Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Page 39
Vikublað 28.–29. apríl 2015 Menning 27
Nicolas Garcia Uriburu hafði gert
nánast nákvæmlega eins verk á sjö-
unda og áttunda áratugnum.)
Orð um náttúru
Fleiri náttúruinnsetningar hafa vak-
ið reiði Íslendinga á undanförnum
árum. Þýski listamaðurinn Julius von
Bismarck, nemandi Ólafs Elíassonar,
var ítrekað kallaður „náttúruhryðju-
verkamaður“ og kærður til lögreglu
árið 2013 eftir að hugtök á borð við
„hellir“, „hraun“, „mosi“ og „gígur“
höfðu verið úðuð á samsvarandi
náttúrufyrirbæri í Mývatnssveit.
Ljósmyndir af orðunum í nátt-
úrunni voru sýndar á sýningu von
Bismarck í Berlín sama ár. Hann
neitaði því hins vegar að standa
fyrir gjörningnum heldur sagði
verkið hafa verið samstarfsverkefni
nokkurra listamanna og hann hafi
einungis sýnt ljósmyndirnar frá
listamönnunum.
Í sýningarskránni segir meðal
annars um verkin: „Ómerkileiki
hugtaksins er í andstöðu við
veruleikann. Þar sem „Wald“
(skógur) er ritað vaknar spurningin
hvort maður sé í raun að horfa á
„Wald“ (skóg) eða einfaldlega ein-
hvern hlut, sem eins og listin sjálf
er. storkar öllum skilgreiningum.“ n
Íslensk náttúra sem strigi
Græn á (1998) Ólafur Elíasson notaði úranín til að lita ár víðs vegar um heim eiturgræn.
Mosi Fjölmargir Íslendingar fordæmdu þýska myndlistarmanninn Julius von Bismarck fyrir
verk sem unnin voru í hans nafni í íslenskri náttúru.
Marco Evaristti
n Fæddur í Síle árið 1963.
n Búsettur í Danmörku.
n Lærði arkitektúr hjá Henning Larsen
í Det kongelige danske kunstakademi í
Kaupmannahöfn.
n Vakti fyrst athygli árið 2000 fyrir
sýningu Helena í Trapholt-listasafninu í
Kolding þar sem hann stillti upp blönd-
urum með lifandi gullfiskum í og bauð
áhorfendum að kveikja á tækjunum.
Safnstjórinn var síðar kærður fyrir
dýraníð en sýknaður.
Þ
órir Sæmundsson leikur titil-
hlutverkið í uppsetningu Vest-
urports á Hjarta Hróa hattar
sem verður frumsýnt í Þjóð-
leikhúsinu 12. september. Gísli Örn
Garðarsson og Selma Björnsdóttir
leikstýra verkinu, sem er eftir David
Farr, leikmynd gerir Börkur Jónsson
og Salka Sól semur tónlistina og flyt-
ur á sviðinu.
Í uppfærslunni hefur hinu þekkta
ævintýri um Hróa hött verið snúið á
haus og Hrói og liðsmenn hans ræna
án þess að gefa nokkuð til fátækra.
Verkið hefur verið sýnt beggja
vegna Atlantshafsins, var frum-
sýnt hjá The Royal Shakespeare
Company í London og var síðar sett
upp hjá American Repertoire-leik-
húsinu í Boston, Borgarleikhúsinu
í Uppsala í Svíþjóð, Þjóðleikhúsi
Noregs í Bergen, Borgarleikhúsinu
í Winnipeg og The Royal Alexandi-
leikhúsinu í Toronto í Kanada.
Viðræður um sýningar á West
End og Broadway eru í gangi, sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá Þjóð-
leikhúsinu. n
Þórir leikur Vesturports-Hróa
Verðlaunasýning Vesturports í Þjóðleikhúsinu í haust
Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma)
Láttu þér líða vel
meccaspa.is
Opnunartími
Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00
Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00
Tökum vel á móti hópum af öllum stærðum, einnig utan hefðbundins opnunartíma. Dekur í boði.
E
F
LI
R
a
lm
an
na
te
ng
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
sk
h
ön
nu
n
42,3 kg farin!
Staðurinn - Ræktin
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Viltu léttast, styrkjast
og losna úr vítahringnum?
Alltaf frábær árangur á TT
4 vikna TT vornámskeið hefjast 4. maí
Innritun hafin í síma 581 3730
og á jsb.is
Skemmtilegir tímar framundan!
51,2 kg farin!
Velkomin í okkar hóp!