Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 78
Unnið í samstarfi við
heildsöluna Cu2
Þegar kemur að því að velja hvaða húðvörur nota skal á börnin okkar er best að vanda valið. Húðin er
stærsta líffæri okkar og það þarf
að hugsa vel um hana til þess að
hún endist okkur út lífið. Nýlegar
rannsóknar benda til þess að um
30% íslenskra barna þjáist af exemi.
Það er hægt að draga mjög úr ein-
kennum exems með því velja af
kostgæfni húð- og hárvörur fyrir
okkur og börnin okkar.
Þetta vita framleiðendur hrein-
lætislínunnar Childs Farm sem
notar eingöngu náttúruleg inni-
haldsefni sem erta ekki húðina eða
valda ofnæmisviðbrögðum. Mikil-
vægar olíur sem viðhalda heilbrigði
húðarinnar eru einnig notaðar við
framleiðsluna og þær gefa vörunum
mildan og góðan ilm.
Árið 2010 var hrossaræktandinn
Joanna Jensen orðin leið á því að
leita að réttu vörunum fyrir dætur
sínar sem báðar voru með fíngert
hár og viðkvæma húð. Henni fannst
ómögulegt að greiða gegnum hár
dætranna án þess að nota hárnær-
ingu en fann enga sem ekki innihélt
paraben eða annan óþarfa; já eða
óþverra. Henni fannst líka hár- og
húðvörur sem ætlaðar voru fyrir
börn skiptast í tvo flokka; annars
vegar vörur í skemmtilegum og
litríkum umbúðum sem reyndust
síðan innihalda nákvæmlega það
sama og vörur fyrir fullorðna. Hins
vegar voru það vörur sem litu ákaf-
lega óspennandi út og virtust helst
eiga heima í lyfjaskápnum.
Joanna ákvað að taka til sinna
ráða og hóf að þróa sjampó með
náttúrulegum efnum og bæta við
það sínum eftirlætis olíum til þess
að fá sem bestan ilm. Hún fór með
sýnishorn af framleiðslunni sinni
milli framleiðenda sem flestir voru
fullir efasemda – þar til hún fór til
Medichem sem hafði fulla trú á
vörunni. Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar. Childs Farm hefur
hlotið fjölmörg verðlaun, þar á
meðal fyrir Best Infant Skin Care
(besta húðumönnun ungbarna) á
Little London Awards á dögunum.
Vörurnar eru samþykktar af barna-
læknum og hafa verið prófaðar
og viðurkenndar af húðlæknum.
Umbúðirnar hafa einnig vakið
mikla lukku, raunar svo mikla
að Cartoon Network hefur nú
í sýningu teiknimynd sem
er byggð á fígúrunum sem
prýða vörurnar. Þess má
svo geta að 10% af sölu-
ágóða Childs Farm varanna
rennur til styrktar reiðnám-
skeiða fyrir fötluð börn.
Ólíkt mörgum öðrum
vörum sem ætlaðar eru
fyrir viðkvæma barnahúð
ilma Childs Farm vörurnar
ákaflega vel en lyktin er
þó mild og hentar öllum –
Childs Farm vill að baðtím-
inn eigi að vera skemmti-
legur fyrir alla og leggur sitt
af mörkum til þess.
Childs Farm vörurnar fást
hjá Fjarðarkaupum, Heim-
kaupum, Lyfju, Lyfjum og
heilsu, Apótekaranum,
Apótekinu, Hagkaupum
og sjálfstæðum apótekum
um land allt.
Ólíkt mörgum öðrum vörum sem ætlaðar eru fyrir við-
kvæma barnahúð ilma Childs Farm vörurnar ákaflega vel
en lyktin er þó mild og hentar öllum.
Unnið í samstarfi við Balsam
Vilborg Kristinsdóttir sem starfar sem lagerstjóri leið vítiskvalir hvern dag vegna vefjagigtar sem lýsir sér meðal annars með miklum verkjum um allan
líkama. Hún keyrði sig áfram með verkjalyfjum
og hörkunni. Aðeins mánuði eftir að hún hóf
inntöku á Curcumin gat hún minnkað verkja-
lyfjanotkun umtalsvert og var farin að geta hluti
sem áður voru ómögulegir vegna gigtarinnar.
Greindist með vefjagigt 18 ára
Vilborg var greind með vefjagigt ung að aldri
sem gjarnan var kallaður ruslakistusjúkdómur.
Það var lítið hægt að gera og fá meðferðarúr-
ræði í boði. Hún lærði að lifa með sjúkdómnum
en þurfti mikið af verkjalyfjum til þess að
komast gegnum daginn.
„Ég hef líklega byrjað að finna fyrir vefjagigt-
inni aðeins 18 ára, en ég skrifaði það alltaf á
vöðvabólgu. Ég vann til dæmis erfiðisvinnu
á kúabúi og skrifaði verkina á þá vinnu. Ég
eignaðist börn eftir tvítugt sem getur ýtt undir
vöðvabólgu þannig að ég velti þessu ekkert
stórkostlega fyrir mér, ég var bara með verki og
þannig var það bara,“ segir
Vilborg.
