Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Qupperneq 31
Umræða 19Vikublað 28.–29. apríl 2015
Ég var viðundrið í
bekknum
Reynslan hefur
verið góð
Það þarf oft mikið til
Helgi Hrafn var lagður í einelti í skóla. – DV Ingibjörg Þórðardóttir segir karlmenn síður leita sér hjálpar vegna ofbeldis. – DV
Myndin Turninn við Borgartún Norðangarrinn lék um þessar konur þar sem þær glímdu við greiðsluvél Bílastæðasjóðs við Turninn. mynd Þormar VIgnIr gunnarsson
Hvar er mannúðin?
F
lóttamenn flýja. Flýja örbirgð,
vonleysi, stríð og ofsóknir.
Sækja í von, vinnu, frið og
framtíð. Menntun fyrir börn
in sín. Vilja aftur eiga kost á
brosi og leik. Sækjast eftir frelsi frá
ótta, sársauka og varnarleysi.
Hvert er álit okkar hinna, okkar
sem sitjum við allsnægtir? Við vilj
um helst sem minnst af þeim vita,
sem minnst fyrir þau gera og helst
hafa þau einhvers staðar allt annars
staðar en fyrir okkar augliti.
Það tekst hins vegar ekki alltaf.
Stundum komast fréttirnar í gegn.
750 drukknuðu í Miðjarðarhafi í
einni svipan. Það kom í fréttir. Okk
ur fannst það hræðilegt. Aðrir urðu
hungurmorða og enn aðrir voru
teknir af lífi, kannski fyrir það eitt
að vera annarrar trúar en sá sem
mundaði morðvopnið.
Við borgum til Rauða krossins,
til Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna og stöku happdrættis
miða. Af því við viljum hjálpa. Pínu.
En helst þannig að vandinn verði
okkur áfram fjarlægur.
Helst reka fólkið aftur til síns
heima. Jafnvel þó að þangað sé lítið
að sækja. Ef það tekst ekki splæsum
við í búðir. Ekki fangabúðir sjáðu til,
heldur flóttamannabúðir. Á þeim er
þó varla mikið meira en stigsmunur,
en ekki eðlis, því eins og í Kaliforníu
hótelinu máttu skrá þig inn hvenær
sem er, en færð aldrei að fara.
Nema kannski aftur heim. Hvort
sem þú vilt, eður ei.
Evrópa byggir og borgar fyrir
flóttamannabúðir utan Evrópu. Á
stríðshrjáðum svæðum eins og Líbíu
og Úkraínu. Jórdaníu. Afríku. Asíu.
Komast flóttamennirnir fram hjá
þeim, þá eru búðir á jaðarsvæðum
innan Evrópu. Lambedusa á Ítalíu,
á dönsku eyjunum, á Suðurnesjum.
Hér og þar, en þó þannig að flótta
mennirnir séu helst sem mest úr
augsýn. Marggagnrýndar fyrir öm
urlegar aðstæður og almennt sinnu
leysi. Og alls ekki skal flóttamönn
um gert kleift að gera það sem þeir
helst vilja gera – og var aðalhvatinn
að flóttanum – að fá að byggja sér og
sínum nýtt og betra líf og leggja sitt á
vogarskálar síns nýja samfélags.
Ísland er lítið skárra. Flótta
menn fá að hírast á Suðurnesjum
og ár og dagar líða hvað varðar af
greiðslu óskar þeirra um búsetu og
möguleika á nýju lífi. Sumum tekst
meira að segja hið ómögulega – að
byggja hér upp nýtt líf með von og
bros að leiðarljósi, en samt getur
kerfið komist að þeirri niðurstöðu
að rétt sé að senda viðkomandi aftur
heim. Eða a.m.k. aftur til þess stað
ar þar sem hann eða hún var síðast.
Það er að segja áður en viðkomandi
„saurgaði“ okkar fagra land með
komu sinni og nærveru. Mannúðin
víkur fyrir ósveigjanlegu kerfi, sem
var náttúrlega byggt upp þannig að
það myndi hlífa okkur við því að
verða um of trufluð af örvæntingu
einhverra sem í sjálfu sér koma
okkur ekki við. Þau koma nefnilega
annars staðar frá. Þess vegna erum
við og viljum vera stikkfrí.
