Fréttatíminn - 11.03.2016, Blaðsíða 34
Mynd | Arnold Björnsson
Ingvar Ómarsson, þrefaldur
Íslandsmeistari í hjólreiðum,
gerði sér lítið fyrir og sigraði
á hollensku götuhjólamóti
á dögunum. Aðeins fjórum
mánuðum eftir að hann
slasaðist lífshættulega í
árekstri við mótorhjól.
Erla Sigurlaug Sigurðardóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
„Já, ég náði að stinga af með
öðrum og við tveir náðum að hjóla
ansi hressilega, með hópinn á
eftir okkur. Þetta voru nánast allt
Hollendingar en útlendingurinn
sigraði í elítuflokki,“ segir Ingvar
Ómarsson, ánægður með árang-
urinn. „Hollendingar eru nátt-
úrulega ein stærsta þjóðin í þessu
sporti og hér er allt önnur taktík
í keppnum sem er gaman að upp-
lifa. Ég flokka mig sem fjallahjólara
en þessar götuhjólakeppnir eru
skemmtileg reynsla.“
Ingvar er eini Íslendingurinn
sem er atvinnumaður í hjólreiðum
en það hefur hann verið frá því
í fyrravor. Hann fluttist til Hol-
lands í haust til að freista þess að
ná lengra í íþróttinni. Í nóvember
lenti hann hinsvegar í alvarleg-
um árekstri við mótorhjól. Hann
man ekki eftir slysinu og rankaði
fyrst við sér 4 dögum síðar. „Þeir
fyrstu á slysstað héldu að ég væri
dáinn og það var kölluð út þyrla
og sjúkrabíll. Ég var svo hepp-
inn að vera nálægt einum besta
spítala í Evrópu þar sem ég fékk
fyrsta flokks þjónustu. Ég var með
lífshættulega höfuðáverka og fór
strax í mjög stóra aðgerð á höfð-
inu. Þá var höndin líka mölbrotin
en það var aukaatriði. Læknarnir
voru víst alls ekki vongóðir um að
ég myndi ná mér og í raun gáttaðir
á ótrúlegum bata. Ég var strax
ákveðinn í að sigrast á þessu og
það fyrsta sem ég hugsaði þegar
ég vaknaði aftur var að ég ætlaði
aftur að hjóla. Fyrsti hjólatúrinn
um miðjan desember var þó mjög
hægur og erfiður.“
Ingvar fullyrðir að í dag, fjórum
erfiðum mánuðum eftir slysið,
hafi það engin áhrif á daglegt líf
og hjólaæfingar. „Ég var með stöð-
ugan höfuðverk í 5-6 vikur en svo
hvarf hann. Ég er reyndar með tít-
aníumplötu og nagla í hendinni en
það truflar mig ekki, frekar en að
hafa misst lyktar- og bragðskyn. En
auðvitað er maður aðeins tilfinn-
inganæmari eftir svona reynslu.“
Framundan hjá Ingvari eru
hjólamót nánast um hverja helgi
fram á haust og þar á meðal heims-
meistaramót í Tékklandi um mitt
sumar. „Ég sleppti öllum mótum í
janúar og febrúar en fór í staðinn í
5 vikna æfingaferð til Tenerife. Það
er þyngsta æfingatímabil sem ég
hef tekið frá upphafi. Ég hjólaði í
25 klukkustundir á viku í kjörað-
stæðum og náði mér aftur í betra
form en ég hafði þorað að vona.“
Hjólreiðar Íslandsmeistarinn risinn upp aftur eftir alvarleg höfuðmeiðsl
Ingvar Ómarsson hlaut alvarlega
höfuðáverka við áreksturinn í
nóvember og var vart hugað líf.
Sigraði á hjólamóti 4 mánuðum
eftir lífshættulegt hjólaslys
Í miðjunni er Ingvar með keppinautum sínum í götu-
hjólamótinu sem hann sigraði í um helgina í Hollandi.
Ingvar Ómarsson í keppnisformi á Íslandi í fyrra.
34 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016
* E f g r e i t t m e ð N e t g í róm a í - j ú n í & s e p t . - o k t .
DUBLIN
9.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í rój ú n í - s e p t e m b e r
DÜSSELDORF
10.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í róá g ú s t - o k t ó b e r
EDINBORG
9.999 kr.f rá *
SÍMI 5 700 900
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI | SPÖNGINNI,
GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ.
Gildir til
26. mars