Fréttatíminn - 11.03.2016, Blaðsíða 8
Mynd | Rut
Sautján-húsið
„Sautján-húsið“, sem var byggt
árið 1968 og er alls 2.136 fer-
metr ar, hefur lengi verið auglýst
til sölu eða leigu gegn tilboði.
Eigandi þess, Ásgeir Bolli Krist-
insson, býr á efstu hæðinni og
vill ekki fá hvaða rekstur sem er
þar inn.
Segir glatað að „Sautján-
húsið“ standi tómt
Skipulagsmál Sala eða leiga húsnæðis við Laugaveg
Verslunarhúsnæðið við
Laugaveg 91 hefur staðið
meira og minna tómt frá
árinu 2008. Ásgeir Bolli
Kristinsson vill bara verslun
og einn leigjanda þar inn.
Hjálmar Sveinsson borgar-
fulltrúi segir stöðuna
glataða.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Að svona nýlegt og nútímalegt
húsnæði skuli standa autt árum
saman er alveg glatað. Það skortir
þarna einhverja samfélagslega
ábyrgð,“ segir Hjálmar Sveinsson
borgarfulltrúi um þá staðreynd
að rúmlega 2.000 fermetra versl-
unarhúsnæði við Laugaveg 91 hafi
staðið meira og minna tómt frá
því að verslunin Sautján hætti árið
2008.
Eigandinn býr á efstu hæð
Húsið, sem var byggt árið 1968
og er alls 2.136 fer metr ar, hefur
verið lengi á sölu gegn tilboði.
Fasteignamatið er 345 milljónir og
brunabótamatið 545 milljónir. Það
er einnig auglýst til leigu gegn til-
boði. Eigandi hússins, Ásgeir Bolli
Kristinsson eða Bolli í Sautján,
býr á efstu hæð þess og hefur ekki
áhuga á að fá aðra starfsemi en
verslun þar inn. Garðar Kjartans-
son, fasteignasali hjá Þingholti,
segir nokkur tilboð í húsið hafa
gengið langt en ekkert sem sé
Bolla að skapi. „Það hafa verið
áhugasamir aðilar en Bolli vill
bara fá verslun, helst fataverslun.
Hann vill heldur ekki fá marga
leigjendur heldur vill hann bara
hafa einn leigjanda.“
Fimm milljónir í leigu
Sumsstaðar erlendis eru til lög og
reglugerðir sem koma í veg fyrir
að húsnæði standi autt í langan
tíma en Hjálmar segir engar slíkar
kvaðir vera til staðar hér á landi.
„Kannski hafa menn bara reiknað
með því að það hefði enginn efni
á því að láta verðmætt hús standa
autt árum saman. Þannig að því
miður höfum við ekki tæki og tól
til að koma í veg fyrir það þetta
gerist.“
Aðspurður um mögulegt
leiguverð segir Garðar allt vera
að verða vitlaust í eftirspurn eftir
húsnæði við Laugaveg og Skóla-
vörðustíg, verðið hækki stöðugt
og sé allt að 9 þúsund krónur á
fermetrann en hann giskar á að
svo stórt húsnæði gæti farið á 5
þúsund krónur á fermetra. Í aug-
lýsingu segir að 920 fermetrar séu
verslunarrými svo leiguverð gæti
verið um 5 milljónir á mánuði.
„Þetta er samt allt spurning um
að fá góða leigjendur og fallegan
rekstur,“ segir Garðar.
Þú finnur nýja Páskablaðið
á www.husgagnahollin.is
www.husgagnahollin.is
558 1100
DEVON
Horntungusvefnsófi. Einn með öllu!
Geymsla undir tungu og í armi.
Stærð: 241 x 225 x 82 cm
199.990 kr.
269.990 kr.
SÓFAR
SVEFN-
Páskatilboðin
í Höllinni
AVELINO
Svefnsófi. Slitsterkt
áklæði. Ljós- og dökkgrár og blár.
Góð rúmfataskúffa.
Stærð: 214 x 89 x 90 cm
69.990 kr.
89.990 kr.
DEVON
Rósóttur svefnsófi er einnig
fáanlegur antracite, brúnn og svartur.
Stærð: 151 x 86 x 82 cm
99.990 kr.
139.990 kr.
