Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 16
sem hann hyggst koma undir sig fótunum og leggja eitthvað að mörkum til samfélagsins. Forréttindi að vinna Þráinn vill vita hvort Geir hafi öðlast einhver réttindi á meðan hann afplánaði dóm í fangelsinu í Bandaríkjunum. „Nei, engin rétt- indi. Það þóttu mikil forréttindi að fá að stunda vinnu og ég upplifði það þannig líka. Það var algjörlega nauðsynlegt fyrir mig sem var að afplána svona langan dóm, að hafa eitthvað að gera. Ef maður hefur ekkert að gera, gerir maður eitt- hvað af sér. Mér finnst nauðsynlegt að það séu einhverskonar úrræði sem menn geta tekið þátt í dag- lega, ekki bara einu sinni í viku. Það verður að vera rútína.“ Geir var einn af þrjú þúsund föngum í Greensville fangelsinu. Til samanburðar eru um það bil 160 fangar á Íslandi í dag. „Við vorum vaktir og taldir á hverjum morgni klukkan 5.45 og aftur klukkan ellefu á kvöldin. Þess á milli gátu menn gert það sem þeir vildu og það er vandamálið. Það er alltof mikill tími aflögu. Námið var takmarkað og bara fyrir þá sem eru 35 ára og yngri og að ljúka síðustu tveimur árum í afplánun. Ég gat hinsvegar greitt fyrir mitt nám sjálfur og gat því byrjað aðeins fyrr að stunda það.“ Fangar ragir við að skrifa Margrét útskýrir að fangar á Litla- Hrauni þurfi ekki að greiða fyrir menntaskólanám. „En ef menn vilja stunda háskólanám þurfa þeir að borga fyrir það sjálfir. Vandinn er að stór hluti fanga flosnaði upp úr námi 12-13 ára gamlir og þess vegna þyrftum við að geta veitt þeim sérkennslu. Mjög margir eru ólæsir og óskrifandi og eiga erfitt með að setjast á skólabekk,“ segir Margrét. „Þetta þekki ég alveg,“ segir Geir. „Þeir voru margir í fangels- inu með mér sem hvorki kunnu að lesa né skrifa.“ „Flestir eru að glíma við einhver vandamál, lesblindu, ADHD, eða aðrar raskanir sem aftra þeim að einhverju leyti. Þeir hafa kannski aldrei átt séns á að stunda nám eða vinnu. Ég sé það þegar þeim er gef- inn kostur á að skrifa athugasemdir við áminningar eða eitthvað slíkt. Langfæstir nýta sér það. Marga skortir sjálfstraust í að koma frá sér skrifuðum texta og eru hræddir við að skrifa eitthvað rangt. Þeir sleppa því frekar,“ segir Þráinn. Margrét segir það algengt að fangar á Litla-Hrauni upplifi í fyrsta sinn á ævinni inni í fang- elsinu að ná einhverju prófi. „Að komast yfir þann þröskuld er ofsa- lega stórt skref. Það gefur þeim ákveðið sjálfstraust og þess vegna er ég sannfærð um að námið sé lang, lang besta úrræðið í fangels- inu.“ Þráinn tekur undir það. Fyrirtæki vilja gefa föngum séns Hann bendir á að það sé stór hluti af starfi hans að vera hálfgerður atvinnumiðlari. „Ég er stöðugt í sambandi við fyrirtæki til að reyna að skaffa mönnum, sem eru komn- ir á Vernd, vinnu. Ég finn ekkert nema velvilja og skilning hjá for- svarsmönnum fyrirtækjanna. Það er ekki vandamál að finna vinnu- staði sem eru tilbúnir til að gefa mönnum séns. Stundum hringja fyrirtækin meira að segja til mín og spyrja hvort það sé einhver laus. Mér hefur bara ekki fundist neitt mál að finna tækifæri fyrir þessa menn. Þeir þurfa hinsvegar sjálfir að hringja og teygja sig eftir vinnunni og vinna undir ströngum skilyrðum. Þeir eiga að mæta á réttum tíma á hverjum degi og það er fylgst með því sem þeir gera. Þetta getur verið mjög íþyngjandi. Auðvitað væri miklu þægilegra að vera bara inni í fangelsi og fá að sofa út. Sumir eru ragir við að sækja um vinnu vegna þess að þeir treysta sér ekki í svona ábyrgð og hafa kannski ekki mikla reynslu af því að lifa svona rútíneruðu lífi. Mér finnst stundum eins og það sé búið að draga allar tennur úr mönnum, þá vantar allan vilja, og sjálfsvirðingu til að takast á lífið. Þeir eru bognir og hafa litla trúa á að þeir geti bætt sig,“ segir Þráinn. „Það er