Ástandið orðið
mjög slæmt
Vefjagigtin var svipuð
hjá Vilborgu fyrstu 15
árin eftir greininguna
en síðastliðin 5 ár hefur
hún farið versnandi.
Hún prófaði gjarnan eitt
og annað sem átti að
hjálpa til og gaf því séns
í sex mánuði en ekkert
virkaði sem gat slegið
verkina. Síðastliðið haust
var ástandið orðið afar
slæmt. „Líðanin var orðin þannig hjá mér að
mér leið alltaf eins og ég væri með 40 stiga hita
og með svakalega beinverki. Þetta var bara kval-
ræði,“ segir Vilborg sem þarf vegna starfs sína
að erfiða mikið líkamlega hvern dag.
Curcumin lætur mér líða eins og ég sé tvítug
aftur
Vilborg kom auga á auglýsingu fyrir Curcumin
hylkin og ákvað að prófa; ástandið gæti ekki
versnað. „Ég byrjaði að taka þetta inn og leiddi
hugann raunar ekkert að því meira. En allt í
einu, eftir um það bil mánuð, þá fór ég að finna
verulegar breytingar. Ég var ekki
lengur eins aum í líkamanum og
ég áttaði á mig að ég var farin
að stafla vörubrettum og lyfta
þungum hlutum sem ég hafði
alls ekki treyst mér til áður. Ég sagði við
börnin mín að mér liði eins og ég væri
tvítug aftur!“
Alsæl með árangurinn og hætt að taka
verkjalyf á kvöldin
Vilborg fann ekki einingis mun á sér líkamlega
heldur einnig andlega. „Það er bara ofboðslega
niðurdrepandi að líða vítiskvalir alla daga og
keyra sig áfram á hörkunni. Nú er ég hætt að
taka verkjalyf á kvöldin sem er mikill sigur.
Líðan mín er í dag raunar ekki sambærileg
miðað við hvernig hún
var í október. Ég
mæli hiklaust
með Curc-
umin, ég er bókstaflega alsæl yfir þeim árangri
sem hefur komið fram til þessa“.
Gullkryddið
Curcumin hefur einnig verið nefnt gullkryddið
og er virka innihaldsefnið í túrmerik rótinni og
hefur verið notað til lækninga og til matargerðar
í yfir 2000 ár í Asíu. Hátt í 3000 rannsóknir
hafa verið gerðar á þessari undrarót undanfarna
áratugi sem sýna að Curcumin getur unnið
kraftaverk gegn hinum ýmsum kvillum líkamans
og sé jafnvel áhrifameira en sum skráð lyf og
án allra aukaverkana. Curcumin hefur jákvæða
verkun gegn slæmum liðum, gigt, bólgum og
magavandamálum, styrkir hjarta- og æðakerfið
og ásamt því að bæta heilastarfsemi og andlega
líðan.
“Curcumin getur hjálpað fólki að draga veru-
lega úr neyslu sinni á bólgueyðandi lyfjum.” –
David Wolfe heilsusérfræðingur
Bætiefnið er unnið úr túrmerik rót frá Ind-
landi og er 100% náttúrulegt, inniheldur engin
rotvarnarefni og er framleitt eftir ströngustu
gæðakröfum (GMP vottað).
Ráðlögð notkun: Taktu tvö grænmetishylki
með vatnsglasi yfir daginn.
10 | fréttatíminn | HELGIN 19. FEBRúAR–21. FEBRúAR 2016
Kynningar | Heilsa móður og barns AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Heilbrigð húð = hamingjusöm börn
Margverðlaunaðar húð- og hárvörur án aukaefna frá Childs Farm.
HREINT CURCUMIN ER MARGFALT
áHRIFAMEIRA EN TúRMERIk
Innihald Curcumin í túrmerik er ekki mikið, aðeins um 2–5%
miðað við þyngd og því getur hreint Curcumin orðið allt að 50
sinnum áhrifameira en túrmerik. Curcumin bætiefni eru því kjörin lausn fyrir þá sem vilja fá
hámarks ávinning frá túrmerik rótinni á þægilegan máta.
Öflug og náttúruleg hjálp í baráttunni við vefjagigt
Vilborg Kristinsdóttir hefur þjáðst af vefjagigt í fjölmörg ár en finnur miklar breytingar eftir inntöku á Curcumin frá Nat-
ural Health Labs. Vilborg segist loksins komast í gegnum daginn án verkja.
Vilborg þjáist af mikilli vefjagigt en hefur fundið gríðarlega
mikinn mun síðan hún hóf inntöku Curcumin.
Curcumin frá Natural Health Labs er allt að 50 sinnum áhrifameira en
hefðbundið túrmerik. Curcumin er tilvalið fyrir þá sem vilja styrkja liða-
mótin, auka liðleika, bæta andlega líðan, auka orku ásamt því að losna
við langvarandi liðverki, bólgur, gigt og magavandamál.