Þegar flóttamenn eru annars
vegar þá snúum við Blackstone á
haus og teljum betra að tíu saklaus
um sé snúið aftur „heim“ en að einn
óæskilegur sleppi hugsanlega í gegn.
Stundum tökum við okkur samt
til og tökum við nokkrum flótta
mönnum í litlum hóp og í samstarfi
við minna samfélag á landsbyggð
inni leitumst við við að koma þeim
vel fyrir. En alls ekki of marga. Helst
sárafáa. Nógu marga samt til að okk
ur geti liðið vel með okkur sjálf. Af
því að við gerðum eitthvað. Pínu.
En mannúðin er ekki bara af
skornum skammti þegar um er að
ræða flóttamenn. Mannúðin virð
ist um of á undanhaldi vítt og breitt.
Sérstaklega þegar kemur að efna
hagsmálum. Evrópa í dag tekst á
við meintan heimatilbúinn efna
hagsvanda fyrst og fremst með því
að víkja til hliðar mannúðinni. Set
ur eyrinn ofar manninum, auðgildi
ofar manngildi.
Eða hvað skal halda þegar
ásættan legar efnahagsaðgerðir fela
í sér 70 prósenta atvinnuleysi ungs
fólks og 30 prósenta almennt at
vinnuleysi eins og nú er í Grikklandi.
Af því „trúverðugleikinn“ er svo
mikilvægur og öllu ofar eins og fjár
málaráðherra Þýskalands skrifaði
í bandarískt blað í aðdraganda árs
fundar Alþjóðabankans og Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins fyrir rúmri viku.
Nei, ráðdeild og sparnaður ræður
ríkjum. Því er ekki hægt að gera of
mikið fyrir flóttamenn, þó að t.d.
aukin fjárfesting í friði, framleiðslu,
atvinnutækifærum og uppbyggingu
í heimalöndum þeirra væri eflaust
til lengri tíma ódýrara og árangurs
ríkara en fleiri flóttamannabúðir og
fleiri skip og verðir til að vísa þeim
frá.
Sparnaður og skuldaniður
greiðslur eru mikilvægari en fjár
festing í menntun og heilbrigði,
framtíð og uppbyggingu.
Og þrátt fyrir að veröldin hafi
aldrei verið ríkari má ekki sækja fé til
þeirra sem mest mega sín. Þeim skal
pakkað betur í bómull.
Mammon virðist því miður mikil
vægari en mannúðin.
Og stöðugleikinn maður. Stöðug
leikinn.
Á Íslandi virðist það einnig svo.
Það er synd – og syndsamlegt.
Svei. n
„Ekki fangabúð-
ir sjáðu til, heldur
flóttamannabúðir.
Friðrik Jónsson
skrifar
Af Eyjunni
1 23 ára afi og hvers-
dagshetja Tommy
Connolly var aðeins 23
ára þegar hann bjargaði frænku sinni af
götunni. Hún var þá gengin 32 vikur með
sitt fyrsta barn. Tommy fékk heimild til
að verða fósturforeldri hennar og gerir
sitt besta til að sjá þeim farborða.
Lesið: 36.412
2 12 ára berst við
krabbamein –
Rekin úr skóla
Rose McGrath, 12 ára
krabbameinssjúklingur
í Michigan í Bandaríkjunum, hefur alla
sína skólagöngu stundað nám við
St. Joseph-skólann sem er kaþólskur
grunnskóli. Í síðustu viku fékk hún bréf
um að henni væri vikið úr skólanum
þar sem hún hefði ekki uppfyllt kröfur
skólans um mætingu og einkunnir.
Lesið: 26.935
3 „Ég hélt líka framhjá þér“ Eftir að kona ein komst
að því að kærasti hennar hefði haldið
framhjá henni ákvað hún að hefna sín á
með því að gera myndband af sér upp í
rúmi með öðrum manni.
Lesið: 23.312
Mest lesið
á DV.is
Björk Vilhelmsdóttir segir ferðir ráðuneyta til útlanda skila árangri. – DV
ATN Zebra 16
Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin
• Diesel
• Vinnuhæð: 16,4m
• Pallhæð: 14,4m
• Lágrétt útskot: 9,3m
• Lyftigeta: 230kg
• Aukabúnaður: Rafmagns-
og lofttenglar í körfu.
• Til afgreiðslu strax
Ýmsar aðrar ATN spjót- og
skæralyftur til afgreiðslu
með stuttum fyrirvara.