erfitt að koma mann- eskju af stað eftir að hafa verið sitjandi í langan tíma. Þess vegna finnst mér vanta úrræði svo menn læri að koma sér af stað. Það er ekki nóg að fara kenna mönnum að vinna og svona rétt áður en þeir fara út. Þetta ætti að gera um leið og þeir koma inn. Því eins og við vitum þá hafa fæstir sem koma inn í fangelsin verið að læra eða vinna. Það þarf að byrja að vinna með þá strax og þeir koma inn, annars halda þeir áfram á sömu braut og áður. Að hangsa og láta tímann líða án þess að gera neitt upp- byggilegt,“ segir Geir. Lífsviðhorfsbreytingin kom Geir hefur áður lýst erfiðum að- stæðum í fangelsinu þar sem hann dvaldi. Næringargildi matarins hafi verið lítið, honum var kalt og aðstæðurnar að öllu leyti harð- neskjulegri en í íslenskum fang- elsum. Margrét segir lífsviðhorf Geirs aðdáunarvert, að hann líti fram- tíðina björtum augum eftir að hafa setið svona lengi í fangelsi við þessar aðstæður. „Það er ekkert sem stoppar mig lengur í því að lifa góðu lífi. Ég er búinn að af- plána minn dóm og er búinn að klára þennan kafla í lífi mínu. Ég get skapað mér gott líf og öðlast allskonar réttindi hér á Íslandi, eins og aðrir,“ segir Geir. „Hugur- inn er augljóslega engin hindrun hjá þér,“ segir Þráinn. „Og ég hitti oft menn sem hafa fengið svona lífsviðhorfsbreytingu. Það er akk- úrat það sem Geir hefur öðlast. Hann er að halda áfram og ekkert að velta sér uppúr því sem er búið. Það er það sem hjálpar honum.“ Aðspurður um hvort það séu svona tilfelli sem gera vinnuna á Vernd gefandi, svarar Þráinn; „Já, að mörgu leyti. Ég hef verið lengi í þessu og það er enn mikill eldmóð- ur í mér, að toga menn áfram og benda þeim á leiðir út í lífið. Það er einhver hvati á bak við þetta hjá mér. En það er einstaklega gaman að heyra Geir lýsa sínu viðhorfi, hann hefur afplánað miklu lengur en þeir sem sitja lengst hér heima. Það gerist oft að menn öðlist svona lífsviðhorfsbreytingu einhvers staðar á leiðinni.“ „Mér finnst hún gerast mest hjá þeim sem fara í nám. Þeir sem klára stúdentsprófið og fara í há- skólanám, ná því markmiði og sjá möguleikana á að skaffa sér vinnu. Það er ómetanlegt að fylgjast með sjálfseflingu manna sem fara þá leið,“ segir Margrét og Geir tekur undir. „Fyrir mitt leyti var námið í fangelsinu algjörlega æðislegt. Þá loksins gat ég sagt við fjölskylduna mína og vini að ég hafi gert eitt- hvað sem ég var stoltur af. Það var frábær tilfinning. Þó ég hafi bara farið í tveggja ára nám þá var það byrjun og nú get ég haldið áfram.“ Bruggaði landa í fangelsinu Geir segir vendipunktinn hafa komið eftir þrjú dapurleg ár í fang- elsinu. „Þegar ég fór inn varð ég mjög þunglyndur og fannst líf mitt vera búið. Mér fannst erfitt að kom- ast í gegnum þetta og hélt áfram á sömu braut og áður en ég kom inn. Ég bruggaði landa í fangelsinu og var áfram partur af klikkaða samfé- laginu. Eftir þrjú hræðileg ár áttaði ég mig og uppgötvaði að ef ég héldi áfram yrði ég ekki að betri manni. Ég var ósáttur við sjálfan mig og fann að ég varð að gera eitthvað í mínum málum. Ég vissi að ég gæti það ekki einn svo ég leitaði ég til guðs. Ég fór að biðja reglulega til guðs um hjálp og öðlaðist við það einhverskonar innri frið. Ég las mig til um kristna trú og lagði mig allann fram um að reyna að skilja út á hvað hún gengur. Það hljómar örugglega skrítið í eyrum margra en trúin varð mín hjálp.“ Þráinn bendir á að vímuefna- neysla í fangelsunum sé helsta hindrunin fyrir því að menn öðlist svona viðhorfsbreytingu. „Á meðan menn eru í neyslu skiptir engu máli hversu oft þeim er rétt hjálparhönd, þeir eru innilokaðir í svartnætti.“ Margrét segir að meðferðarúr- ræðið sem hafi verið í boði á Litla- Hrauni í nokkur ár, sé frábært og 16 | fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.