðu Garðaþjónustu Ís-
lands er leikur í gangi þar sem er
til mikils að vinna. Nóg er að heim-
sækja Facebook-síðuna, „like“-a við
hana og skrá nafn sitt og þá er við-
komandi kominn í pott. Sigurvegar-
inn verður dreginn út fyrir 15. júní og
fær hann 100.000 króna inneign hjá
Garðaþjónustu Íslands. Allar upp-
lýsingar um Garðaþjónustu Íslands
má fá í símum 866-9767 og 844-6547
eða með því að senda tölvupóst á
netfangið garda@garda.is. n
Bræðurnir
Róbert Bjargarson og
Hjörleifur Björnsson.