Hælisleitendur Rauði krossinn gagnrýnir skort á aðgengi að móttökumiðstöð fyrir flóttamenn
Sjálfboðaliðum meinaður aðgangur
Starfsmenn Rauða krossins
hafa gert athugasemdir við
móttökumiðstöð sem Útlend-
ingastofnun rekur fyrir
flóttamenn í Bæjarhrauni
í Hafnarfirði. Þeir vilja að
sjálfboðaliðum verði hleypt
inn í húsið og að þar skorti
almenningsrými fyrir barna-
fjölskyldur.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Starfsmenn Rauða krossins, sem
Fréttatíminn hefur rætt við, viðra
áhyggjur sínar af móttöku fyrir
flóttamenn í Bæjarhrauni og segja
íþyngjandi fyrir hælisleitendur,
í erfiðri stöðu, að búa í iðnaðar-
hverfi. Þar sem málsmeðferð hælis-
leitenda geti tekið hundrað daga,
þurfi fólkið að geta lifað sem eðli-
legustu lífi. Þess vegna vill Rauði
krossinn að sjálfboðaliðar fái að
heimsækja hælisleitendur sem þar
dvelja. Útlendingastofnun hefur
ekki heimilað það. Félagsstarf
Rauða krossins miði að því að rjúfa
þá einangrun sem flóttafólk býr við
í ókunnum löndum.
„Okkur finnst æskilegt að sjálf-
boðaliðar fái að heimsækja alla
hælisleitendur, óháð því hvar
þeir búa. Við erum að vinna í því
með Útlendingastofnun að bæta
aðgengið fyrir sjálfboðaliða,“ segir
Julie Ingham, verkefnastjóri Rauða
krossins.
Þegar Útlendingastofnun opnaði
móttökumiðstöðina í fyrra, stóð til
að hún yrði eingöngu skammtíma-
úrræði fyrir hælisleitendur sem
kæmu til landsins. Til stóð að þeir
dveldu þar í 10 til 15 daga. Þar hafa
einstaka fjölskyldur með börn hins-
vegar dvalið í allt að þrjá mánuði.
Rauði krossinn gerði úttekt á
móttökumiðstöðinni fyrir skömmu
og gerði athugasemdir við að þar
væri ekki væri almenningsrými
sem væri nauðsynlegt fjölskyldu-
fólki með börn. Starfsmenn Rauða
krossins, sem Fréttatíminn ræddi
við, sögðu val Útlendingastofnunar
á búsetuúrræðum fyrir flóttafólk
vera tekið með furðulegum hætti
og skorti á mannlegri nálgun.
Að sögn Þórhildar Hagalín, upp-
lýsingafulltrúa Útlendingastofn-
unar, er litið svo á að móttökumið-
stöðin sé heimili þeirra sem þar
dvelja og að vernda beri friðhelgi
þeirra.
Móttökumiðstöðin er í iðnaðar-
húsnæði í Hafnarfirði.
Bækur Gunnar Þorsteinsson fékk hótunarbréf frá lögmanni
Titringur vegna ævisögu
Bók sem Gunnar Þorsteins-
son er með í smíðum hefur
fengið hörð viðbrögð þótt
höfundurinn sé ekki búinn
að ljúka við hana.
Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi
forstöðumaður Krossins, vinnur
nú hörðum höndum að því að
skrifa ævisögu sína. Hann
hefur þegar fengið hótunar-
bréf frá lögmanni sem segir
að umbjóðendur hans
muni leita réttar síns ef
fjallað verði um einkamál-
efni þeirra í væntanlegri
bók. Hann segir
að það hafi
verið kokkuð
upp lygasúpa
til að bregða
fæti fyrir sig og eiginkonu sína,
Jónínu Benediktsdóttur, og hann
ætli að vísa henni rækilega til
föðurhúsanna í nýju bókinni.
Gunnar segir að þjóðþekktur
undirheimaforingi hafi einnig
hótað Jónínu og hún hafi snúið
sér í kjölfarið til lögreglunnar. Þá
hafi komið í ljós að menn væru
markvisst að reyna að sölsa
undir sig hús Krossins og
Krossgatna sem eru 3300
fermetrar að flatarmáli.
„Græðgin hefur mörg
andlit og þarna kom í ljós
að menn voru að villa á sér
heimildir,“ segir hann
Gunnar segist ekki
vera fullkominn,
hann hafi aldrei hald-
ið því fram: „Reynd-
ar hef ég margsinnis sagt um
mig og þá sem ég hef notið þess
heiðurs að fá að leiða frá myrkri til
ljóss að við séum, almennt talað,
verri en annað fólk,“ segir hann.
Kraftmestu viðbrögðin hafa þó
komið frá þeim sem Gunnar deilir
við innan safnaðarins.
„Þeir telja að ég búi yfir svo við-
kvæmum upplýsingum að þeir
leggja á sig erfiði við að bregða
fyrir mig fæti,“ segir hann
Gunnar segist líta svo á að með
þessu hótunarbréfi séu menn að
játa að þeir hafi óhreint mél í poka-
horninu. Hann segir að það hafi
sett að honum óstöðvandi hlátur
þegar hann las það. „Þær upp-
lýsingar sem ég hef undir höndum
eiga mikið erindi við almenning.
| þká
Húsið við Laugaveg 91 hefur staðið autt árum saman.
8 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016