Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 20
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
EDINBORG flug f rá
9.999 kr.
jú l í - október
*
FRANKFURT flug f rá
12.999 kr.
jún í
*
BERLÍN flug f rá
9.999 kr.
mars - maí
*
PARÍS flug f rá
9.999 kr.
mars - apr í l
*
BRISTOL flug f rá
9.999 kr.
maí - jún í
*
WOW
ALL A
LEIÐ!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
milliliðalaust en ekki fengið.
Upplýsingarnar eru hins vegar ekki
til að fyrirskipan Borgunar. „Ég
þekki ekki samskiptin um þetta en
ég veit ekki til annars en að gagna-
herbergjum sé bara alltaf lokað,“
segir Haukur Oddsson, forstjóri
Borgunar, í samtali við Frétta-
tímann. – Í ljósi þess að salan var
enn til umfjöllunar fjölmiðla í mars
2015, og til athugunar eftirlitsstofn-
ana, hefði þá ekki verið eðlilegast
að halda gagnagáttinni opinni? „Ég
veit ekki betur en að það sé algjör-
lega staðlaður framgangsmáti að
loka gagnaherbergjum. Það er að
eyða þeim. En gögnin eru öll til
staðar og listar um það sem þangað
fór inn og hverjir fengu aðgang að.“
– Þessi tímasetta og sjálfvirka að-
gangsskráning er farin og þið eigið
ekki afrit af henni eða hvað? „Nei.“
Forsvarsmen Azazo vildu ekki tjá
sig þegar Fréttatíminn leitaði til
þeirra.
Íhuga að rifta sölunni
Bankastjóri Landsbankans sagði í
Kastljósi í upphafi vikunnar að til
skoðunar væri að rifta sölunni á
Borgun og leggja fram kæru vegna
málsins. Ekki liggi þó fyrir hvað
gert verði. Aðspurður hvort for-
svarsmenn bankans líti svo á að
þeir hafi verið blekktir, sagði Stein-
þór: „Það er sterkt orð. Okkur hefði
þótt eðlilegt að það hefði verið gerð
grein fyrir þessu á þessum tíma.
Það var ekki gert.“ Aðspurður
hvers vegna Landsbankinn leitaði
ekki til sérstaks saksóknara, nú
héraðssaksóknara, ef grunur væri
á blekkingum, sagði Steinþór að
slíkt væri til skoðunar. Salan á
Borgun er nú til athugunar hjá
fjórum eftirlitsaðilum: Bankasýslu
ríkisins, Fjármálaeftirlitinu og
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Alþingis, auk Ríkisendurskoðunar.
Það er í því ljósi sem lokun hins
rafræna gagnaherbergis hefur
vakið athygli meðal viðmælenda
Fréttatímans. Lögfræðingar á
vegum KPMG sáu um uppsetn-
ingu og rekstur gagnaherbergisins
fyrir stjórnendur Borgunar. KPMG
hefur, fyrir hönd Borgunar, afhent
Fjármálaeftirlitinu lista yfir öll þau
gögn sem aðgengileg voru í gagna-
herberginu. Á listanum er, sam-
kvæmt heimildum Fréttatímans
innan úr Borgun, tilgreindur val-
réttarsamningur Borgunar vegna
hugsanlegrar yfirtöku Visa inc.
á Visa Europe. Það er í andstöðu
við yfirlýsingar Landsbankans til
Bankasýslu ríkisins frá 11. febrúar
síðastliðnum en þar kemur fram að
„í kynningunum var í engu vikið
að því að Borgun ætti hlutafé í Visa
Europe eða tilkall til endurgjalds,
kæmi til þess að valréttur Vísa Eu-
rope og Vísa Inc. yrði nýttur.“
Borgunarmálið í hnotskurn
Landsbankinn, sem er að 98% eign ríkisins, seldi hlut sinn í Borgun
í lok árs 2014 til Eignarhaldsfélagsins Borgun slf. Borgunarhluturinn
var ekki seldur í opnu ferli og öðrum aðilum en stjórnendum og fjár-
festingahópi, leiddum af Magnúsi Magnússyni, var ekki boðið að kaupa
hlutinn. Íslandsbanki hafði áður hafnað yfirtöku á hlutnum en bankinn
átti þegar um 60% hlut.
Einar Sveinsson, föðurbróðir Bjarna Benediktssonar fjármála- og
efnahagsráðherra, er meðal fjárfestanna. Þeir Bjarni voru viðskipta-
félagar um árabil, en Bjarni hætti afskiptum af viðskiptum í lok árs
2008. Verðmæti Borgunar hefur hækkað gríðarlega síðan salan átti sér
stað. Við söluna var Borgun metin á um sjö milljarða en í dag er fyrir-
tækið metið á 19-26 milljarða. Þá væntir Borgun þess að fá rúmlega sex
milljarða á næstu árum vegna samkomulags við Visa.
Samkeppniseftirlitið ósammála
Landsbankanum
Ítrekað hefur Landsbankinn lýst
yfir að sala bankans á hlut sínum í
Borgun sé afleiðing af kröfu Sam-
keppniseftirlitsins um að „eignar-
haldi kortafyrirtækjanna yrði
breytt þannig að aðeins einn banki
væri í eigendahópi hvers fyrirtæk-
is.“ Þessu hefur Samkeppniseftir-
litið mótmælt og bent á að eftirlitið
gerði ekki kröfu á Landsbankann
um að selja hlut sinn. „Í tilviki
eignarhalds bankanna á Borgun
skal það tekið fram að það var ekki
skilyrði Samkeppniseftirlitsins að
Landsbankinn fremur en Íslands-
banki seldi sig út úr félaginu,“ segir
í tilkynningu Samkeppniseftirlits-
ins frá janúarlokum. Þá er bent á
að Borgun hafi verið seld úr bank-
anum áður en Samkeppniseftirlitið
lauk sátt við Landsbankann. „Ekki
kom því til þess að Samkeppnis-
eftirlitið setti bankanum tímamörk
eða önnur bindandi skilyrði varð-
andi fyrirkomulag á sölu eignar-
hluta. Sala Landsbankans á hlutum
sínum í Borgun og Valitor og til-
högun hennar var því alfarið á for-
ræði og á ábyrgð Landsbankans.“
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir riftun
sölu á þriðjungshlut í Borgun til skoðunar.
Haukur Oddsson,
forstjóri Borgunar.
20 | fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016