Fréttatíminn - 11.03.2016, Síða 40
Heil og sæl, kæra móðir og takk
fyrir einlægnina þína og bréfið sem
segir í reynd svo margar sögur sem
ég ætla að svara í áföngum í næstu
blöðum.
Systkina- og stjúpflækjurnar
Það sem þú nefnir heimilisnöldur
og atvikið á sunnudaginn eru tákn
fyrir miklu djúpstæðari átök held-
ur en ofverndað og dekrað örverpi
ykkar hjóna. Þarna birtast hlut-
verkin í systkinaröðinni þar sem
fjölskylduhetjur, svartir sauðir,
týndu börnin og trúðarnir stíga
fram á sviðið. Svo eru óuppgerðar
tilfinningar stjúpbarnsins á heim-
ilinu, möguleg meðvirkni hans eftir
að hafa verið „eini karlmaðurinn“ í
lífi þínu fyrstu árin og til viðbótar
möguleg tilfinning hans um höfnun
frá stjúpföður og reiði yfir því að
hann tapaði þér til annars manns.
Hann hafði samt þá sérstöðu að
hafa verið eini sonurinn þegar þið
eignuðust eingöngu stúlkur – en
síðan fæðist annar drengur.
Öfund milli kynja og hásætishrun
Svo má ekki vanmeta ótta barna
fyrir því að gert sé upp á milli
stúlkna og drengja. Slík afbrýði-
semi er algeng en enn meiri þar
sem stúlkurnar þrjár hafa verið
„stelpuklíka“ en hafi skynjað að
þær væru ekki „nóg“ þegar þið
ákveðið að bæta við barni í lok-
in, mögulega í von um strák.
Svo berjast drengir og stúlkur
um hylli og ást mömmunnar
og pabbans á ólíkan hátt.
Loks er alltaf ótti hjá eldri börn-
um þegar nýtt barn kemur á heim-
ilið og það er óháð kyni; óttinn um
að yngsta barnið muni að lokum
eiga mest af ást foreldranna því
að enginn kemur á eftir því til að
velta því úr „hásætinu“ eins og hin
þurftu að þola á sínum tíma.
Byrjaðu á byrjuninni
Mögulega finnst þér nú að þú hafir
brugðist og sért með óyfirstíganleg
vandamál. Svo er alls ekki, kæra
móðir. Þörfin fyrir ást og óttinn
um sig og sína stöðu eru meðal
frumhvata okkar. Andaðu djúpt
og treystu á kærleikann sem skín
í gegnum bréfið þitt. Þú munt ná
sambandi aftur við son þinn og
hlustaðu á stúkurnar þínar, ígrund-
aðu svo sjálf hvers vegna þeim
finnst örverpið fá meira heldur en
þau. Leitaðu á netinu að þessum
þáttum sem ég nefni og lærðu í ró-
legheitum. Svo mun ég halda áfram
í næsta blaði og gangi þér sem allra
best.
Uppeldisáhöldin
Magga Pála gefur foreldrum
ráð um uppeldi stúlkna
og drengja milli 0 og 10 ára.
Sendið Möggu Pálu ykkar
vandmál á netfangið.
maggapala@frettatiminn.is
Örverpi og
hásætishrun
Kæra Margrét Pála. Mikið er gott að fylgjast með svörunum
sem þú gefur foreldrum og mér finnst mikilvægt að við getum
leitað eftir ráðum ... Ég er ekki með eitthvað alvarlegt vanda-
mál og börnin mín eru öll vel heppnuð og engar greiningar eða
svoleiðis. Þetta er meira svona heimilisnöldur sem maðurinn
minn segir að ég eigi að láta fara inn um annað eyrað og út um
hitt en ég held að karlmenn eigi auðveldara með það en konur.
Alla vega finnst mér það ... Við hjónin eigum fjögur börn saman
og svo átti ég strák áður sem var átta ára þegar ég og maðurinn
minn fluttum saman. Svo eignuðumst við stelpurnar með stuttu
millibili og þær eru núna 12 og 13 ára og svo 17 ára. Svo eignuð-
umst við strák sem núna er fimm ára gamall. Sonur minn, sem
ólst upp hjá okkur, er fluttur að heiman en kemur oft í mat og
svona. ... Mér finnst eins og stelpurnar séu allar afbrýðisamar
út í þennan yngsta ... stöðugt að skammast í honum ... og að við
gerum engar kröfur á hann ... Samt er elsta dóttir okkar alltaf
að reyna að stilla til friðar og hún hjálpar mér langmest með
strákinn. ... Við vorum öll saman hérna heima í sunnudagsmat
um daginn og systur hans voru svo reiðar út af því að strák-
arnir þurfi aldrei að gera neitt og að við höldum bara upp á þá
... Stóri strákurinn minn æsti sig rosalega mikið við þær því það
hafi nú ekkert verið haldið upp á hann og að hann hafi þurft að
gera allt og að pabbi þeirra hafi aldrei hlíft honum ... svo rauk
hann út ... hann er venjulega svo rólegur og góður við mig en
hann svarar ekki símanum og lokaði á mig á Feisinu.
Ég er alveg í rusli yfir að þetta sé allt mér að kenna og að ég sé
bara að ofvernda hann ... Áhyggjufull og sorgmædd mamma.
kjúklinga
Gómsætt
TILBOÐ
1.990 kr.
meo chili, hunangsristuoum
kasjúhnetum, papriku og hvítlaukssósu
Borg bjór á krana.
Úlfur og Snorri
á tilbooi – 800 kr.
KRINGLUKAST 10.-14. OKT.
EPSON EXPRESSION HOME XP-332
Einfaldur og góður prentari og skanni fyrir skólafólk.
Þráðlaus ölnotaprentari (skanni, ljósritun og prentun). Hentar vel til að prenta allt
frá texta yr í góða ljósmynd. Beinn stuðningur við iPhone/iPad og Android. Hægt
er að fá APP til að prenta og skanna með iOS og Android tækjum. Allar helstu
skipanir á skjá. Hagkvæmur í rekstri.
13.00
0
EPSO
N Exp
ressio
n
Home
XP-3
32
,-
www.thor.is
TÖLVUVERSLUN
ÁRMÚLA 11 - SÍMI 568-1581 ÞÓR HF - UMBOÐSAÐILI EPSON Á ÍSLANDI Í MEIRA EN 30 ÁR
Einnig fáanlegur í hvítu.
40 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016