Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 4
Hið almenna
viðhorf til vísinda-
mannsins er karl í hvít-
um slopp en ekki kona
með barn á brjósti.
Auður Magnúsdóttir
Konur eru í meirihluta í háskólanum
en fá ekki stöðurnar
Konur urðu fleiri en karlar á háskólastigi um
miðjan 9. áratuginn og eru nú um 2/3 háskóla-
nema. Kerfisbundið brottfall kvenna milli stiga
hefur verið nefnt „leaky pipelines“ því konur skila
sér í minna mæli en karlar í háskólakennslu.
26%
prófessora
eru konur
4 | fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016
Flóttamenn Formaður allsherjarnefndar vill upplýsingar um verklag við brottvikningu
Þingkona segir þetta meira en hún geti þolað
„Ég er þakklátur fyrir
stuðninginn frá Íslendingum,
núna veit ég að ég er ekki
einn. Ég er hamingjusamur í
dag,“ segir Christian Kwaku
Boadi frá Gana.
Hætt var við að flytja fjóra hælisleit-
endur til Ítalíu aðfaranótt fimmtu-
dags, eftir að mótmæli voru skipu-
lögð við heimili þeirra.
Unnur Brá Konráðsdóttir, formað-
ur allsherjarnefndar, segist ætla að
óska eftir upplýsingum um hvernig
að málinu var staðið að hálfu Útlend-
ingastofnunar.
„Þetta eru ómanneskjuleg vinnu-
brögð,“ segir Sigríður Ingibjörg Inga-
dóttir, þingmaður Samfylkingarinn-
ar. „Ég held að íslensk stjórnvöld hafi
áttað sig á því að það yrði allt brjálað
ef þetta gengi eftir. Þetta er allavega
út yfir það sem ég þoli. Það held ég að
eigi við um fleiri.“
Hún minnir á að Ólöf Nordal inn-
anríkisráðherra hafi ætlað að skoða
ástandið í flóttamannamálum á Ítalíu,
í Grikklandi og Ungverjalandi. Lög-
fræðingur tveggja mannanna hafi
ekkert heyrt af slíkri rannsókn, hvað
þá þeir.
Unnur Brá segir hinsvegar að matið
VW Up! frá aðeins:
1.790.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Yfir 200 konur mættu á
stofnfund Félags kvenna
í vísindum síðastliðinn
fimmtudag. Auður Magnús-
dóttir lífefnafræðingur segir
karla pota ungum körlum í
réttu stöðurnar.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Það er greinilega mikil þörf á þess-
um félagsskap. Persónulega átti ég
von á svona 20 konum en það mættu
yfir 200,“ segir Auður Magnúsdóttir,
lífefnafræðingur hjá Íslenskri erfða-
greiningu, um stofnfund hins ný-
stofnaða Félags kvenna í vísindum.
Félagið á að stuðla að því að kon-
ur í vísindum myndi sterk og var-
anleg stuðnings- og tengslanet en
skortur á þeim er talin vera ein af
orsökum kynjahallans í vísindum.
Auður segir fjölda kvenna hafa stigið
fram á fundinum til að lýsa þungum
áhyggjum af stöðunni. „Við fáum
færri stöður og minni styrki en það
er ekki eitthvað eitt sem hægt er að
benda á. Þetta eru ofboðslega mörg
lítil atriði sem þrýsta konunum út
í eitthvað ósýnilegt horn. Við bara
sjáumst ekki. Við vitum vel hver
staðan er, því við höfum tölfræðina
með okkur, en það er rosalega gott
að finna samstöðu og hún var svo
sannarlega til staðar á fundinum.“
„Hið almenna viðhorf til vísinda-
mannsins er karl í hvítum slopp
en ekki kona með barn á brjósti.
Ástandið hjá okkur í íslenskri erfða-
greiningu er samt gott enda eru kon-
ur í meirihluta í yfirstjórninni,“ segir
Auður sem hefur mikil samskipti við
fræðasamfélagið og önnur fyrirtæki
Jafnréttismál Hrósi ausið yfir ungu karlana
Konur í vísindum
eru ósýnilegar
Katrín Júlíusdóttir hefur lýst
því yfir við flokksmenn að
hún ætli að hætta í stjór-
nmálum og sækist ekki eftir
endurkjöri í næstu kosning-
um. Þetta gerir hún í tilefni
af því að skorað hefur ver-
ið á hana að gefa kost
á sér til formennsku í
Samfylkingunni. „Ég hef hins-
vegar tekið þá ákvörðun að
sækjast ekki eftir endur-
kjöri í næstu alþingiskosn-
ingum og þar af leiðandi
mun ég ekki bjóða fram
krafta mína til frekari
forystustarfa fyrir
Samfylkinguna,“
segir Katrín í
orðsendingu til
f lokksmanna á
Facebook.
