Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 17

Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 17
Veldu yfirburði! Siemens og Bosch í 19 af 20 efstu sætunum! Í úttekt danska neytendablaðsins Tænk (2015), þar sem teknar voru til skoðunar 50 uppþvottavélar frá ýmsum framleiðendum, voru yfirburðir Siemens og Bosch algjörir. Hér fyrir neðan eru þær uppþvottavélar sem lentu í efstu sætunum. Hlíðasmára 3 . Sími 520 3090 www.bosch.is BOSCH SMU 50M96SK BOSCH SMU 53M72SK BOSCH SMU 50M92SK BOSCH SMU 50M95SK BOSCH SMP 68M05SK (stál) BOSCH SMP 68M02SK BOSCH SMU 69T42SK BOSCH SMU 69T45SK BOSCH SMU 50E52SK SIEMENS SN 45M507SK SIEMENS SN 44D202SK SIEMENS SN 46T297SK SIEMENS SN 46T597SK BOSCH SMU 50M62SK SIEMENS SN 45M209SK Annar framleiðandi en Bosch eða Siemens. SIEMENS SN 45M207SK *fæst hjá: *fæst hjá: *fæst hjá: *fæst hjá: *fæst hjá: *fæst hjá: *fæst hjá: SIEMENS SN 478S01TS SIEMENS SN 45M231SK BOSCH SMU 51M12SK *fæst hjá: 1. sæti 6. sæti 11. sæti 16. sæti 3. sæti 8. sæti 13. sæti 18. sæti 5. sæti 10. sæti 15. sæti 20. sæti 2. sæti 7. sæti 12. sæti 17. sæti 4. sæti 9. sæti 14. sæti 19. sæti skili þeim sem það nýta sér í fínu standi út í samfélagið aftur. Með- ferðarúrræði eru í boði á Litla- Hrauni og á Sogni en þau mættu vera víðar. „Og nýtt frumvarp til laga um fangelsismál kemur ekkert inn á þetta og gerir ekki ráð fyrir meiri fjárveitingum til vímuefna- meðferða. Menn í afplánun fá líka sáralitla umbun fyrir að standa sig vel, sem dregur úr hvatanum til þess. Allar rannsóknir sýna að þeg- ar menn hafa setið í tvö ár í fang- elsi þá kemur að því að þeir annað hvort taki sig á eða haldi áfram á sömu braut,“ segir Margrét. Eiga skilið að fá umbun Þráinn telur nauðsynlegt að koma á hvatakerfi til að styrkja framfarir fanga. „Menn sjá engan ávinning af því að haga sér vel við núver- andi aðstæður. Mér þætti eðlilegt að þeir gætu haft áhrif á afplánun- ina með því að standa sig, að þeir kæmust til dæmis fyrr í opin fang- elsi og þaðan fyrr í úrræði eins og Vernd. Það er ekkert slíkt kerfi og þess vegna eru margir sem velja að halda áfram í neyslu.“ Margrét segir fyrirkomulagið sem nú er við lýði verði að gefa mönnum von og umbun. „Þeir ættu að geta unnið sér inn fríð- indi eins og að fá smá aukatíma með fjölskyldum sínum umfram það sem reglunar núna heimila, að komast í stutta fjöruferð eða sund. Lögin eru of stíf og heim- ila ekki slík frávik. Ef við viljum betrun í fangelsum þá hljótum við að kostnaðarmeta þann þátt. Það þýðir að það verður að styrkja námið, meðferðarúrræði og eftir- fylgnina. Við þurfum að fjölga opnu úrræðunum þar sem náðst hefur mikill og góður árangur. Og þegar við skoðum boðunarlistann yfir kannski 480 manns, þá er stór hluti af þeim sem þarf aldrei að fara inn í öryggisfangelsi.“ Þeim þykir öllum mikilvægt að fangarnir hafi sjálfir val og þeir sem vilji standa sig og vera edrú sé umbunað fyrir það. „Þá eru þeir sjálfir farnir að hafa áhrif á framvindu þeirra eigin mála,“ segir Þráinn. „Áður en við byrj- uðum með meðferðargang á Litla- Hrauni, árið 2007, var viðhorfið meðal fanga bara að vera í því alla daga. En svo þegar reynsla var komin á meðferðarstarfið þá fóru menn að horfa til þeirra sem höfðu náð árangri. Þetta er alveg eins og í náminu, sumir sýna gott fordæmi og hafa hvetjandi áhrif á samfanga sína,“ segir Margrét. Hræddist að losna Geir segist kannast við þetta. „Það var hópur af kristnum mönnum, kallaðir Carols, sem höfðu þessi áhrif á mig. Þegar þeir komu inn og stóðu fyrir skipulögðum fund- um fóru menn að koma saman og ræða um venjulega, heilbrigða hluti. Ég sá miklar breytingar á umhverfinu í fangelsinu á svona tíu ára tímabili eftir að þeir komu inn. Margir fóru að haga sér öðru- vísi eftir að þeir fengu einhverjar fyrirmyndir til að líta upp til. Það var bráðnauðsynlegt að hafa einhverja sterka einstaklinga úr fangahópnum til að sýna gott for- dæmi, það er ekki jafn áhrifaríkt þegar fangavörðurinn segir þér hvernig þú átt að haga þér. Það hlustar enginn á það,“ segir Geir. Þegar talið berst að lokum af- plánunar kannast þau öll við að kvíði magnist upp meðal fanga áður en þeir halda út í lífið. „Það er flókið að losna eftir langan tíma. Ég fann það oft á mönnum áður en þeir losnuðu, hvernig þeir trekktust upp,“ segir Mar- grét. „Ég man líka eftir þessu,“ segir Geir. „Mín framtíð var björt og ég hlakkaði til að losna en ég var samt hræddur við breyting- arnar sem höfðu orðið á samfé- laginu. Þær voru hrikalega miklar. Ímyndaðu þér að vera í kassa í 17 ár og vera svo hleypt út. Ég vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga. Ég er búinn að vera að reyna að finna út úr því í þrjá mánuði. Stundum verður þetta hreinlega bara of mikið fyrir mig.“ Þráinn talar um að það sé líka margt taugatrekkjandi fyrir menn sem koma úr öryggisfangelsi og inn á Vernd. Skrefin út í samfélagið geti verið erfið. „Þeir eru oft með fang- elsisgráma, fölt litarhaft eftir langa innilokun, sem getur verið í nokkr- ar vikur að hverfa. Þeim finnst margt stressandi við skilyrðin á Vernd, að vakna á ákveðnum tíma og skila sér heim í tæka tíð. Þetta eru ströng skilyrði en algjörlega nauðsynlegt aðlögunarferli.“ Þeir þurfi að finna að þeir ráði við þetta og öðlist von um betra líf. „Það sem þessi kristni hópur sem ég kynntist inni í fangelsinu, gerði gott var að planta hjá mér von um að það væri betri tíð fram undan. Það varð mér rosalega mikilvægt,“ segir Geir. Þeir eru oft með fangelsis- gráma, fölt litar- haft eftir langa innilokun, sem getur verið í nokkrar vikur að hverfa. Þráinn Farestveit, forstöðumaður á Vernd Þráinn Farestveit, Margrét Frímannsdóttir og Geir Gunnarsson eru sammála um að það þurfi að koma á hvata- kerfi í fangelsum svo menn sjá hag af því að haga sér vel og halda sér frá fíkniefnum. |17fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.