Fréttatíminn - 11.03.2016, Síða 42
Fleiri myndir á
frettatiminn.is
ÞRIGGJA MÁNAÐA
EVRÓPUDVÖL
LANGAR ÞIG Í ÆVINTÝRI?
Dvöl á vegum AFS er spennandi og dýrmæt lífsreynsla og nú býður AFS
upp á þriggja mánaða Evrópudvöl sem hefst í haust.
Allir þátttakendur búa hjá fjölskyldum og
ganga í skóla í Evrópulandi. Í lok dvalar
hittast allir þátttakendur á fjögurra daga
námskeiði í Belgíu áður en haldið er heim
aftur.
Lönd í boði
Belgía / Bosnía og Hersegóvína / Tékkland
/ Danmörk / Spánn / Frakkland / Ítalía /
Lettland / Rússland / Slóvenía / Slóvakía.
Verð
660.000 - 690.000 kr.
Innifalið í verði:
Flug, uppihald, skólaganga, Belgíuferð og
allur námskeiðskostnaður.
Kynntu þér málið
Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu
okkar afs.is, í tölvupósti info-isl@afs.org
eða í síma 552-5450.
Ingólfsstræti 3, 2. hæð | 552 5450 info-isl@afs.org | afs.is | facebook.com/skiptinemi
fa
rv
i.i
s
/
0
3
1
6
UMSÓKNARFRESTUR
ER TIL
15. APRÍL
ALDURSTAKMARK
ÁRA
15-18
Ég fór í kvikmyndahús í síðustu viku. Sá það
sjónarspil sem felst í kvikmyndinni Afturgöng-
unni (e. Revenant). Það er ýmislegt sem situr
eftir í þankanum eftir þá upplifun. Náttúran
var dásamlega falleg. Vatnið tók formbreyt-
ingum á greinum trjánna og öxum stráa. Rann
í lækjum og ám. Þéttist á himni og tók skiptum
í skýjafari. Vindurinn blés misákaft og sólar-
ljósið sveiflaði hita og kulda. Í þessum bak-
grunni náttúrunnar gerist saga mannanna. Í
grunninn tveggja ólíkra hópa manna. Aðal-
söguhetjan stóð í anda einhvers staðar mitt á
milli þeirra. Alinn upp í anda hins „upplýsta“
landnema og gekk götuna í „nýja“ heiminum
með þeim en var undir sterkum áhrifum
hins náttúrutengda frumbyggja.
Mennirnir í sögunni á náttúru-
tjaldinu voru mis-göfugir, mis-vitrir,
mis-kærleiksríkir og mis-allt eins og
menn eru. Í raun alltaf full-verðandi
en aldrei full-orðnir. Sumir hreint út
sagt nánast án allrar mannúðar og/
eða samhygðar. Þeir virtust hugsa
og breyta eingöngu með eigin hag
og grunnþarfir að leiðarljósi. Allt
sem stóð í vegi fyrir vilja þeirra
varð að víkja hversu „villi-
mannsleg“ sem birtingar-
mynd viljans kunni að vera.
Ofan á samskiptin bættust
svo afurðir hins virka
framheila mannskepn-
unnar, m.a. undirferli
sem gerðu skiptin síst
hreinskipt(in).
Í upphafi myndar
„fellur“ söguhetjan og
missir nær allan lífsneista.
Hann tórir svona eins og
á bláþræði. Söguhetjan „fer
millum heima“. Í slitrofum
bláþráðarins opnast handanheimurinn hon-
um og birtast sýnir í sótthita. En þráðurinn í
raunheima heldur og neistinn nærist á ný af
lífi hérna megin. Náttúrutenging og læsi sem
frumbyggjarnir höfðu innrætt okkar manni
verða honum ómetanleg bjargráð. Viðhalda og
grundvalla þá baráttu að lifa af, rísa upp og ná
heilli brá. Það virðast alls staðar í náttúrunni
liggja sprek sem hvetja lífsneista mannsins.
Sprek sem viðhalda lífi. Innra með manninum
virtist ástin, göfgin og réttlætiskenndin sem
viðhélt staðföstum vilja blása glóðum hefnda
á bálið.
Í samanburði við vegferð þessarar sögu-
hetju er vegferð okkar og lífs(barátta) auðveld.
Við höfum sennilega í samhengi við þann
heim sem hetjan lifir, alltof mikið af öllu. Of
mikið sem samt virðist aldrei verða nóg. Við
virðumst flest í samanburði við þá mann-
veru er Leonardo DiCaprio túlkar svo
vel í myndinni, svo ekki sé nú minnst
á frumbyggjana, hafa nánast glatað
tengingu vitundar okkar við frum-
tíðni náttúrunnar. Næmi okkar á fall-
andi loftvog, vaxandi vind, kollhúfur
hrossa, leyndardóm vornæturinnar
eða önnur brigði náttúrunnar virðist
almennt fara minnkandi í öllu „raf-
magninu“. Við erum engu að síður
hluti af náttúrunni, en ekki frávik.
Eða hvað?
Utan hringsins
Héðinn Unnsteinsson
Náttúra I
„Ég er ekki hrifinn af bláum
himni,“ segir Benjamin Hardman,
ástralskur ljósmyndari, sem kolféll
fyrir íslenskri náttúru. Eftir fjölda
heimsókna þvert yfir hnöttinn
ákvað hann að láta drauminn ræt-
ast og flytja til Íslands fyrir tæpu
ári. Í dag er hann einn færasti
landslagsljósmyndari landsins
með stóran fylgjendahóp sem
margir hverjir hafa bókað far til
Íslands til þess eins að upplifa það
sem hann hefur fest á filmu.
Árið 2012 var Benjamin í við-
skiptanámi í London þegar hann
heyrði einn samnemanda sinn tala
um Ísland. Hann hafði þá litla hug-
mynd um landið og fór heim að
gúggla. Þennan sama dag keypti
hann farmiða til Íslands, þann
fyrsta af mörgum. Afrakstur Ís-
landsheimsókna sinna sýndi hann
m.a. á tveimur sýningum sem
hann setti upp í Ástralíu. Hann
var staðráðinn í að gefa eitthvað til
baka fyrir upplifunina og lét ágóð-
ann renna til Náttúruverndarsam-
taka Íslands.
„Hálendið er í sérstöku upp-
áhaldi hjá mér, sérstaklega á vet-
urna. Eins það að mynda í snjóbyl
og hríð, en oft nær maður sterk-
ustu augnablikunum við erfiðustu
aðstæðurnar,“ segir Benjamin.
Fylgjast má með Benjamin á
instagagram @benjaminhardman
Sólin hnígur, svörður fangar
sælan hennar varma streng.
Eikin breið og ölm á mæri
standa á strengsins langa færi
er veikur röðuls loka ljómi
logar bjart í aftans tómi.
Finnur líf í mjóum meiði,
mætir auga lífs á heiði.
Ylinn ber að ýta hjarta
angan vors nú eigum bjarta.
Flutti þvert yfir hnöttinn til
að mynda íslenska náttúru
42 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016