Áfengisframleiðandinn Pernod/
Ricard bauð tveimur starfsmönn-
um Fríhafnarinnar á EM í fótbolta í
sumar. Framkvæmdastjóri Fríhafn-
arinnar lagði blátt bann við ferðinni
og segir slíkt ekki samræmast siða-
reglum fyrirtækisins. „Við þiggj-
um ekki svona ferðir,“ segir Þor-
gerður Þráinsdóttir. „Starfsmenn
mega þiggja kvöldverð af viðskipta-
vinum, ef það felur ekki í sér ferðir
eða gistingu. Þeir mega hinsvegar
ekki þiggja gjafir, nema litlar hefð-
bundnar tækifærisgjafir kringum
jól eða vörukynningar.“
Þorgerður segir að slík boð berist
stundum frá stórum vínumboðum,
því þau styrki oft íþróttaviðburði,
sem verið sé að bjóða á. Þeim sé
alltaf svarað á sömu lund. | þká
í sínu starfi. Hún segist oft upplifa
það hvernig komið er öðruvísi fram
við vísindakonur en karla. „Þeir
sem eru hærra settir eru miklu dug-
legri að ausa hrósi yfir ungu karlana
og pota þeim inn á réttu staðina á
meðan konurnar virðast vera ósýni-
legar, þrátt fyrir að vera jafn hæfar
eða hæfari.“
Auður Magnúsdóttir, sameindalíffræðingur og
deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu, er í stjórn
hins nýstofnaða Félags kvenna í vísindum.
liggi fyrir, það hafi verið kynnt í alls-
herjarnefnd eftir áramótin. Menn-
irnir hafa búið hér í þrjú til fjögur ár
og stunda hérna vinnu og nám. „Það
er eins og íslensk stjórnvöld líti á það
sem skyldu sína að vísa þessu fólki
burt,“ segir Sigríður Ingibjörg. „Þótt
það sé að vinna hér og aðlagist ís-
lensku samfélagi vel."
Í tilkynningu frá Útlend inga stofn-
un segir að sann girn is sjón ar mið,
meðal hóf og vönduð stjórn sýsla hafi
orðið til þess að ákveðið var að fresta
flutn ing um þar til kær u nefnd út lend-
inga mála hefði tekið af stöðu til end-
urupp töku mál anna. | þká
Idafu Onafe Oghene á íslenska kærustu. Hann er á þriðju önn í námi í
Tækniskólanum. Christian Kwaku Boadi vinnur sem aðstoðarkokkur á
Lækjarbrekku. Martin Omolu er samkynhneigður og flúði heimaland
sitt vegna ofsókna á grundvelli kynhneigðar sinnar.
Fá ekki að fara á EM
Katrín hættir
í stjórnmálum
Katrín Júlíus-
dóttir, varafor-
maður Sam-
fylkingarinnar.
Starfsmenn Fríhafnarinnar mega þiggja kvöldverð af við-
skiptavinum, ef það felur ekki í sér ferðir eða gistingu.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, kallaði
eftir endurnýjun í forystusveit flokksins á
flokksráðsfundi um síðustu helgi.
Katrín Jakobsdóttir sagði að VG hefði verið að endur-
nýja stefnuna og endurmeta gildi sín. Hún væri
ánægð með niðurstöðuna en það þyrfti að skoða
í framhaldinu hvernig þess þessi stefna fái sem
mestan hljómgrunn. Unga fólkið vilji gjarnan láta
meira að sér kveða þótt reynsla og nýtt fólk þurfi að
fylgjast að.
„Grasrót flokksins vill gjarnan sjá flokkinn upp-
skera meira í skoðanakönnunum og ná meiri ár-
angri,“ segir Katrín. „Það er því nauðsynlegt að hver
og einn í forystusveit flokksins, sem samanstendur
að mestu af reynsluboltum, íhugi hvort hann sé rétta
manneskjan til að framfylgja stefnunni.“
Katrín segir í samtali við Fréttatímann að enn sem
komið er hafi hún ekki fengið nein viðbrögð. | þká
| þká
Stjórnmál Grasrótin vill sjá flokkinn uppskera meira
Katrín Jakobsdóttir kallar eftir
endurnýjun í forystusveit VG
Katrín Jakobsdóttir vill
endurnýja í liðinu.