Fréttatíminn - 11.03.2016, Blaðsíða 65
Unnið í samstarfi við Byko
Í gólfefnadeildinni í Byko í Breidd-inni ræður Anton Stefánsson ríkjum. Þar er úrvalið af parketi afar gott auk þess sem hægt er
að fá býsnin öll af flísum. Anton
segir harðparket vinsælast í dag og
þá séu ljósir litir einna mest teknir.
„Litirnir fara mikið út í hvítt og grátt
þessa dagana og svo koma brúnir
litir alltaf inn líka. Við erum með
mikið úrval af þessum litum og það
eru alltaf einhverjar nýjungar að
koma inn,“ segir Anton.
Vatnsheld parket vinsæl
Hvað baðherbergin varðar er vin-
sælast að taka gráa og milligráa
tóna á gólfin og svo ljósari flísar
látnar flæða upp á veggina. „Það
er svolítið einstaklingsbundið hvað
fólk velur á gólf inni á minni rými.
Það er vinsælt að brjóta heildar-
útlitið upp með því að setja síðan
mósaík á klósettkassann og inni
í sturtuna,“ segir Anton og bætir
við að vatnsheld parket séu einnig
að verða mjög vinsæl. „Þetta eru
gólfefni sem mega vera í votrými
og við eigum tvo liti af þeirri tegund
eins og er.“
Kapp lagt á góða þjónustu
Anton segir fólk heldur íhaldssamt
í litavali þegar kemur að flísunum
og mest velja gráa og hvíta tóna.
„En við getum samt orðið fólki út
um hvað sem er og erum líka með
skrautlegar flísar á lager.“ Gólfefni
í eldhús getur oft verið höfuð-
verkur og segir Anton að allt kapp
sé lagt á að finna það sem hentar
fólki. „Sumir vilja hafa sama parket
flæðandi yfir allt rýmið á meðan
aðrir vilja brjóta það upp og hafa
flísar í eldhúsinu. Þá er fólk oft með
sömu flísarnar líka á baðherberginu
og jafnvel í þvottaaðstöðunni sé
hún til staðar.“
Notalegt umhverfi
„Starfsfólk okkar býr yfir áralangri
reynslu sem nýtist vel í stórum og
glæsilegum sýningarsal okkar sem
hólfaður er frá öðrum deildum
í Breiddinni. Auk þess starfa hjá
okkur stílistar sem veita góða
ráðgjöf. Hægt er að njóta þess að
skoða sýnishorn í ró og næði og
velja sinn stíl við bestu aðstæður.
Það er alltaf kaffi á könnunni og
gott viðmót,“ segir Anton.
Það er svolítið einstaklings-
bundið hvað fólk velur á gólf
inni á minni rými. Það er vin-
sælt að brjóta heildarútlitið
upp með því að setja síðan
mósaík á klósettkassann og
inni í sturtuna.
Hvítir og gráir tónar vinsælastir
Byko í Breiddinni hefur að geyma gólfefnadeild með yfirgripsmiklu úrvali.
Anton Stefánsson ræður ríkjum í gólfefnadeild Byko í Breiddinni. Hann segir hvíta og gráa tóna vera með vinsælustu litunum ásamt brúnum tónum
sem eru alltaf klassískir. Starfsfólk Byko leggur sig fram við að aðstoða fólk við að finna draumaparketið.
Mynd | Rut
Vinsældir vatnsheldra parketa fer vaxandi og úrvalið af slíku gólfefni
er mikið í Byko í Breiddinni. Sjón eru sögu ríkari.
|65fréttatíminn | HELGin 11. mArS–13. mArS 2016
Kynningar | Heimili og hönnun AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Ný og glæsileg deild undir sama nafni
BYKO opnaði fyrst deild undir nafninu Hólf & gólf í mars 1991 í kjall-
ara eldri verslunarinnar í Breiddinni þar sem nú er Leigumarkaður
og Lagnaverslun. Nú hefur verið opnuð ný og glæsileg valvörudeild
undir sama gamla nafni í stórverslun Byko í Breiddinni. Lögð er mikil
áhersla á gæðamerki í gólfefnum. Meðal þeirra merkja sem finna má
eru Steirer, Krono, Selkie Board, E-Stone, Rovese, Fiandre og Sintesi.