Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 72
fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016
Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is
Lilja Pálsdóttir rafmagnsverkfræð-
ingur segir hreyfingu vera bestu
leiðina til þess að viðhalda líkam-
legri og andlegri heilsu í erilsömum
og krefjandi verkefnum í dagsins
önn. Hún á fjögur börn á ólíkum
aldri og dagskráin því æði þétt. Lilja
er að hefja störf um næstu mánaða-
mót í Landsbankanum þar sem hún
mun sjá um eignastýringu fyrir fyr-
irtæki í einkabankaþjónustu. Hún
hlakkar til nýrra áskorana og ekki
síst að sjá hvernig mun takast að
samræma nýtt starf og stórt heim-
ili.
„Það var alls ekki planið að eiga
svona mörg börn, ég var eiginlega
ekkert að pæla í því þegar ég varð
ólétt í háskólanámi, 22 ára,“ segir
Lilja sem á börn á aldrinum 11 mán-
aða til 12 ára. Aðeins 17 mánuðir eru
á milli þeirra tveggja yngstu. Heim-
ilislífið er afar fjörugt og sjaldan
dauður tími. „Börnin eru á svo ólík-
um aldri að þarfirnar eru gríðar-
lega ólíkar ég er eiginlega á handa-
hlaupum allan daginn! Stundum
eru veikindi og svo eru sýningar og
íþróttir og fleira og fleira. Við erum
heppin að búa á Seltjarnarnesi sem
er draumasveitarfélag þegar kemur
að börnum. Þetta er svo sannarlega
gaman en ég fer alveg þreytt upp í
rúm á kvöldin!“
Heilsusamlegt umhverfi
mikilvægt
Þrátt fyrir annir og eril gefur Lilja
sér alltaf tíma til þess að fara í rækt-
ina og segir það auðvelda rútínu
dagsins mikið að vera í góðu formi.
„Ég byrjaði að æfa í mömmuleikfimi
þegar yngsti drengurinn minn var
lítill og ég hef aldrei verið í betra
formi en nú; aldrei hlaupið hraðar
eða getað lyft meiru eða haft meira
þrek og þol. Þetta er það sem ég geri
fyrir mig, klukkutími á dag sem ég
kem alltaf að. Maðurinn minn er
líka duglegur að æfa og svo reynum
við að fara reglulega á Esjuna sam-
an og þá tökum við bara tvö yngstu
með. Það er svo mikilvægt að búa
sér heilsusamlegt umhverfi þegar
hættan á streitu er svona mikil – ég
er ekki að segja neinar fréttir þegar
ég segi að 4 barna heimili sé streitu-
valdur,“ segir Lilja og hlær.
Mætt skilningi vinnuveitanda
Lilja hefur unnið í bankageiran-
um síðastliðin 10 ár, var nú síðast
í fimm ár í Arion banka en hlakk-
ar til að venda kvæði sínu í kross
um næstu mánaðamót þegar ný
og krefjandi verkefni bíða hennar í
Landsbankanum. Hún óttast síður
en svo að það verði erfitt að sam-
ræma vinnuna og heimilið heldur
hlakkar til. „Ég er svo kát með það
sem ég geri í lífinu og finnst það svo
gaman. Ég er bara mjög spennt að
sjá hvernig þetta á eftir að ganga.
Ég hef ekki enn unnið hjá fyrirtæki
sem sýnir því ekki skilning að fólk á
börn og er með heimili,“ segir Lilja
og bætir við að það sé mikilvægt að
hafa gaman af verkefnum lífsins, þá
sé mun auðveldara að koma þeim
öllum fyrir.
Auðveldar rútínu
dagsins að vera í
góðu formi
Mikilvægt að búa sér heilsusamlegt
umhverfi til að minnka streitu.
Rafn Ágúst 12 ára, Arnar Steinn 11 mánaða, Lilja,
Hrafntinna Vilborg, 2 ára og Ragnhildur Arna, 7 ára.
Mynd | Hari
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ
FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR
HREINAN JARÐHITAKÍSIL
• Styrkir bandvefi nn*
• Stuðlar að þéttleika í beinum*
• Styrkir hár og neglur*
• Stuðlar að betri myndun kollagens
fyrir sléttari og fallegri húð*
*Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf.
Kísillinn kemur beint úr iðrum jarðar og er
því eins náttúrulegur og nokkur kostur er á.
Það eru engin viðbætt efni í vörunni.
ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR
„Ég mjaðmargrindar brotn aði illa
fyrir tíu mán uðum, ég hef verið að
taka kísilinn ykkar núna í u.þ.b.
8 mánuði og eftir tveggja til
þriggja mán aða inntöku varð ég
strax vör við mikinn mun. Í dag
finn ég varla fyrir því að hafa brotnað.“
HAFDÍS PRISCILLA MAGNÚSDÓTTIR
„Ég finn mikinn mun á mér eftir að ég
byrjaði að taka kísilinn frá GeoSilica inn
reglulega. Beinverki og vefjagigtaverki
er ég í raun alveg hætt að finna. Einnig
finn ég mikinn mun á nöglum en þær
eru mun sterkari, en þær voru alltaf að
brotna hjá mér. Ég get alveg sagt að þið eruð komin með
framtíðarkúnna hvað mig varðar.“
GeoSilica kísilvatnið fæst í heilsuvörubúðum, öllum helstu apótekum,
Nettó og í Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáralind og Hagkaup Garðabæ.