Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 40
Myndir | Hari Áhugamál sem nær alla leið út í geim Radíóamatörar tala saman á bylgjum loftsins um allan heim Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir salka@frettatiminn.is Stórt loftnet prýðir húsið við enda Skeljaness í Skerjafirði og vekur athygli margra sem eiga leið um. Loftnetin gegna mikilvægu hlut- verki fyrir starfsemi svokallaðra radíóamatöra sem koma saman í húsinu. Radíóamatörar eru þeir sem stunda það áhugamál að smíða eigin loftnet og tæki til fjarskipta og hafa samband við aðra radíóama- töra út um allan heim með því að komast inn á sérstök tíðnisvið. Aðeins 16 kvenkyns frá upphafi Anna Henriksdóttir myndlistar- kennari er ein fárra kvenkyns radíóamatöra á Íslandi og jafnframt stofnandi sambands kvenkyns amatöra í Skandinavíu, Scandinavi- an Young Lady Radio Amateurs, eða SYLRA. Nafngiftin kemur af því að þegar vísað er til kvenkyns ama- töra er talað um YL, Young Lady, og þegar talað er um þá karlkyns er talað um OM, eða Old Man. Til að gerast full- gildur radíóama- tör fara menn á þriggja mánaða langt námskeið í fræðum radíó- amatöra. „Þar lærirðu það sem þarf til að starfrækja radíóstöð á ábyrgan hátt, á hvaða tíðnum er leyfilegt að starfa sem radíóamatör, um uppsetningu loftneta og innviði fjarskiptatækja“ segir Anna. Við lok námskeiðsins var tekið verklegt próf í að smíða tæki til fjarskipta. Anna segir hægt að stunda áhugamálið á ýmsa vegu. „Það er til dæmis hægt að fara upp á fjöll með ferðastöð og loftnet og reyna að ná sambandi við einhvern. Sum- ir stunda þetta eins og frímerkja- söfnun og keppast um að ná sam- bandi við sem flest lönd. Eins halda radíóamatörar atburði eins og Vita- helgi, þar sem radíóamatörar út um allan heim fara út í nærliggjandi vita og hafa samband sín á milli þaðan.“ Hún segir þetta óvenjulega áhugamál snúast að miklu leyti um samskipti við fólk og segist þekkja marga sem eignast hafa lífstíðar- vini í gegnum áhugamálið. „Ég þekki til dæmis konu sem hefur farið í loftið á sama tíma á hverjum einasta degi í heil 40 ár til þess að heyra í ákveðnum sjóara sem hún á í radíóamatörsambandi við.“ Sigurður Hrafnkell segist eitt sinn hafa talað við radíó- amatör á Falklands- eyjum og var það hans fjar- lægasta samband. Þess eru dæmi að fólk hafi óvænt náð sambandi við kónga og drottningar sem hafa þetta áhugamál. 40 | fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.