Fréttatíminn - 11.03.2016, Page 64
Unnið í samstarfi við
Harðviðarval
Ólafur Geir Guttormsson í Harðviðarvali er sérfróður um dúka og teppi og þá sér í lagi fyrir stofnanir,
hótel og skrifstofur. Aðspurður um
nýjustu stefnur og strauma í þeim
efnum segir hann vera að ryðja sér
til rúms svokallað LVT eða Luxury
Vinyl Tiles sem eru afar slitsterkar
dúkaflísar með parketútliti. Sú tíð
er Ólafi í fersku minni að linoleum-
dúkar voru í hverju opinberu rými,
á stofnunum og skrifstofum; það
hefði bara ekkert annað komið til
tals af gömlum vana. Nú er öldin
önnur. LVT gólfefnin vekja jafnan
athygli og fólki finnst þau flott á
meðan færri hafa skoðun á þessum
klassísku linoleum dúkum. „Þetta
hefur reyndar verið frekar lengi í
gang hér á Íslandi. Í löndunum í
kringum okkur hefur þetta rokið
upp síðasta áratuginn og við erum
að komast í gang. Þær þurfa lítið
viðhald og eru rosalega sterkar en
líta út eins og parket,“ segir Ólafur
og bætir við að helstu arkitektarnir
séu búnir að uppgötva kosti LVT og
séu farnir að nýta sér það í meira
mæli þegar þeir hanni rými eins og
til dæmis skrifstofurými, veitinga-
staði og verslanir. „Það vilja flestir
fara í parketútlitið,“ segir hann.
Biðstofur og vistarverur hlýlegri
Ekki eru bara þeir sem hanna skrif-
stofurými og veitingastaði farnir að
líta til þessa útlits heldur er þetta
einnig að færast hægt og rólega yfir
í hjúkrunarheimili og heilsugæslur.
„Ég segi arkitektum vanalega að
vistarverur fyrir fólk og biðstofur
verði mun hlýlegri með þessu útliti
heldur en þessi dæmigerði linoleum
dúkur. Fólk er orðið dálítið þreytt
á þessu stofnanalega útliti.“ Þó
að margir tengi linoleum við liðna
tíma er það þó reyndar ekki svo að
dúkurinn sé á algeru undanhaldi
heldur er líka stöðug þróun í þeirri
framleiðslu, til að fylgja breyttum
tímum. Nýjasti linoleum dúkurinn
er linoleumparket sem verður sífellt
vinsælli.
Hljóðvistin betri með teppaflísum
Í Harðviðarvali eru einnig hótelteppi
í úrvali, bæði þessi klassísku og svo
er fólk í meira mæli að nýta teppa-
framleiðandann Carpet Consept
sem framleiðir lúxusteppi af hæstu
gæðum. Arkitektar eru mjög hrifnir
af framleiðslunni þeirra og Carpet
Concept mun meðal annars prýða
nýja glæsihótelið við Jökulsárlón,
Hnappavelli. Línan sem var valin
fyrir hótelið heitir EcoTec, teppi
með einstaklega fallegri áferð úr há-
gæðaþráðum, að sögn Ólafs.
Einnig eru teppaflísar vinsælar
fyrir skrifstofurými og hafa hlotið
uppreisn æru, ef svo má að orði
komast. „Teppaflísar dóu nánast
alveg út fyrir 15-20 árum en eru
komnar aftur. Það er svo mikið af
opnum rýmum núna þar sem fólk
vinnur og hljóðvistin er mikið mál.
Í kringum 2007 var parketi raðað
niður á skrifstofurými því það þótti
svo flott en svo fengum við að
heyra það nokkrum árum síðar að
það var farið að kvarta yfir lélegri
hljóðvist. Teppaflísarnar eru mjög
hljóðeinanangrandi og við eigum til
mjög margar flottar tegundir.“
Ég segi arkitektum vanalega
að vistarverur fyrir fólk og
biðstofur verði mun hlýlegri
með þessu útliti heldur en
þessi dæmigerði linoleum
dúkur. Fólk er orðið dálítið
þreytt á þessu stofnanalega
útliti.
Sterkt og fallegt vínylparket
góður kostur fyrir stór rými
Harðviðarval sérhæfir sig í gólflausnum fyrir stór rými af öllu tagi.
Myndir | Hari
64 | fréttatíminn | HELGiN 11. mArS–13. mArS 2016
Kynningar | Heimili og hönnun AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
LVT Luxury Vinyl Tiles / Lúxus
Vínylparketi frá Gerflor.
Teppaflísar voru á undanhaldi en
hafa hlotið uppreisn æru.
Parketútlitið er það
sem langflestir kjósa.
Teppaflísar frá Mohawk.
Harðviðarval hefur ráðlagt fólki með gólfefni frá stofnun þess árið 1978 og merkir
miklar breytingar á straumum og stefnum gegnum tíðina.