Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 64

Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 64
Mynd | Hari Hafðu okkur með í ráðum 569 6900 08:00–16:00www.ils.is Okkar hlutverk hefur frá upphafi verið að stuðla að jafnvægi og að allir hafi jafna möguleika á að eignast húsnæði, hvar sem er á landinu. Hjá okkur færðu óháða og trausta ráðgjöf, hvort sem þú ætlar að kaupa eða leigja, þannig að þú vitir örugglega hvað þú ert að fara út í. Flugdrekasérfræðingurinn Arite Fricke kennir ungum sem öldnum að hanna sjálf- bæra flugdreka. „Að gera tilraunir þýðir oft að gera mistök, sem er mikilvægt því þá uppgötvar maður eitthvað nýtt, bæði um sköpunarferlið og líka um sjálfan sig. Þannig öðlast þátt- takandinn sjálfstraust og betri sjálfsmynd. Að búa til flugdreka sem virkar og flýgur vel bætir vellíðan því það er svo gríðarlegur sigur,“ segir grafíski hönnuður- inn og flugdrekasérfræðingurinn Arite Fricke. Arite hefur lengi verið með dellu fyrir flugdrekum og milli þess sem hún hannar þá og kennir ungum sem öldnum að búa þá til hefur hún rannsakað sögu þeirra og lögmál og ferðast á eina stærstu flugdrekahátíð heims, Dieppe International Kite Festival, til að kenna fólki að gera flugdreka á sjálfbæran hátt. „Annað sem ég elska við flugdrekagerð er að hún tengir saman greinar eins og stærð- fræði, listir, 2000 ára sögu og eðlis- fræði og svo vekur hún leikgleði hjá fólki á öllum aldri. Langbest er að smíða saman og hjálpast að, sérstaklega úti þegar loksins má setja flugdrekann á loft,“ segir Arite sem hefur skipulagt vinnusmiðjur í samstarfi við ýmsar stofnanir og fyrirtæki auk þess sem hún leggur nú lokahönd á nám í listkennslu við LHÍ. Næst á dagskrá eru fjöl- skyldusmiðjur í Safnahúsinu sem Þjóðminjasafnið skipuleggur í samstarfi við listkennara. Sú fyrsta verður í Safnahúsinu þessa helgi og er aðgangur ókeypis. Síðasta smiðjan verður skapandi flugdreka- gerð þar sem þátttakendur búa til sín eigin fljúgandi skjaldarmerki. Allir sem hafa áhuga á því að búa til einfaldan flugdreka heima geta kíkt á vefsíðu Fréttatímans þar sem kennslumyndbönd Arite er að finna. | hh Ókeypis í Bæjarbíó Frítt er inn á alla við- burði í Bæjarbíó í Hafnarfirði um helgina í tilefni Bóka- og bíóhátíð- ar barnanna sem hófst fyrr í vikunni. Þar verða klassískar íslenskar bíómyndir, byggðar á bókum, varpað á hvíta tjaldið. Höfundar bók- anna verða með inngang áður en kvikmyndin er sýnd. Laugardagur Sunnudagur Lína Langsokk- ur á laugardaginn klukkan 13. Sagan sígilda af Línu langsokk eftir Astrid Lindgren. Myndin var til á flestum heimilum á VHS en nýir tímar hafa gert hana óaðgengilega. Benjamín dúfa á laugardaginn klukkan 15. Sagan af Benja- mín dúfu, eftir Friðrik Erlingsson um Reglu rauða drekans. Kvik- mynd sem allir verða að sjá á lífsleiðinni og nú er kjörið tækifæri. engLar aLheims- ins á laugardaginn kl. 20. Einar Már Guðmundsson, höf- undur skáldsögunnar, flytur inngang fyrir sýninguna. 16 ár eru frá því myndin kom út og snerti við allri þjóðinni. múmínáLfarnir og haLastjarnan á sunnudaginn kl. 13. Mynd fyrir alla fjöl- skylduna með íslensku tali. Múmínsnáðinn uppgötvar einn daginn að eitthvað dularfullt hefur gerst í Múmín- dal og hefst þá mikið ævintýri. hrafnar sóLeyj- ar og myrra á sunnudaginn kl. 15. Eyrún Jónsdóttir, höf- undur skáldsögunnar, flytur inngang fyrir sýningu. Sagan fjallar um kvenhetjuna Láru sem lendir í allskyns ævintýrum til þess að bjarga vinum og fjöl- skyldu frá óvininum. djöfLaeyjan á sunnudaginn kl. 20. Einar Kárason, höf- undur skáldsögunnar, flytur inngang fyrir sýninguna. Kvikmyndin gerist í braggahverfi á fyrstu árum eftir síðari heimsstyrjöldina. Amerísk áhrif tröllríða öllu, bílar, áfengi og tónlist. Safnahúsið Skapandi flugdrekasmiðjur Að gera góðan flugdreka er mikill sigur Flugdrekarsérfræðingur- inn Arite verður með skapandi fjölskyldusmiðjur í Safnahúsinu sem hefjast núna um helgina. Arite fókusar alltaf á tilrauna- kennt sköpunarferli með sjálfbærni að leiðarljósi en allir hennar flugdrekar eru úr endurunnum efnum.  Fleiri myndir á frettatiminn.is 64 | fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.